Morgunblaðið fær 600 nýjar milljónir

Langvar­andi ta­prekst­ur Morg­un­blaðs­ins hef­ur ver­ið bætt­ur upp af eig­end­um.

Morgunblaðið fær 600 nýjar milljónir
Morgunblaðið Hefur skilað tapi á hverju ári frá efnahagshruni, fyrir utan 2013. Mynd: Bára Huld Beck

Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins og mbl.is, hefur fengið 600 milljónir króna í aukið hlutafé. 

Fjölmiðilinn hefur verið í rekstrarvanda og skilað tapi í áraraðir, en fengið jafnóðum nýtt hlutafé frá eigendum til að vega upp tapið.

Hlutafjáraukningin hefur verið tilkynnt til fyrirtækjaskrár Skattsins. Eigendur samþykktu heimild til hlutafjáraukningar í móðurfélaginu Þórsmörk ehf.  á aðalfundi 29. maí síðastliðinn. Síðast fékk félagið 267 milljónir króna í innborgað hlutafé 2024.

Hlutaféð nú nýtist ekki allt til framtíðarrekstrar, þar sem Árvakur skuldaði eiganda sínum 384 milljónir króna undir lok árs 2024. Ekki hefur verið gefið út hver afkoman var á síðasta ári. Tap móðurfélags Árvakurs, Þórsmerkur ehf, var 348 milljónir króna árið 2024. Á því ári skuldaði félagið lánastofnunum 2,1 milljarð króna en nýjar langtímaskuldir voru umfram afborganir þeirra. Eignir voru þó metnar meiri, þar af 2,5 milljarðar króna í varanlega rekstrarfjármuni og tæplega 400 milljónir króna í viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir.

Eigendur …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjölmiðlar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár