Und­ir­skrift í dag Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Kaja Kallas utan­rík­is­mála­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins að lok­inni und­ir­skrift. Mynd: AFP

Ísland og ESB innsigla varnarsamstarf

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Kaja Kallas und­ir­rit­uðu samn­ing í dag.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra und­ir­rit­aði í dag í Brussel sam­starfs­samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið um öryggis- og varn­ar­mál, ásamt Kaju Kallas, utan­rík­is­mála­stjóra sam­bands­ins.

Í umfjöllun erlendra fjöl­miðla er und­ir­rit­unin sett í sam­hengi við hót­anir Banda­ríkj­anna um að yfir­taka Grænland, tví­hliða varn­ar­samn­ing Íslands við Banda­ríkin og vænt­an­lega þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að hefja aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið á ný.

Frá því að Donald Trump tók við emb­ætti Banda­ríkja­for­seta á ný hafa yfir­lýs­ingar hans varpað vafa á hvort Banda­ríkin muni virða fimmtu grein Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans, sem kveður á um að árás á einn aðila NATO sé árás á alla, og svo hvort þau muni virða full­veldi banda­lags­ríkja. Trump hefur sagst vera óbund­inn af alþjóða­lögum og treysta á eigið sið­ferði. Yfir­stand­andi stríð Banda­ríkj­anna og Ísraels gegn Íran, hand­taka á þjóð­ar­leið­toga Venes­ú­ela, hót­anir um yfir­töku á Grænland og Kúbu og aftökur á grun­uðum fíkni­efna­smygl­urum á hafi úti end­ur­spegla þá áherslu.

Í sam­starfs­samn­ingnum milli Íslands og ESB er und­ir­strikuð önnur nálgun í alþjóða­málum.

„ESB og Ísland halda alþjóða­lög í heiðri og standa saman um að verja og styrkja alþjóða­reglur, í sam­ræmi við meg­in­reglur sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Grund­vall­ar­lýð­ræð­is­gildi sem byggj­ast á virð­ingu fyrir mann­legri reisn, frelsi, jafn­rétti, rétt­ar­rík­inu og mann­rétt­indum eru áfram und­ir­staða sam­starfs ESB og Íslands,“ segir í samn­ingnum.

„Í því óstöðuga örygg­is­um­hverfi sem nú ríkir er þessi mik­il­vægi áfangi fyrir ESB og Ísland lyfti­stöng fyrir tengsl sem rista nú þegar djúpt,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá Evr­ópu­sam­band­inu í dag.

Þor­gerður Katrín sagði í yfir­lýs­ingu Ísland enn treysta á varn­ar­samn­ing­inn við Banda­ríkin, líkt og Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt. „Á þeim miklu óvissu­tímum sem við nú lifum á alþjóða­vett­vangi er þessi  sam­starfs­yf­ir­lýs­ing í takt við okkar áherslur um að styrkja og efla sam­starf á sviði öryggis- og varn­ar­mála við okkar helstu banda­lags­ríki og sam­starfs­að­ila. Við höfum nýlega und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingar við Þýska­land og Finnland í varn­ar­málum og nú styrkjum við tengslin við Evr­ópu­sam­bandið. Aðild okkar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin eru eftir sem áður tvær meg­in­stoðir okkar varna,“ segir Þor­gerður Katrín.

Samn­ing­ur­inn kveður á um árlegt sér­stakt öryggis- og varn­ar­sam­tal á vett­vangi emb­ætt­is­manna, mögu­leg boð Íslands á fundi á háu stigi hjá ESB „þegar við á“, auk sér­tæks sam­ráðs og upp­lýs­inga­skipta. Einnig er sér­stak­lega tekið fram að skipti á trún­að­ar­upp­lýs­ingum fari fram innan gild­andi örygg­is­ramma.

Hluti samn­ings­ins snýr að skuld­bind­ingu til að styðja Úkraínu og við­halda þrýst­ingi á árás­ar­að­ila lands­ins, sem er Rússland. Þar segir að ESB og Ísland ætli að efla lang­tíma­sam­starf sitt um stuðn­ing við Úkraínu, vinna að rétt­látum og var­an­legum friði á grund­velli alþjóða­laga, halda áfram fjár­hags­að­stoð og sam­vinnu um borg­ara­legan stuðn­ing og end­ur­upp­bygg­ingu, og sam­ræma betur vinnu um við­ur­lög gegn þeim sem bera ábyrgð á árás­ar­stríð­inu. Einnig á að kanna sam­vinnu innan verk­efna ESB sem styðja Úkraínu.

Samn­ing­ur­inn und­ir­strikar sér­stakt stefnu­mark­andi mik­il­vægi Norð­ur­slóða og Norður-Atl­ants­hafs. Þar er kveðið á um aukið reglu­bundið sam­ráð um stöðu mála á svæð­inu, meðal ann­ars um við­náms­þrótt, borg­ara­legan við­búnað, vernd mik­il­vægra inn­viða, þar á meðal mik­il­vægra sigl­inga- og haf­inn­viða og neð­an­sjáv­ar­inn­viða, ásamt netógnum, blend­ingsógnum og tengslum lofts­lags og öryggis. Þá er einnig stefnt að auknu sam­starfi um sigl­inga­ör­yggi og vernd sigl­inga­frelsis og flug­frelsis. Loks er kveðið á um sam­starf um að kynja­jafn­rétti sé for­gangs­mál út frá stjórn­málum og örygg­is­málum.

Meðal ríkja sem Evr­ópu­sam­andið hefur nýverið gert örygg­is­samn­ing við eru Albanía, Bretland, Japan, Kanada, Moldóva, Norður-Makedónía, Noregur og Suður-Kórea.

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­hald aðild­ar­við­ræðna Íslands við Evr­ópu­sam­bands­ins er fyr­ir­huguð 29. ágúst næst­kom­andi, en þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis liggur fyrir Alþingi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­legur ávinn­ingur „blasir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, fer yfir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætlað er að nettófram­lag Íslands gæti verið á bil­inu sex til 15 millj­arðar á ári, en pró­fess­or­inn telur efna­hags­legan ávinn­ing meiri en útgjöldin.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár