Stækkunarstjóri ætlar að flýta viðræðum við Ísland

Stækk­un­ar­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins var jákvæður á fram­gang mögu­legra aðild­ar­við­ræðna við Ísland.

Stækkunarstjóri ætlar að flýta viðræðum við Ísland
Brussel í dag Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og stækk­un­ar­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, Marta Kos, takast í hendur. Mynd: Marta Kos / X

„Ef Íslend­ingar kjósa að halda áfram erum við stað­ráðin í að flýta fyrir samn­inga­við­ræðum um for­gangs­mál Íslands,“ sagði Marta Kos, stækk­un­ar­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, eftir fund sinn með Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra í Brussel í dag. 

Þar und­ir­rit­aði Þor­gerður Katrín varnar- og örygg­is­samn­ing Íslands við Evr­ópu­sam­bandið og ræddi síðan mögu­legar aðild­ar­við­ræður í kjöl­far hugs­an­legrar sam­þykktar áfram­halds þeirra í fyr­ir­hug­aðri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 29. ágúst næst­kom­andi.

Þá sagð­ist Marta hafa rætt „sér­stakar aðstæður Íslands“ við Þorgerði Katrínu, eins og hún lýsti því á sam­fé­lags­miðl­inum X.

Við annan tón kvað í færslum Mörtu Kos, sem er frá Slóveníu, þegar hún hitti utan­rík­is­ráð­herra Serbíu og svo Svart­fjalla­lands í dag og í gær. 

Hún kvaðst hafa gert athuga­semdir við aðgerðir til að draga úr sjálf­stæði dóm­stóla í Serbíu. 

Þá sagði hún langt í land með aðild­ar­við­ræður Svart­fjalla­lands við ESB, þótt það væri lengst komið allra umsókn­ar­ríkja. 

„Svart­fjalla­land er það umsókn­ar­ríki sem lengst er komið á leið sinni til inn­göngu í ESB. Í dag lok­uðum við enn einum samn­ings­kafl­anum og eru þeir þá orðnir 14 tals­ins. Enn er þó mikið verk óunnið. Nú er rétti tím­inn til að halda áfram umbótum með áherslu á rétt­ar­ríkið,“ sagði hún. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    In principle it might make sense to join the EU. But to join when the EU is faced by a near existential crisis given the current leadership in Brussels and various capitals does not make sense. There is no coherent strategy of the EU and within the EU (as well as in NATO) in response to the US's present and irrational geopolitics.
    Those who seek EU membership because they aim at replacing the famous/infamous NATO Article 5 with Article 42, Paragraph 7 of the EU Contract will soon realize that the EU will not survive betting on security against Russia instead of with Russia. After all Russia is geographically and demographically the largest European country, and Western Europe is only a small part of Eurasia, and in a minority position against the BRICS+ and the Global South.
    -2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þetta segir gervigreindin mér um hvað við þurfum að innleiða vegna EES samningsins og hvað stendur út af verði sótt um aðild að ESB. Það eru, sem sagt, sjávarútvegsmál sem fyrst og fremst þarf að semja um, og síðan hugsanlega eitthvað varðandi landbúnað þar og erum ekki að keppa við neina aðra. Sauðfjárrækt þarf enga vernd, við erum þeir einu, sem framleiðum meira en við getum torgað. Mjólkurframleiðsla nýtur verulegrar fjarlægðarverndar, en þarf væntanlega einhverja vernd. Annað er það ekki. Þess vegna er rétt, sem fram hefur komið, að við þurfum að innleiða ESB reglur á færibandi hvort sem er.

    🔹 Hvað fellur undir EES?
    Í gegnum Evrópska efnahagssvæðið (EES) tekur Ísland upp reglur sem snúa að innri markaði ESB, til dæmis:
    • Frjálsum vöruflutningum
    • Frjálsri þjónustu
    • Frjálsu flæði fjármagns
    • Frjálsri för fólks
    Einnig nær þetta til margra sviða eins og:
    • Samkeppnisreglna
    • Neytendaverndar
    • Umhverfismála
    • Vinnuréttar og öryggisstaðla
    ________________________________________
    🔹 Hvað fellur ekki undir?
    Ísland þarf ekki að innleiða reglur ESB um t.d.:
    • Landbúnaðarstefnu (CAP)
    • Sjávarútvegsstefnu (CFP)
    • Tollabandalag
    • Utanríkis- og varnarmál
    • Skattamál að stórum hluta
    ________________________________________
    🔹 Mikilvægt að skilja
    Þó hlutfallið sé „bara“ 20–30%, þá snúa þessar reglur að kjarna hagkerfisins. Þess vegna hafa þær mjög mikil áhrif á íslenskt samfélag og atvinnulíf.
    1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Þetta getur greindin sagt þér: ríkisábyrgð á innstæðutryggingum.
      Sem er löngu búið að hafna í BINDANDI þjóðaratkvæðagreiðslu.
      Gervigreindin hefur greinilega ekki vitneskju um þessar staðreyndir.
      Þess vegna veitir gervigreindin þér villandi svar.
      Því hún veit ekki að eina löglega svarið er NEI.
      Greindin veit aftur á móti rétta svarið.
      -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­legur ávinn­ingur „blasir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, fer yfir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætlað er að nettófram­lag Íslands gæti verið á bil­inu sex til 15 millj­arðar á ári, en pró­fess­or­inn telur efna­hags­legan ávinn­ing meiri en útgjöldin.

9 mín. lestur

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár