Trump fékk aðvörun en ekkert faðmlag frá Xi

Forseti Kína var­aði Banda­ríkja­for­seta við afskiptum og benti á gildru Þúkýdídesar, sem spáir fyrir um stríð milli stór­veld­anna.

Trump fékk aðvörun en ekkert faðmlag frá Xi
Handa­band Xi Jinping, for­seti Kína, og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, takast í hendur á rík­is­veislu í Alþýðu­höll­inni í Peking þann 14. maí 2026. Mynd: Brendan SMIALOWSKI / AFP

Xi Jinping, for­seti Kína, og Donald Trump, kollegi hans í Banda­ríkj­unum, hitt­ust í Peking í dag til að ræða mik­il­væg mál, þar á meðal stríðið í Íran, Úkraínu og efna­hags­sam­vinnu.

Fyrir utan langan lista flók­inna dag­skrár­liða eru hér fimm aðrir lyk­il­punktar frá fyrsta degi leið­toga­fund­ar­ins:

Einhliða vinátta?

Trump hrós­aði Xi í hástert þegar við­ræður hófust í hinni risa­stóru Alþýðu­höll og sagði: „Það er heiður að vera vinur þinn“.

„Þú og ég höfum þekkst lengi ... Við höfum átt frá­bært sam­band, okkur hefur komið vel saman þegar erf­ið­leikar hafa steðjað að, við höfum leyst úr þeim,“ sagði Trump við Xi.

„Ég hringdi í þig og þú hringdir í mig.“

Xi hefur áður tekið undir lýs­ingu Trumps á sam­bandi þeirra að hluta og talað um „per­sónu­lega vin­áttu“.

En í dag gekk kín­verski leið­tog­inn ekki svo langt að nota það orða­lag, heldur sagði hann að löndin tvö „ættu að vera sam­starfs­að­ilar, ekki keppi­nautar“.

Sá sem Xi hefur sjálfur lýst sem „besta vini“ sínum á alþjóða­vett­vangi er Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti.

Og hann er óspar á orðið og talar oft um „vin­áttu“ við mörg lönd, þar á meðal Norður-Kóreu, Pakistan og Frakk­land.

Handaband, ekki faðmlag

Í færslu á sam­fé­lags­miðlum um miðjan apríl spáði Trump því að Xi myndi veita honum „stórt og feitt faðm­lag“ þegar hann kæmi til Peking.

Ummælin voru dæmi­gerð fyrir oft skraut­lega og óhefta fram­komu Trumps á alþjóða­vett­vangi – í algjörri and­stöðu við yfir­veg­aðan og orð­varan karakter Xi.

Þegar kom að fundum þeirra fékk Trump ákveðið handa­band í stað þess hlýja faðm­lags sem hann hafði von­ast eftir.

Handa­bandið stóð yfir í meira en 10 sek­úndur og Trump klapp­aði Xi nokkrum sinnum á hand­legg­inn.

Þúkýdídesargildran

Í ræðum sínum og á fundum með erlendum leið­togum vísar Xi oft í klass­ískar speki eða ljóð frá Kína til forna.

Í dag kaus Xi hins vegar að líkja sam­bandi Banda­ríkj­anna og Kína við „Þúkýdídes­ar­gildr­una“, stjórn­mála­hug­tak sem banda­rískur fræði­maður bjó til og byggir á frá­sögn forn­gríska sagn­fræð­ings­ins Þúkýdídesar af Pelóps­skaga­stríð­inu.

Hugtakið vísar til til­hneig­ingar til stríðs þegar rísandi stór­veldi ógnar stöðu rót­gró­ins stór­veldis.

„Geta Kína og Banda­ríkin kom­ist hjá hinni svoköll­uðu „Þúkýdídes­ar­gildru“ og skapað nýtt for­dæmi fyrir sam­skipti stór­velda?“ spurði Xi.

Svarið við þeirri spurn­ingu, bætti Xi við, verður að vera „samið í sam­ein­ingu“ af leið­tog­unum tveimur.

Á fundi með Joe Biden, for­vera Trumps, árið 2024 sagði hann að Þúkýdídes­ar­gildran „væri ekki sögu­lega óhjá­kvæmi­leg“.

Blótsyrði og troðningur

Spenna mynd­að­ist í bak­grunn­inum milli banda­rískra fjöl­miðla á ferða­lagi og kín­versks örygg­is­starfs­fólks og emb­ætt­is­manna.

Frétta­menn tróð­ust um til að ná myndum í Alþýðu­höll­inni þegar Trump og Xi bjuggu sig undir að setj­ast niður og eitt blóts­yrðum hlaðið upp­hróp náð­ist á upp­töku.

Í bak­grunni má heyra kín­verskt örygg­is­starfs­fólk segja frétta­mönnum að færa sig aftar.

Síðar, þegar leið­tog­arnir heim­sóttu hið sögu­lega Himnahof, var banda­rískum fjöl­miðlum seinkað um nærri hálf­tíma eftir að kín­verskir örygg­is­verðir neit­uðu í fyrstu að leyfa leyni­þjón­ustu­manni að koma inn með vopn sitt.

Kín­verskir emb­ætt­is­menn komu síðan í veg fyrir að banda­rískt starfs­fólk og frétta­menn gætu farið og sleg­ist í för með bíla­lest­inni, áður en þeim var loks hleypt út.

Á upp­töku af atvik­inu má heyra Banda­ríkja­mann segja við kín­verskt starfs­fólk: „Þið hafið verið hræði­legir gest­gjafar“.

Hæðst að Trump

Kín­verskir sam­fé­lags­miðlar, sem gjarnan eru rit­skoð­aðir af rík­inu, log­uðu af spaugi­legum færslum í til­efni heim­sókn­ar­innar.

Margir grín­uð­ust með að Trump gæti notið „Brjálaðs fimmtu­dags“ – vin­sællar her­ferðar skyndi­bita­keðj­unnar KFC í Kína sem felur í sér afslátt af mat á hverjum fimmtu­degi – og sumir not­uðu gervi­greind til að búa til myndir af honum að gæða sér á steiktum kjúklingi.

Myllu­merki tengd ferð­inni voru áber­andi allan dag­inn og eitt þeirra, sem tengd­ist heim­sókn­inni í Himna­hofið, hafði fengið yfir 98 millj­ónir áhorfa á sam­fé­lags­miðl­inum Weibo síð­degis í dag.

Í sumum athuga­semdum var von­ast til þess að Trump myndi „skemmta sér vel“ í Kína, á meðan aðrir kenndu honum í gríni um steikj­andi hit­ann í Peking.

Athuga­semda­höf­undar voru næstum jafn spenntir fyrir nær­veru Jensen Huang, for­stjóra Nvidia, og Elon Musk, yfir­manns Tesla, sem voru hluti af banda­rísku við­skipta­sendi­nefnd­inni sem fylgdi með, og tengt myllu­merki á Weibo náði yfir 52 millj­ónum áhorfa.

Myndbönd af Musk að taka mynd­bönd á sím­ann sinn á tröppum Alþýðu­hall­ar­innar miklu vöktu einnig athygli.

„Þetta lands­lag er ólíkt öllu sem þú sérð í Ameríku,“ sagði einn not­andi.

„Lítur út eins og ein­hver sem hefur aldrei séð heim­inn,“ skrif­aði annar.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu