Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirritaði í dag í Brussel samstarfssamning við Evrópusambandið um öryggis- og varnarmál, ásamt Kaju Kallas, utanríkismálastjóra sambandsins.
Í umfjöllun erlendra fjölmiðla er undirritunin sett í samhengi við hótanir Bandaríkjanna um að yfirtaka Grænland, tvíhliða varnarsamning Íslands við Bandaríkin og væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.
Frá því að Donald Trump tók við embætti Bandaríkjaforseta á ný hafa yfirlýsingar hans varpað vafa á hvort Bandaríkin muni virða fimmtu grein Atlantshafssáttmálans, sem kveður á um að árás á einn aðila NATO sé árás á alla, og svo hvort þau muni virða fullveldi bandalagsríkja. Trump hefur sagst vera óbundinn af alþjóðalögum og treysta á eigið siðferði. Yfirstandandi stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran, handtaka á þjóðarleiðtoga Venesúela, hótanir um yfirtöku á Grænland og Kúbu og aftökur á grunuðum fíkniefnasmyglurum á hafi úti endurspegla þá áherslu.
Í samstarfssamningnum milli Íslands og ESB er undirstrikuð önnur nálgun í alþjóðamálum.
„ESB og Ísland halda alþjóðalög í heiðri og standa saman um að verja og styrkja alþjóðareglur, í samræmi við meginreglur sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Grundvallarlýðræðisgildi sem byggjast á virðingu fyrir mannlegri reisn, frelsi, jafnrétti, réttarríkinu og mannréttindum eru áfram undirstaða samstarfs ESB og Íslands,“ segir í samningnum.
„Í því óstöðuga öryggisumhverfi sem nú ríkir er þessi mikilvægi áfangi fyrir ESB og Ísland lyftistöng fyrir tengsl sem rista nú þegar djúpt,“ sagði í yfirlýsingu frá Evrópusambandinu í dag.
Þorgerður Katrín sagði í yfirlýsingu Ísland enn treysta á varnarsamninginn við Bandaríkin, líkt og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur sagt. „Á þeim miklu óvissutímum sem við nú lifum á alþjóðavettvangi er þessi samstarfsyfirlýsing í takt við okkar áherslur um að styrkja og efla samstarf á sviði öryggis- og varnarmála við okkar helstu bandalagsríki og samstarfsaðila. Við höfum nýlega undirritað viljayfirlýsingar við Þýskaland og Finnland í varnarmálum og nú styrkjum við tengslin við Evrópusambandið. Aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru eftir sem áður tvær meginstoðir okkar varna,“ segir Þorgerður Katrín.
Samningurinn kveður á um árlegt sérstakt öryggis- og varnarsamtal á vettvangi embættismanna, möguleg boð Íslands á fundi á háu stigi hjá ESB „þegar við á“, auk sértæks samráðs og upplýsingaskipta. Einnig er sérstaklega tekið fram að skipti á trúnaðarupplýsingum fari fram innan gildandi öryggisramma.
Hluti samningsins snýr að skuldbindingu til að styðja Úkraínu og viðhalda þrýstingi á árásaraðila landsins, sem er Rússland. Þar segir að ESB og Ísland ætli að efla langtímasamstarf sitt um stuðning við Úkraínu, vinna að réttlátum og varanlegum friði á grundvelli alþjóðalaga, halda áfram fjárhagsaðstoð og samvinnu um borgaralegan stuðning og enduruppbyggingu, og samræma betur vinnu um viðurlög gegn þeim sem bera ábyrgð á árásarstríðinu. Einnig á að kanna samvinnu innan verkefna ESB sem styðja Úkraínu.
Samningurinn undirstrikar sérstakt stefnumarkandi mikilvægi Norðurslóða og Norður-Atlantshafs. Þar er kveðið á um aukið reglubundið samráð um stöðu mála á svæðinu, meðal annars um viðnámsþrótt, borgaralegan viðbúnað, vernd mikilvægra innviða, þar á meðal mikilvægra siglinga- og hafinnviða og neðansjávarinnviða, ásamt netógnum, blendingsógnum og tengslum loftslags og öryggis. Þá er einnig stefnt að auknu samstarfi um siglingaöryggi og vernd siglingafrelsis og flugfrelsis. Loks er kveðið á um samstarf um að kynjajafnrétti sé forgangsmál út frá stjórnmálum og öryggismálum.
Meðal ríkja sem Evrópusamandið hefur nýverið gert öryggissamning við eru Albanía, Bretland, Japan, Kanada, Moldóva, Norður-Makedónía, Noregur og Suður-Kórea.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandsins er fyrirhuguð 29. ágúst næstkomandi, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Athugasemdir