Bandaríkjamönnum hugnast ekki innganga Íslands í ESB

Banda­rísk stjórn­völd eru ekki hrifin af því að Ísland gangi inn í ESB. Þá greinir norsk frétta­síða frá því að banda­rískur ráð­gjafi Nigel Farage hafi heim­sótt landið tví­vegis.

Bandaríkjamönnum hugnast ekki innganga Íslands í ESB
Donald Trump Forseti Banda­ríkj­anna er ekki hrif­inn af áformum Íslend­inga miðað við frétta­flutn­ing norsku frétta­síð­unnar Altinget. Mynd: AFP

Norska stjórn­mála­frétta­síðan Altinget.no heldur því fram í grein sem birt­ist á vef þeirra í dag að rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hafi hag af því að halda Íslandi fyrir utan Evr­ópu­sam­bandið. Þá er því haldið fram að banda­rískur ráð­gjafi Nigel Farage, leið­toga breska íhalds­flokks­ins Reform UK, hafi sótt Ísland heim tví­vegis á nýju ári.

Greint er frá því á norsku stjórn­mála­frétta­síð­unni að heim­ildir sem standi nærri til­von­andi sendi­herra Banda­ríkj­anna, að hann segi að Donald Trump vilji halda Íslandi fyrir utan ESB. Banda­ríkin líti þannig á að það myndi skar­ast á við varn­ar­hags­muni lands­ins að Ísland gangi inn í ESB auk þess sem það gæti veikt lít­il­lega við­skipta­hags­muni banda­rísku þjóð­ar­innar gagn­vart Íslandi. Í huga Banda­ríkj­anna séu við­skipta­hags­munir og varn­ar­hags­munir sam­ofnir að því er fram kemur á norsku frétta­síð­unni sem sér­hæfir sig í stjórn­mála­fréttum.

Ráðgjafi Nigels á Íslandi?

Í grein­inni er einnig tekið fram að Mið­flokk­ur­inn hafi verið á fundum með Repúblikana­flokknum …

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞH
    Þórður Hallgrímsson skrifaði
    Farage er formaður Reform UK, ekki UKIP
    1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Við þurfum minnstar áhyggjur að hafa af "upplýsingaóreiðu" erlendis frá um þetta málefni því hún er langmest frá ríkisstjórninni sjálfri og byrjaði strax á blaðamannafundinum á föstudaginn ásamt margþættum rangfærslum í "kynningarefni" sem var birt sama dag á vef stjórnarráðsins. Kannski er hreinlega engin vanþörf á óháðum upplýsingum erlendis frá til að leiðrétta þær.
    -20
    • PB
      Páll Bragason skrifaði
      Hvaðan ættu óháðar upplýsingar erlendis frá að koma?
      15
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár