Hvað myndi borgarstjórn til vinstri þýða fyrir borgarbúa?

Heim­ildin hefur greint áherslu mögu­legra meiri­hluta­sam­starfa hjá Reykja­vík­ur­borg. Vinstri flokk­arnir leggja áherslu á vist­vænan sam­göngu­máta og öfl­ugt félags­legt kerfi og stuðn­ing.

Hvað myndi borgarstjórn til vinstri þýða fyrir borgarbúa?
Sanna og Einar Ef það á að mynda meiri­hluta til vinstri, verða Sam­fylk­ingin og Vinstrið að ná saman. Mynd: Golli

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur lýst yfir áhuga á að vinna með Viðreisn og Fram­sókn­ar­flokknum eftir kosn­ingar. Framsókn hefur úti­lokað sam­starf með Sam­fylk­ing­unni og bæði Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telja Sam­fylk­ing­una ekki væn­leg­asta kost­inn í meiri­hluta­sam­starf.

Af þessu leiðir að kostir Sam­fylk­ing­ar­innar þrengj­ast, en flokk­ur­inn gæti þó átt í sam­starfi við Vinstrið, Sós­í­alista, nái þeir kjöri og Pírata, sem eru ekki öruggir inni í borg­ar­stjórn sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum. Heim­ildin tók saman grein­ingu þar sem skoðað er hvað meiri­hluta­sam­starfið gæti þýtt fyrir borg­ar­búa og áherslur slíkra borg­ar­stjórna.

Samgöngur

Þegar litið er til sam­gangna má sjá að Sam­fylk­ingin styður áfram­hald­andi upp­bygg­ingu Borg­ar­línu, hún vill efla almenn­ings­sam­göngur og að borgin sé hjóla- og göngu­vænni en nú er. Þá er lögð áhersla á lofts­lags­mark­mið og minni bíla­um­ferð í þétt­býli. Þetta rímar vel við áherslur Vinstr­is­ins, sem vill skýr­ari áherslu á vist­vænni sam­göngur.

Öflug frumraunSilja Sóley Birg­is­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks Íslands, hefur vakið …
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár