Snorri segir húsnæði verða jafndýrt þótt vextir lækki

Umræða um Evr­ópu­sam­bandið er hafin á Alþingi. Vara­for­maður Mið­flokks­ins hóf hana á FM-957 og gaf til kynna að það skipti ungt fólk ekki máli hvaða vextir væru á hús­næð­is­lánum. Hann segir and­stæð­inga atkvæða­greiðslu um ESB safna kröftum.

Snorri segir húsnæði verða jafndýrt þótt vextir lækki
Snorri Másson Vara­for­maður Mið­flokks­ins segir bar­átt­una um Evr­ópu­sam­bandið vera hafna. Mynd: Golli

Baráttan um Evr­ópu­sam­band­inu hefst á Alþingi í dag með umræðum um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort hefja eigi að nýju aðild­ar­við­ræður Íslands að sam­band­inu.

Snorri Másson, vara­for­maður Mið­flokks­ins, sem leggst gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild ásamt Sjálf­stæð­is­flokki, Fram­sókn­ar­flokki og Flokki fólks­ins, hóf umræð­una í þætt­inum Brennsl­unni á FM-957 í morgun. Þar var Snorri spurður hvort ungt fólk „gæti ekki allt í einu farið út frá mömmu og pabba og keypt sér hús­næði á frá­bæru verði“ ef Ísland yrði komið inn í Evr­ópu­sam­bandið eftir tvö ár.

Talsmenn aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu segja að aðild og hugs­an­leg upp­taka evru sé meðal ann­ars lík­leg til þess að lækka vaxta­kostnað heim­ila. Vextir á hús­næð­is­lán á Íslandi eru frá 8 pró­sentum, en í Evr­ópu­sam­band­inu eru algengir vextir hús­næð­is­lána frá 3,2% til 3,5%, sam­kvæmt Seðla­banka Evrópu.

„Nei, alls, alls ekki,“ svar­aði Snorri og gaf til kynna að hús­næð­is­lána­vextir breyttu ekki getu ungs fólks til að kaupa fast­eignir. 

„Við erum í kap­ít­al­ísku hag­kerfi með lög­mál um fram­boð og eft­ir­spurn. Það yrðu jafn­margir hérna að berj­ast um jafnfá hús. Þar með eru þau jafn­dýr og þar með þarftu að taka jafn hátt lán til þess að fjár­magna kaupin á þessu. Og það er grunn­ur­inn,“ sagði Snorri og taldi umræðu um vexti fáfengi­lega í þessu sam­hengi.

„Við erum alltaf að tala um lán og vexti og lána­form. Á end­anum er bara hús­næðið það dýrt að það er erfitt að kaupa það. Við getum enda­laust rætt um lánið sjálft, en ef hús­næðið er bara það dýrt vegna slíks þrýst­ings á mark­aðnum þá mun það áfram vera dýrt, alveg óháð því hvaða vaxta­fyr­ir­komu­lag við erum með.“

Andstæðingar ná vopnum sínum

Umræða um mögu­lega þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um við­ræður við ESB hefst í dag og sagði Snorri að hlust­endur FM-957 myndu „ekki kom­ast hjá því að verða varir við mikla umræðu um þetta mál á næstu mán­uðum“. Þó sagð­ist hann ekki hafa trú á því að rétt sé að verja miklum kröftum í að ræða málið.

„Ég er í mikið af sam­tölum við alls konar fólk úr alls konar áttum sem núna kannski bara getum við sagt að safna kröftum og ná vopnum sínum og þessi bar­átta er í ein­hverjum skiln­ingi bar­átta svo­lítið að hefj­ast núna í dag. Í þing­inu erum við að fara núna að fá þetta á dag­skrá, þessa þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að fara í þessa atkvæða­greiðslu.“

Snorri boð­aði heið­ar­lega umræðu um málið. „Við berum ákveðna ábyrgð sem stjórn­mála­menn að veita bara heið­ar­legar upp­lýs­ingar. Ég ætla ekki að láta eins og það sé ekki hægt að ræða um kosti og galla þarna.“

Brexit erfitt

Spurður hvort ekki væri hægt að segja Ísland úr Evr­ópu­sam­band­inu, ef það þró­að­ist til verri vegar, sagði hann að Brexit hefði verið mjög erfitt fyrir Breta, sem væru „enn að bíta úr nál­inni með það“ og því væri ekki auð­sótt að yfir­gefa sam­bandið þegar í það væri komið. Hann sagði verk­efni Evr­ópu­sam­bands­ins „snú­ast um að stækka“.

„Það eru mörg önnur ríki sem gætu farið þarna inn sem eru í miklu verri stöðu þannig að margir sem eru að tala fyrir stækkun sam­bands­ins segja: Heyrðu, við ætlum að fá hérna nokkur ríki inn. Sum þeirra verða smá vesen. En við fáum Ísland með og það er flott. Það er svona ágætur pakki. Ísland gerir það skárra, vegna þess að það er mjög eft­ir­sókn­ar­vert að fá Ísland inn. Við erum alveg með mjög sterkt efna­hags­líf miðað við margt annað sem er að ger­ast þarna.“

Grundvallarbreyting

Snorri er andsnú­inn aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu og segir sam­band Íslands við Evrópu nægi­lega sterkt. Ísland inn­leiði þegar megnið af reglu­verki sam­bands­ins í gegnum EES-samn­ing­inn. Hann sagði aðra hags­muni gilda í Evr­ópu­sam­band­inu. „Þannig að ef þetta lendir hér þá erum við bara að verða fyrir skað­anum, þó að margir kostir séu við EES auð­vitað.“

Hann sagði þó að alger grund­vall­ar­breyt­ing yrði á stöðu Íslands við að ganga í Evr­ópu­sam­bandið, þó svo að Íslend­ingar inn­leiði nú þegar megnið af mis­heppi­legu reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins. „Það er algjör grund­vall­ar­breyt­ing frá því sem við höfum verið að gera hérna á Íslandi, sem er bara sjálf­stætt þjóð­ríki, með íslenska þjóð sem heldur utan um sína eigin hags­muni,“ sagði hann. „Við erum lítil. Það er margt skrítið við það. En það er samt algert krafta­verk sem hefur gerst hérna á síð­ustu 100 eða 150 árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    enn og aftur Snorri þarf að byrja aftur í leikskóla og áfram
    0
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    enn og aftur Snorri þarf að byrja aftur í leikskóla og áfram
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Auðvitað skipta vextir engu máli þegar maður er innundir hjá Turningpoint USA eða Heritage Foundation, það er ekki flókið að skilja það.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­legur ávinn­ingur „blasir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, fer yfir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætlað er að nettófram­lag Íslands gæti verið á bil­inu sex til 15 millj­arðar á ári, en pró­fess­or­inn telur efna­hags­legan ávinn­ing meiri en útgjöldin.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár