Eldsneyti skammtað á rússneskum bensínstöðvum

Búið er að tak­marka elds­neytis­kaup við 30 lítra af bens­íni á mann og 60 lítra af dísilolíu á hund­ruðum elds­neyt­is­stöðva í Rúss­landi. Dróna­árásir Úkra­ínu­manna hafa dregið úr olíu­hreins­un­ar­getu í Rúss­landi.

Eldsneyti skammtað á rússneskum bensínstöðvum
Lítið að fá Við­skipta­vinir Taftnet geta ekki keypt nema þrjá­tíu lítra af bens­íni í hverri heim­sókn. Í síð­ustu viku við­ur­kenndi orku­mála­ráðu­neyti Rúss­lands að orku­fyr­ir­tæki stæðu frammi fyrir „tíma­bundnum erf­ið­leikum með elds­neyt­is­birgðir“ á suð­ur­svæðum Mynd: IGOR IVANKO / AFP

Rúss­neski olíu­fram­leið­and­inn Tatneft hefur tekið upp elds­neyt­is­skömmtun á hund­ruðum bens­ín­stöðva víðs vegar um landið, að því er AFP frétta­stofan komst að á þriðju­dag, þar sem aukin árás­ar­alda Úkra­ínu­manna hefur dregið úr olíu­hreins­un­ar­getu Rúss­lands.

Stjórn­völd í Kænu­garði hafa hert dróna­árásir á olíu­hreins­un­ar­stöðvar í Rúss­landi sem vinna hrá­olíu í elds­neyti á borð við bensín og dísilolíu, þar á meðal árás á þriðju­dag sem hæfði stóra verk­smiðju rétt fyrir utan Moskvu.

Stjórn­völd í Úkraínu kalla árásir á orku­mann­virki „lang­drægar refsi­að­gerðir“ og segja þær miða að því að draga úr tekjum sem Rússland notar til að fjár­magna stríðið.

Starfs­maður í þjón­ustu­veri Tatneft, fimmta stærsta olíu­fyr­ir­tækis lands­ins, sagði við AFP í síma á þriðju­dag: „Já, það er 30 lítra hámark af bens­íni á mann og 60 lítra hámark af dísilolíu.“

Tak­mark­an­irnar voru teknar upp á um 800 bens­ín­stöðvum Tatneft og óljóst var hversu lengi þær myndu vara, sagði starfs­mað­ur­inn.

Fyr­ir­tækið ráð­lagði við­skipta­vinum að greiða …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár