Ómenning að líta á kynferðisbrot sem „fórnarkostnað við skemmtun“

Drífa Snæ­dal talskona Stíga­móta seg­ir orð­ræðu um kyn­ferð­is­brot á úti­há­tíð­um „ein­kenn­is­merki þess að of­beldi er lát­ið við­gang­ast í sam­fé­lag­inu“. Um helg­ina voru fjög­ur kyn­ferð­is­brot á úti­há­tíð­um til­kynnt til lög­reglu en há­tíð­ar­hald­ar­ar og lög­regla tala um að há­tíð­ar­höld hafi al­mennt geng­ið vel.

Ómenning að líta á kynferðisbrot sem „fórnarkostnað við skemmtun“
Skilaboðin skýr „Ég vil aðallega koma skilaboðum til ofbeldismanna: Að hætta að beita ofbeldi,“ segir Drífa Snædal. Mynd: Golli

„Þetta er einkennismerki þess að ofbeldi er látið viðgangast í samfélaginu,“ segir Drífa Snædal talskona Stígamóta um orðræðu sem viðgengst varðandi kynferðisbrot á útihátíðum.

Um helgina fóru bæði Landsmót hestamanna og Kótelettan fram en lögreglan á Norðurlandi og lögreglan á Suðurlandi rannsaka báðar kynferðisbrot eftir hátíðarhöldin, eitt brot á landsmótinu og þrjú á Kótelettunni. Í báðum tilfellum hafa hátíðarhaldarar og lögregla sagt hátíðirnar almennt hafa farið vel fram. Drífa segir þetta hluta af „ómenningu þar sem fólk telur það vera einhvers konar fórnarkostnað við skemmtun að það sé ofbeldi samfylgjandi“.

„Þrátt fyrir“ og „að öðru leyti“ gekk vel

Fréttir helgarinnar voru svohljóðandi: „Tilkynnt var um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal í …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Að álíta kynferðisbrot réttlætanlegan fórnarkostnað fyrir samkomu er bara hreint móralskt gjaldþrot. Og að þolendur leiti til Stígamóta vikum eða dögum seinna en ekki til Lögreglu segir eiginlega alvarlegri sögu. Þykir okkur sem samfélagi ekki vænt um mæður okkar,systur okkar og dætur okkar? Hvað er að?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Rúm milljón kvenna og stúlkna hefur misst aðgang að mannúðaraðstoð
ErlentKynbundið ofbeldi

Rúm millj­ón kvenna og stúlkna hef­ur misst að­gang að mann­úð­ar­að­stoð

„Kvenna­sam­tök­in sem eiga í hættu á að verða lok­að eru í fremstu víg­línu al­var­leg­ustu mann­úð­ar­kreppu heims,“ seg­ir yf­ir­mað­ur mann­úð­ar­starfs hjá UN Women. Níu­tíu pró­sent kvenna­sam­tak­anna segj­ast ekki geta sinnt þjón­ustu sinni. Kyn­ferð­isof­beldi á átaka­svæð­um hef­ur tvö­fald­ast og færri stúlk­ur fara í skóla.
Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hild­ur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lög­regla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðg­un þeg­ar mað­ur sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þing­kona Pírata og formað­ur Laga- og mann­rétt­inda­nefnd­ar Evr­ópu­ráðs­þings­ins seg­ir að af­staða ákæru­valds­ins og mál­ið allt valdi henni veru­leg­um áhyggj­um af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í ís­lensku rétt­ar­vörslu­kerfi.
Hafði „enda­þarms­mök“ við sofandi stúlku – Ekki nauðgun, segir lögregla
Fréttir

Hafði „enda­þarms­mök“ við sof­andi stúlku – Ekki nauðg­un, seg­ir lög­regla

Lög­regla og rík­is­sak­sókn­ari töldu ekki til­efni til að rann­saka hvort nauðg­un hefði átt sér stað þeg­ar mað­ur þröngv­aði lim sín­um í enda­þarm 17 ára stúlku með­an hún svaf. Mað­ur­inn, fað­ir­inn í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu svo­kall­aða, við­ur­kenndi verkn­að­inn í yf­ir­heyrslu vegna ann­ars máls og sagð­ist hafa vit­að að stúlk­an væri mót­fall­in enda­þarms­mök­um.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
6
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár