Hægri meirihluti að myndast í Reykjavík

Hild­ur Björns­dótt­ir, Ari Edwald og Ein­ar Þor­steins­son geta náð meiri­hluta mið­að við nýja könn­un.

Hægri meirihluti að myndast í Reykjavík

Ný könnun Gallups sýnir að nýtt meirihlutamynstur hægri flokkanna er mögulegt í Reykjavík. Miðað við könnunina er núverandi borgarstjórnarmeirihluti úr leik.

Í könnuninni fær Sjálfstæðisflokkurinn, undir forystu Hildar Björnsdóttir, sem nemur 8 borgarfulltrúum af 23. Miðflokkurinn með Ara Edwald í fararbroddi fær þrjá borgarfulltrúa og þar með getur Einar Þorsteinsson, eini mældi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, framfylgt ósk sinni um að mynda hægri meirihluta, en hann hefur um leið útilokað samstarf við Samfylkinguna. Einar vill mynda „bandalag flokka um breytingar frá miðju til hægri“.

Samfylkingin fær fimm borgarfulltrúa, eins og í síðustu kosningum, Vinstrið þrjá, Viðreisn tvo og Sósíalistaflokkurinn einn. Það þýðir að núverandi borgarstjórnarmeirihluti hefur aðeins 11 borgarfulltrúa og fær þann tólfta ekki frá Framsóknarflokknum. Lítið þarf þó að breytast til þess að Samfylkingin nái inn sjötta fulltrúanum.

Miðað við nýju könnunina getur Sjálfstæðisflokkurinn myndað meirihluta án Viðreisnar, sem áður var talin í lykilstöðu.

Mikil óvissa hefur verið um mögulegar meirihlutamyndanir, ekki síst vegna útilokana Framsóknar á samstarfi við Samfylkingu og efasemdum Bjargar Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, um samstarf við Miðflokkinn. Í kappræðum á Sýn sagðist Björg vilja „byggja frjálslyndan sterkan meirihluta út frá miðjunni“. Hún myndi þó ekki fyrst hringja í Pétur Marteinsson og Heiðu Björg Hilmarsdóttur. Samkvæmt greiningu Ríkisútvarpsins á kosningaprófi RÚV eiga frambjóðendur Viðreisnar meiri samfylgd með stefnu Samfylkingarinnar en Sjálfstæðisflokksins.

Björg ítrekaði í kappræðum RÚV í kvöld að hún myndi ekki hringja fyrst í Samfylkingu til að mynda meirihluta. Hún sagði jafnframt að „pólitískur ómöguleiki“ fælist í að vinna með Miðflokknum og játaði því að hún útilokaði það samstarf.

Í könnun Maskínu sem kynnt var sama dag var niðurstaðan hins vegar að hægri meirihluti með Sjálfstæðisflokki væri með Viðreisn en ekki Miðflokki.

Á sama tíma útiloka bæði Píratar og Sósíalistaflokkurinn samstarf með Miðflokknum og Okkar borg.

Borgarbúar skiptast í tvö horn eftir því hvort þeir vilja hægri meirihluta eða vinstri meirihluta, eins og verið hefur, samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem kynnt var í dag á Vísi.is. 50,7 prósent vilja meirihluta frá miðju til vinstri en 49,3 prósent vilja meirihluta frá miðju til hægri. 

Verði meirihlutinn að veruleika er hugsanlegt að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins sé í uppnámi. Hildur Björnsdóttir ætlar strax að „fara fram á endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins“. Miðflokkurinn vill hverfa frá hugmyndum um borgarlínu og innleiða ódýrari uppfærslu á leiðakerfi Strætó.

Könnun Gallups var gerð 11. til 15. maí og 3.587 manns 18 ára eða eldri með lögheimili í Reykjavík. Þátttökuhlutfall var 41,3%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Stjórnmálafræðingur: Augljóst að miðjan sé að gefa eftir
Stjórnmál

Stjórn­mála­fræð­ing­ur: Aug­ljóst að miðj­an sé að gefa eft­ir

Stjórn­mála­fræð­ing­ur seg­ir miðj­una í ís­lensk­um stjórn­mál­um vera að gefa eft­ir. Mun­ar þar mestu um veik­ari stöðu Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem sýn­ir þó hraust­leika­merki í ný­af­stöðn­um sveit­ar­stjórn­ars­kosn­ing­um. Lilja Dögg Al­freðs­dótt­ir, formað­ur flokks­ins, seg­ir nið­ur­stöð­una eina þá bestu sem flokk­ur­inn hef­ur feng­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Mest lesið

Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
4
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár