Myrkur í ágúst 11 — Guðirnir senda sólmyrkva

Sól­myrkvi hef­ur áhrif á mik­il­væga orr­ustu.

Myrkur í ágúst 11 — Guðirnir senda sólmyrkva
Sólmyrkvi bindur endi á orrustuna við Halys. Þetta mun hafa gerst í raun og veru.

Voruð þið búin að lesa greinina frá í gær?

Gott.

Annars er hún hér.

En nú víkur sögunni til fljóts sem nú heitir Kızılırmak og rennur ofan úr miðju Tyrklandi til sjávar í Svartahaf. Fyrir rúmum 2.500 árum var áin kölluð Halys og var á mótum tveggja stórvelda sem þá skiptu hinu núverandi Tyrklandi milli sín.

Í vestri var Lydia, mjög auðugt og blómlegt ríki, sem lengi var undir stjórn hins fræga Kroesusar konungs sem gjarnan var sagður auðugasti maður fornaldar. Í vestri var hins vegar ríki Meda. Þeir voru nýkomnir til sögunnar og ætluðu sér stóran hlut. Meðal annars réðust þeir gegn Lydiu og stríð þjóðanna stóð árum saman.

Á bökkum Halys-fljóts

Eitt sinn mættust herir þjóðanna á bökkum Halys-fljóts. Liði Lydiumanna stýrði Alyattes konungur en hinum herskáu Medum stýrði Cyaxares konungur. Báðir konungarnir voru ráðnir í að berjast til þrautar og knésetja óvinina í eitt skipti fyrir öll.

En orrustan var varla hafin þegar „dagurinn breyttist skyndilega í nótt“, eins og gríski sagnaritarinn Heródótus skrifaði um það bil öld eftir bardagann. Það varð sem sé almyrkvi á sólu. Og þegar konungarnir og hermenn þeirra sáu þetta urðu þeir mjög hræddir. Þeir þóttust vissir um að guðunum mislíkaði að þeir skyldu vera að reyna að drepa hverjir aðra.

„Þeir hættu að berjast og voru einhuga um að semja um frið sem skjótast,“ skrifaði Heródótus. Og svo var samið um frið milli ríkjanna og honum til tryggingar var Aryenis, dóttir Lydiu-konungs, gefin í hjónaband Astyages, syni Medakonungs. Síðan ríkti friður og vinátta milli ríkjanna meðan bæði héldu sjálfstæði sínu.

Fyrsti tímasetti atburður fornaldar

Frásögnin um þessa orrustu er í sjálfu sér merkileg.

Hún sýnir til dæmis hvað menn í fornöld voru trúaðir á að guðirnir hefðu puttana í öllum hlutum, þar á meðal og ekki síst hinum mikilfenglegustu fyrirbrigðum náttúrunnar. Og að þeir notuðu náttúruöflin til að senda mönnunum skilaboð um hitt og þetta sem þeir vildu koma til skila.

En fleira kemur til.

Til dæmis er orrustan við Halys fyrsti atburður veraldarsögunnar sem hægt er að tímasetja af nákvæmni og vissu. Tímatalsfræði í fornöld voru ekki nákvæm vísindi og þess vegna getur oft ýmsu skeikað þegar reynt er að ákveða hvaða dag og hvaða ár tiltekinn atburður gerðist.

En um orrustuna við Halys er engin óvissa.

Vísindamenn seinni tíma hafa nefnilega reiknað út að vissulega varð almyrkvi á sólu við Halys-fljót um það leyti sem Heródótus hermir.

Við vitum meira að segja klukkan hvað

Almyrkvinn varð þann 28. maí árið 585 fyrir upphaf tímatalsins, fyrir Krist.

Við vitum meira að segja klukkan hvað.

Það var klukkan 16.38 sem dauðskelkaðir hermenn Lydiumanna og Meda köstuðu frá sér vopnum sínum í myrkrinu sem allt í einu hafði skollið á.

Og hófust handa um að semja frið.

Bara að guðirnir hefðu oftar sent sólmyrkva til að binda endi á bardaga og stríð!

En fleira kemur til sem gerir þennan sólmyrkva fyrir 2.611 árum stórmerkilegan.

Frá því segir á morgun.

Dauðskelkaðir hermenn köstuðu frá sér vopnum sínum í myrkrinu 
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.
Borgþór Arngrímsson
2
PistillEitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski her­inn hef­ur ár­um sam­an mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hef­ur bitn­að á tækj­um og mann­skap. Slæm­ur að­bún­að­ur og lé­leg laun hafa orð­ið til þess að færri sækj­ast eft­ir her­mennsk­unni. Ný­lega varð danski flot­inn að af­lýsa leið­angri til Græn­lands vegna þess að ekki var hægt að manna leið­ang­urs­skip­ið. Slík­ar frétt­ir skaða ímynd flot­ans og geta ver­ið vatn á myllu Banda­ríkja­for­seta.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
3
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár