Myrkur í ágúst 11 — Guðirnir senda sólmyrkva

Sól­myrkvi hefur áhrif á mik­il­væga orr­ustu.

Sólmyrkvi bindur endi á orrustuna við Halys.
Sól­myrkvi bindur endi á orr­ust­una við Halys. Þetta mun hafa gerst í raun og veru.

Voruð þið búin að lesa grein­ina frá í gær?

Gott.

Annars er hún hér.

En nú víkur sög­unni til fljóts sem nú heitir Kızılırmak og rennur ofan úr miðju Tyrk­landi til sjávar í Svarta­haf. Fyrir rúmum 2.500 árum var áin kölluð Halys og var á mótum tveggja stór­velda sem þá skiptu hinu núver­andi Tyrk­landi milli sín.

Í vestri var Lydia, mjög auð­ugt og blóm­legt ríki, sem lengi var undir stjórn hins fræga Kroesusar kon­ungs sem gjarnan var sagður auð­ug­asti maður forn­aldar. Í vestri var hins vegar ríki Meda. Þeir voru nýkomnir til sög­unnar og ætl­uðu sér stóran hlut. Meðal ann­ars réð­ust þeir gegn Lydiu og stríð þjóð­anna stóð árum saman.

Á bökkum Halys-fljóts

Eitt sinn mætt­ust herir þjóð­anna á bökkum Halys-fljóts. Liði Lydiu­manna stýrði Alyattes kon­ungur en hinum her­skáu Medum stýrði Cyaxares kon­ungur. Báðir kon­ung­arnir voru ráðnir í að berj­ast til þrautar og kné­setja óvin­ina í eitt skipti fyrir öll.

En orr­ustan var varla hafin þegar „dag­ur­inn breytt­ist skyndi­lega í nótt“, eins og gríski sagna­rit­ar­inn Heródótus skrif­aði um það bil öld eftir bar­dag­ann. Það varð sem sé almyrkvi á sólu. Og þegar kon­ung­arnir og her­menn þeirra sáu þetta urðu þeir mjög hræddir. Þeir þótt­ust vissir um að guð­unum mis­lík­aði að þeir skyldu vera að reyna að drepa hverjir aðra.

„Þeir hættu að berj­ast og voru ein­huga um að semja um frið sem skjót­ast,“ skrif­aði Heródótus. Og svo var samið um frið milli ríkj­anna og honum til trygg­ingar var Aryenis, dóttir Lydiu-kon­ungs, gefin í hjóna­band Astyages, syni Meda­kon­ungs. Síðan ríkti friður og vin­átta milli ríkj­anna meðan bæði héldu sjálf­stæði sínu.

Fyrsti tímasetti atburður fornaldar

Frá­sögnin um þessa orr­ustu er í sjálfu sér merki­leg.

Hún sýnir til dæmis hvað menn í fornöld voru trú­aðir á að guð­irnir hefðu putt­ana í öllum hlutum, þar á meðal og ekki síst hinum mik­il­feng­leg­ustu fyr­ir­brigðum nátt­úr­unnar. Og að þeir not­uðu nátt­úru­öflin til að senda mönn­unum skila­boð um hitt og þetta sem þeir vildu koma til skila.

En fleira kemur til.

Til dæmis er orr­ustan við Halys fyrsti atburður ver­ald­ar­sög­unnar sem hægt er að tíma­setja af nákvæmni og vissu. Tíma­tals­fræði í fornöld voru ekki nákvæm vís­indi og þess vegna getur oft ýmsu skeikað þegar reynt er að ákveða hvaða dag og hvaða ár til­tek­inn atburður gerð­ist.

En um orr­ust­una við Halys er engin óvissa.

Vís­inda­menn seinni tíma hafa nefni­lega reiknað út að vissu­lega varð almyrkvi á sólu við Halys-fljót um það leyti sem Heródótus hermir.

Við vitum meira að segja klukkan hvað

Almyrk­vinn varð þann 28. maí árið 585 fyrir upp­haf tíma­tals­ins, fyrir Krist.

Við vitum meira að segja klukkan hvað.

Það var klukkan 16.38 sem dauð­skelk­aðir her­menn Lydiu­manna og Meda köst­uðu frá sér vopnum sínum í myrkr­inu sem allt í einu hafði skollið á.

Og hófust handa um að semja frið.

Bara að guð­irnir hefðu oftar sent sól­myrkva til að binda endi á bar­daga og stríð!

En fleira kemur til sem gerir þennan sól­myrkva fyrir 2.611 árum stór­merki­legan.

Frá því segir á morgun.

Dauð­skelk­aðir her­menn köst­uðu frá sér vopnum sínum í myrkr­inu 
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár