Hvað fær Brim fyrir 30 milljarða?

Útgerðin Brim ætlar að kaupa Lýsi fyrir þrjá­tíu millj­arða króna. Núver­andi eig­endur Lýsis verða meðal stærstu hlut­hafa Brims auk þess að fá mynd­ar­lega pen­inga­greiðslu. Brim eign­ast við kaupin hlut í Morg­un­blað­inu og snyrti­vöru­fram­leið­anda.

Hvað fær Brim fyrir 30 milljarða?
For­stjór­inn Guð­mundur Krist­jáns­son er for­stjóri og langstærsti ein­staki eig­andi Brims. Mynd: mbl/Kristinn Magnússon

Stærsta ein­staka útgerð­ar­fé­lag lands­ins, Brim hf, hefur gert sam­komu­lag um að kaupa allt hlutafé í Lýsi hf. Virði Lýsis í við­skipt­unum er 30 millj­arðar. Samkvæmt til­kynn­ingu Brims til Kaup­hall­ar­innar drag­ast vaxta­ber­andi skuldir upp á 5,3 millj­arða frá kaup­verð­inu, sem verður greitt ann­ars vegar í reiðufé og hins vegar í hluta­bréfum í Brimi. 

Eigendur Lýsis verða bæði millj­arða­mær­ingar og meðal stærstu ein­stöku hlut­haf­anna í Brimi eftir við­skiptin. Brim eign­ast ekki bara lýs­is­byrgðir sem eru millj­arða virði heldur eign­ar­hluti í fjölda fyr­ir­tækja í alls ótengdum atvinnu­greinum. 

Fimm milljarðar inn á reikning

Lýsi er, sam­kvæmt nýj­ustu aðgengi­legu upp­lýs­ingum, í eigu átta ein­stak­linga. Katrín Pét­urs­dóttir, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, er þó langstærsti hlut­haf­inn með um 41 pró­senta hlut í gegnum fjár­fest­inga­fé­lagið Ívar, hluta sem hún á í eigin nafni og afar lít­inn hlut í gegnum Fiskaf­urðir-umboðs­sölu. Erla Katrín Jóns­dóttir á svo 26 pró­senta hlut og Gunn­laugur S. Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Lýsis, á um 24 …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu