Brim selur í útgerð fyrir bréf í sjálfu sér

Stjórn útgerð­ar­fé­lags­ins Brims hefur selt KG Fisk­verkun sinn hlut í útgerð­inni Melnesi á Rifi. Útgerð­irnar eru Brim og KG Firskverkun eru að uppi­stöðu í eigu sömu fjöl­skyld­unnar. Tilkynnt var um söl­una á sama tíma og stjórn Brims sam­þykkti að greiða 20 millj­arða fyrir Lýsi. Helm­ingur kaup­verðs­ins greið­ist með hlutum í Brimi.

Brim selur í útgerð fyrir bréf í sjálfu sér
For­stjór­inn Guð­mundur í Brimi á 43,96 pró­sent í útgerð­inni, í gegnum 100 pró­senta eign­ar­hlut sinn í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur. Útgerð bróður hans og sona, KG Fisk­verkun, átti 3,99 pró­senta hlut í Brimi, sam­kvæmt hlut­haf­alista félags­ins eins og hann var 30. apríl síð­ast­lið­inn. Mynd: Brim

Brim hf. hefur selt 43 pró­senta eign­ar­hlut sinn í útgerð­ar­fé­lag­inu Melnesi á Rifi á Snæ­fells­nesi til KG Fisk­verk­unar ehf. Kaup­verðið nemur 1,8 millj­örðum króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá stjórn Brims.

Greitt verður fyrir hlut­inn með hluta­bréfum í Brimi. KG Fisk­verkun lætur af hendi 20,7 millj­ónir hluta í Brimi að nafn­virði og mið­ast við­skiptin við gengið 88 krónur á hlut. Það var loka­gengi bréfa Brims við lok mark­aða síð­ast­lið­inn föstu­dag. 

KG Fisk­verkun hefur verið í hópi stærstu hlut­hafa Brims. Félagið er í eigu Hjálmars Þórs Krist­jáns­sonar, sem á 10 pró­senta hlut, og sona hans, þeirra Daða og Fannars Hjálm­ars­sona, sem eiga 45 pró­senta hlut hvor. Hjálmar Þór er bróðir Guð­mundar Krist­jáns­sonar, for­stjóra Brims og stærsta eig­anda félags­ins.

Tilkynnt er um söl­una á sama tíma og stjórn Brims hefur sam­þykkt kaup félags­ins á Lýsi hf. fyrir 20 millj­arða króna. Samkvæmt upp­lýs­ingum um þau við­skipti greið­ist helm­ingur kaup­verðs­ins með reiðufé en hinn helm­ing­ur­inn með hluta­bréfum í Brimi. Þar er miðað við gengið 85 krónur á hlut, þannig að selj­endur Lýsis eign­ast 117.647.058 hluti í Brimi, sem sam­svarar um 6 pró­sentum af heild­ar­hlutafé félags­ins.

End­ur­samið hefur verið um verð í Lýs­is­við­skipt­unum. Upp­haf­legt kauptil­boð Brims gerði ráð fyrir að verð­mæti við­skipt­anna næmi 30 millj­örðum króna, en sam­kvæmt nýju sam­komu­lagi er kaup­verðið 20 millj­arðar króna.

Athygli vekur að hluta­bréf Brims eru metin á mis­mun­andi gengi í þessum tveimur við­skiptum. Í við­skipt­unum við selj­endur Lýsis er miðað við 85 krónur á hlut, en í við­skipt­unum við KG Fisk­verkun er miðað við 88 krónur á hlut. Brim hefur jafn­framt boðið hlut­höfum að selja félag­inu eigin bréf á geng­inu 88 krónur á hlut. 

End­ur­kaupin benda til þess að Brim leit­ist við að afla eigin hluta til að geta greitt fyrir Lýsi með hluta­bréfum sem félagið hefur þegar yfir að ráða, fremur en með útgáfu nýrra hluta.

Í til­kynn­ing­unni um sölu Brims á hlutnum í Melnesi kemur ekki fram hvort sér­stakt mat hafi verið lagt á við­skiptin með til­liti til tengsla aðila, né hvort óháðir aðilar hafi komið að verð­mati á eign­ar­hlutnum í Melnesi eða hluta­bréf­unum í Brimi sem notuð eru sem greiðsla. Í skiln­ingi laga um fisk­veiðar eru KG Fisk­verkun og Brim ótengdir aðilar.

Með söl­unni lætur Brim af hendi 43 pró­senta eign­ar­hlut sinn í Melnesi en fær í stað­inn eigin hluta­bréf frá KG Fisk­verkun.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár