„Miklar líkur“ á að gos geti komið upp undir Bláa lóninu

Nýtt hættumat Veð­ur­stof­unn­ar set­ur Bláa lón­ið á hættu­svæði til langs tíma, en þar er þó full starf­semi.

„Miklar líkur“ á að gos geti komið upp undir Bláa lóninu

Einn frægasti staður Íslands, Bláa lónið, liggur undir svæði sem nýtt hættumat Veðurstofu Íslands skilgreinir með „miklar líkur“ á gosupptökum.

Skammt austur af lóninu er síðan svæði þar sem teljast vera „mjög miklar“ líkur á gosupptökum, enda hefur gosið níu sinnum á því svæði frá nóvember 2023. 

Kvikumagn undir Svartsengi hefur aldrei verið meira frá upphafi eldgosahrinunnar á Sundhnúkagígaröðinni, skammt austan Bláa lónsins. „Kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni [eru] áfram líklegasta sviðsmyndin,“ segir í gildandi hættumati Veðurstofu Íslands frá 31. mars.

Í og við Bláa lónið eru rekin tvö hótel og baðstaður. The Retreat Hotel er margverðlaunað 60 herbergja hótel við Bláa Lónið umkringt einkalóni. Á Silica hóteli eru síðan 35 herbergi og einkalón fyrir hótelgesti. Hótelið er í 10 mínúta göngufjarlægð frá Bláa Lóninu. 

Í síðasta gosi á svæðinu, þann 16. júlí í fyrra, þurftu 200 manns að yfirgefa hótelin, en þar sem gosið hófst um miðnætti var ekki almenn opnun í Bláa lóninu sjálfu.

Gos nálægt Bláa lóninu„Mjög miklar líkur“ teljast á gosupptökum skammt austur af Bláa lóninu, allt suður að fjallinu Þorbirni ofan Grindavíkur.

Full starfsemi hefur verið í Bláa lóninu þrátt fyrir að eldgos hafi orðið austan við lónið og hraun flætt að því síðustu tvö og hálft ár og þótt líklegt sé talið að eldgos sé í nánd á Sundhnúkagígaröðinni skammt frá, en það byggir á því að sprunguröðin liggur um þremur til fimm kílómetrum austar en Bláa lónið í stefnuna suðvestur-norðaustur.

Um 350 bílastæði við Bláa lónið lentu undir hraunflæði 2024, en varnargarður verndar byggingar og lónið sjálft. Kæmi til gosupptaka við lónið eða í því er hins vegar ljóst að varnargarðar myndu ekki tryggja aðstæður og líklegra að sprengingar yrðu með viðkomu hrauns við vatn.

Þrátt fyrir að hættumat Veðurstofunnar geri ráð fyrir mikilli hættu á eldgosi til langs tíma á svæði Bláa lónsins, er núgildandi hættustig á Bláa lóninu sjálfu annað en í næsta nágrenni við það, eða „lítil“.

Lón skilgreint utan hættuBláa lónið er undanskilið frá hættusvæði samkvæmt mati Veðurstofu Íslands.

Viðvörunarstig eldfjalla á Sundhnúkagígaröðinni stendur núna í 2, sem merkir „töluvert aukna virkni“, en fari það í 3 er „eldgos í gangi eða yfirvofandi“. Fyrirvari fyrir eldgos á svæðinu hafa verið frá um hálftíma upp í 90 mínútur.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldsumbrot á Reykjanesskaga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
3
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár