„Ef Íslendingar kjósa að halda áfram erum við staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum um forgangsmál Íslands,“ sagði Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, eftir fund sinn með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Brussel í dag.
Þar undirritaði Þorgerður Katrín varnar- og öryggissamning Íslands við Evrópusambandið og ræddi síðan mögulegar aðildarviðræður í kjölfar hugsanlegrar samþykktar áframhalds þeirra í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst næstkomandi.
Þá sagðist Marta hafa rætt „sérstakar aðstæður Íslands“ við Þorgerði Katrínu, eins og hún lýsti því á samfélagsmiðlinum X.
Við annan tón kvað í færslum Mörtu Kos, sem er frá Slóveníu, þegar hún hitti utanríkisráðherra Serbíu og svo Svartfjallalands í dag og í gær.
Hún kvaðst hafa gert athugasemdir við aðgerðir til að draga úr sjálfstæði dómstóla í Serbíu.
Þá sagði hún langt í land með aðildarviðræður Svartfjallalands við ESB, þótt það væri lengst komið allra umsóknarríkja.
„Svartfjallaland er það umsóknarríki sem lengst er komið á leið sinni til inngöngu í ESB. Í dag lokuðum við enn einum samningskaflanum og eru þeir þá orðnir 14 talsins. Enn er þó mikið verk óunnið. Nú er rétti tíminn til að halda áfram umbótum með áherslu á réttarríkið,“ sagði hún.















































Athugasemdir