Oddviti Vinstrisins veit ekki enn hvort hann sé skráður í Sósíalista

Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, odd­viti Vinst­ris­ins, hef­ur ekki feng­ið svör um skrán­ingu sína í Sósí­al­ista­flokk­inn. Upp­gjör átti sér stað í odd­vita­spjalli Press­unn­ar.

Silja og Sanna Leiðtogar á vinstri vængnum tókust á.

„Ég hef ekki sagt mig úr Sósíalistum en ég hef ekki heldur fengið svar hvort ég sé skráð í flokkinn,“ sagði Sanna Magdalena Mörtudóttir í Oddvitaspjalli Pressunnar á vegum Heimildarinnar sem var haldið í Tjarnarbíói í gærkvöldi. Þetta var fyrsta kvöldið af þremur í umræðuröð Heimildarinnar.

Oddvitarnir á vinstri vængnum útilokuðu ekki samstarf þrátt fyrir haðrvítug átök í kringum Sönnu sem yfirgaf Sósíalista á síðasta ári.

Spurð hvort Sanna vissi ekki hvort hún væri í Sósíalistum svaraði Sanna því til að hún hefði sent fyrirspurn á flokkinn. „Ég hef ekki fengið svar. Þetta er orðið mjög persónulegt. En ég auðvitað einblíni á framtíðina, hvernig við vinnum sem best fyrir borgarbúa. Við erum núna tvær hreyfingar sem eru að vinna saman í vinstrinu og manni sýnist íbúar vera að taka jákvætt í það að við séum að einblína á það hvað sameinar okkur,“ sagði hún.

Vinstrið flutt inn í gamla húsnæði …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LDA
    Lilja Dögg Arnþórsdóttir skrifaði
    Og hvað með það? Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar er skráð í marga flokka.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
2
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.
„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
4
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.
Leiðtogi Norður-Kóreu ítrekar stuðning við „heilagt stríð“ Rússa
6
ErlentÚkraínustríðið

Leið­togi Norð­ur-Kór­eu ít­rek­ar stuðn­ing við „heil­agt stríð“ Rússa

Rúss­nesk­ir emb­ætt­is­menn heim­sækja Norð­ur-Kór­eu. Á fundi með varn­ar­mála­ráð­herr­an­um hét Kim Jong-un áfram­hald­andi stuðn­ingi í stríð­inu við Úkraínu. Flug­eld­um var skot­ið upp og lát­inna her­manna minnst fyr­ir hetju­dáð. Er því hald­ið fram að þeim hafi ver­ið fyr­ir­skip­að að svipta sig lífi frek­ar en að nást á lífi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár