Án þéttingarstefnunnar væru „7.000 aukabílar í Ártúnsbrekkunni“

Björg Magnús­dótt­ir, odd­viti Við­reisn­ar, sagði ungt fólk ekki hafa efni á að búa í Reykja­vík og kall­aði eft­ir meiri hringrás á hús­næð­is­mark­aði í kapp­ræð­um Heim­ild­ar­inn­ar. Tek­ist var á um þétt­ing­ar­stefn­una, sem Pét­ur Marteins­son sagði að hefði kom­ið í veg fyr­ir að sjö þús­und fleiri bíl­ar væru í Ár­túns­brekku á hverj­um degi.

Án þéttingarstefnunnar væru „7.000 aukabílar í Ártúnsbrekkunni“
Heitar umræður Framboðin í borginni hafa mjög ólíka sýn á hvernig eigi að leya húsnæðisvandann. Mynd: Golli

Skipulags og húsnæðismál urðu að einni heitustu kartöflu kappræðna oddvita í Reykjavík þegar rætt var um húsnæðisverð, þéttingu byggðar, lóðaskort og hvort borgin ætti sjálf að koma að húsnæðisuppbyggingu.

Umræðan í heildÁskrifendur geta horft á umræður um húsnæðis- og skipulagsmál í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Segir markaðinn ekki leysa vandann

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, sagði að Reykjavík ætti að auka framboð af húsnæði hvort sem fólk vildi leigja eða kaupa. Hún sagði að læra þyrfti af því að verkamannabústaðakerfið hefði verið lagt niður og að Reykjavíkurborg ætti að taka stærri skref í að útvega íbúum húsnæði.

„Markaðurinn hefur ekki náð að leysa þennan vanda, mun aldrei ná að útvega okkur öllum heimili af því það er ekki markmið hans,“ sagði Sanna. Hún sagði húsnæði grundvallarmál í lífi fólks og gagnrýndi að fólk þyrfti að greiða stóran hluta ráðstöfunartekna í leigu eða flytja sífellt milli hverfa. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?
Greining

Hver fékk hvað við samn­inga­borð­ið í Reykja­vík?

Lang­flest lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni koma frá Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Við­reisn kem­ur við sögu á völd­um svið­um, einkum hús­næð­is- og skipu­lags­mál­um, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist minnst sýni­leg­ur. Nokk­ur lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er ekki að finna hjá nein­um flokk­anna þriggja, einkum þau sem snúa að smá­at­rið­um í rekstri borg­ar­inn­ar.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
4
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
5
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár