„Með gagnkvæmri virðingu getum við skapað langvarandi árangur,“ sagði Kenneth A. Howery, sendiherra Bandaríkjanna til danska konungsveldisins, við opnun nýrrar staðsetningar ræðisskrifstofu Bandaríkjanna á Grænlandi sem hófst klukkan 14 að staðartíma í Nuuk og stendur til klukkan 17.
Blaðamaður Heimildarinnar var viðstaddur opnunarviðburðinn en við innganginn tóku á móti gestum alvarlegir og innrammaðir Donald Trump Bandaríkjaforseti, JD Vance varaforseti og Marco Rubio utanríkisráðherra sem blaðamanni fannst fanga andrúmsloftið ágætlega. Þótt gestir nytu þess að hlusta á hljómsveit Daniel Ho frá Hawaii, spjölluðu í léttu tómi og gæddu sér á veitingum var nærvera forsetans og yfirvalda í Washington DC áþreifanleg á ræðisskrifstofunni.
Ljóst var að töluverðan fjölda boðsgesta vantaði en slíkt kom þó ekki á óvart en í aðdraganda viðburðarins afboðuðu ýmsir háttsettir þingmenn á Grænlandi komu sína en þeirra á meðal er Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar á Grænlandi. Í samtali við Sermitsiaq á þriðjudaginn sagði hann: „Við höfum ekki tekið …
















































Athugasemdir