Móðir lést í fæðingu á Landspítalanum

Ung móð­ir féll frá en son­ur henn­ar dvel­ur á vöku­deild. Fimm kon­ur höfðu þá lát­ist af völd­um þung­un­ar frá ár­inu 1981.

Móðir lést í fæðingu á Landspítalanum
Fjölskyldan Steinunn Lóa Hafþórsdóttir lést á Landspítalanum við fæðingu og er fjölskyldan í sárum. Mynd: Facebook / Írena Huld Halldórsdóttir

Steinunn Lóa Hafþórsdóttir var nýorðin þrítug þegar hún lést við fæðingu sonar síns á Landspítalanum 19. maí síðastliðinn. Fjölskylda hennar, Hjalti Einarsson og stjúpdóttirin Amalía Erla, sitja eftir í sárum og nýfæddur sonur þeirra dvelur enn á vökudeild spítalans vegna súrefnisskorts í fæðingu.

Vinkonur Steinunnar hafa blásið til söfnunar fyrir fjölskylduna og deila frásögninni á Facebook.

Andlát móður í fæðingu er afar sjaldgæft á Íslandi. Frá árinu 1981 höfðu fimm konur látist vegna „fylgikvilla þungunar, barnsburðar og sængurlegu,“ samkvæmt tölum Hagstofunar, eða um ein á áratug. Þar af varð eitt andlát 2022, annað 2011 og það þriðja 2001. Kona lést árið 1990 og önnur árið 1987 af sömu orsökum.

„Það er ólýsanlega sárt að þurfa að kveðja svona einstaka, fallega og kærleiksríka manneskju alltof snemma,“ segir í færslu vinkvenna hennar, sem sjá má hér fyrir neðan.

„Steinunn snerti líf svo margra með hlýju sinni, fallega brosinu og þeirri einstöku nærveru sem fylgdi henni hvert sem hún fór. Orðin duga varla til að lýsa missinum sem við finnum öll fyrir.“

Þær segja að fjölskyldan muni standa frammi fyrir miklum áskorunum og erfiðleikum í lífinu vegna þessa ólýsanlega áfalls.

„Við vinkonur Steinunnar Lóu höfum ákveðið að setja af stað söfnun fyrir fjölskyldu hennar til að létta undir á þessum erfiða tíma, svo þau geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli núna - að syrgja, standa saman og vera hjá litla drengnum sínum,“ segja þær.

„Framundan er langur og erfiður vegur, bæði andlega, tilfinningalega og fjárhagslega, og því viljum við leggja okkar af mörkum til að styðja þau í gegnum þennan tíma.“

Útför Steinunnar fer fram í næstu viku frá Hafnarfjarðarkirkju.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VERÐU MEÐ ÞÚSUNDUM VIÐSKIPTAMANNA SEM LEITA AÐ BETRI MARKAÐSTÆKIFÆRUM. FÁÐU ÓKEYPIS MERK OG LEIÐBEININGAR Í VIÐSKIPTUM Í BEINNI ÚTSENDINGU. HAFIÐ SAMBAND VIÐ ALFRED Í TELEGRAM (Alfredthoms).
    0
  • JV
    Júlía Valsdóttir skrifaði
    Sorglegt hvað það er mikill afturföt í fæðingaaðstoð á landspítalunum að kona deyi þegar hún er að eiga barn ,að fæðingin se látin taka svo marga klukkutíma að barnið verði fyrir súrefnisskort ,se komið meiri háttar fötlun , heilbrigðisstarfsfólk til skammar😡😡😡😡😡😡
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
3
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Ómenning að líta á kynferðisbrot sem „fórnarkostnað við skemmtun“
4
Innlent

Ómenn­ing að líta á kyn­ferð­is­brot sem „fórn­ar­kostn­að við skemmt­un“

Drífa Snæ­dal talskona Stíga­móta seg­ir orð­ræðu um kyn­ferð­is­brot á úti­há­tíð­um „ein­kenn­is­merki þess að of­beldi er lát­ið við­gang­ast í sam­fé­lag­inu“. Um helg­ina voru fjög­ur kyn­ferð­is­brot á úti­há­tíð­um til­kynnt til lög­reglu en há­tíð­ar­hald­ar­ar og lög­regla tala um að há­tíð­ar­höld hafi al­mennt geng­ið vel.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
2
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
6
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
1
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár