Býðst að fá arðgreiðslur frá Brimi í evrum

Útgerð­ar­fé­lagið Brim hefur gert upp í evrum árum saman en nú hefur komið fram að hlut­hafar geta einnig fengið arð sinn greiddan í evrum. For­stjóri og stærsti eig­andi Brims hvatti til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og var­aði við hags­munum stjórn­mála­manna af því að halda í krón­una.

Býðst að fá arðgreiðslur frá Brimi í evrum
Guð­mundur Krist­jáns­son For­stjóri Brims segir íslenska stjórn­mála­menn ótt­ast evr­una. Mynd: mbl/Kristinn Magnússon

Hlut­hafar Brims, stærsta ein­staka útgerð­ar­fé­lags lands­ins, geta fengið arð­greiðslur sínar í evrum. Fyr­ir­tækið hefur gert upp í evrum um ára­bil.

Fiski­fréttir greindu fyrst frá þessu en þetta var til­kynnt í nið­ur­stöðum aðal­fundar Brims 19. mars síð­ast­lið­inn. Sagði stjórn­ar­for­maður Brims, Kristján Þ. Dav­íðs­son, við blaðið að þetta væri til þæg­inda­auka fyrir báða aðila enda þyrfti félagið þá ekki að breyta evrum í krónum til að borga hlut­höfum út arð í krónum sem þeir ætli síðan að skipta aftur yfir í evrur. Mun hlut­höfum hafa staðið þetta til boða síðan 2021.

„Hlut­höfum mun standa til boða að fá arð­greiðslu í evrum, sem mun byggja á ISK/EUR mið­gengi Seðla­banka Íslands eins og það er til­greint við lok dags, síð­asta dag fyrir arð­greiðslu, eða 29. apríl 2026,“ segir í nið­ur­stöð­unum. „Hlut­hafar sem hyggj­ast óska eftir arð­greiðslu í evrum skulu til­kynna félag­inu það fyrir lok dags 15. apríl 2026 á þar til gert …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Sammála Guðmundi.
    0
  • Haraldur Jonsson skrifaði
    Guðmundur sker sig úr með flest það sem snertir útgerð og fiskvinnslu. Veit hvað ahnn vill og þorir að taka ákvarðanir. Úrvalsmaður í alla staði. Það væri ýmislegt öðruvísi ef aðrir útgerðarmenn mundu einu sinni getað hugsað öðruvísi eða ekki bara um sjállfan sig.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu