Segir Bandaríkin geta gert fleiri árásir „bara til gamans“

Banda­ríkja­for­seti hafnar því að friður sé í nánd og reynir að fá önnur ríki til að verja olíu­flutn­inga á Persaflóa.

Segir Bandaríkin geta gert fleiri árásir „bara til gamans“
Donald Trump Ræðir við frétta­menn á her­stöð­inni Joint Base Andrews á Flórída um helg­ina. Mynd: AFP

Donald Trump sagði í gær­kvöldi að Banda­ríkin gætu gert fleiri árásir á mik­il­væga olíu­út­flutn­ings­mið­stöð Írans á Kharg-eyju í Persaflóa „bara til gam­ans“.

Hann hafn­aði því að friður væri í nánd, þótt hann hafi áður gefið það til kynna. Skilaboð for­set­ans hafa verið mót­sagna­kennd og stefna hans svipt­inga­söm gagn­vart Íran og stríð­inu sem Ísrael og Banda­ríkin hófu skyndi­lega gegn land­inu 28. febr­úar síð­ast­lið­inn.

„Skil­mál­arnir eru ekki nógu góðir ennþá,“ sagði Banda­ríkja­for­seti í sam­tali við NBC News. Þar hélt hann því fram að íranska stjórnin vildi gera samn­ing, þrátt fyrir að annað hafi komið fram opin­ber­lega frá stjórn­inni. Íran er nú sagt leitt af Mojtaba Khamenei, syni erkiklerks­ins Khameini sem drep­inn var í loft­árásum í upp­hafi stríðs­ins, ásamt eig­in­konu sinni og mörgum fleirum.

Trump efað­ist um það í við­tal­inu við NBC, án þess að nefna heim­ildir, að nýi æðsti leið­togi Írans, Mojtaba Khamenei, væri á lífi, en hann hefur ekki komið fram opin­ber­lega eða á mynd­bandi síðan stríðið hófst, þrátt fyrir að yfir­lýs­ingar hafi verið eign­aðar honum.

Eftir marga daga af mis­vísandi skila­boðum frá Hvíta hús­inu um hversu lengi það muni halda áfram stríðs­rekstri gegn Íran, full­yrti Trump að banda­rískar árásir hefðu „gjör­sam­lega eyði­lagt“ mestan hluta Kharg-eyju og sagði við frétta­stof­una að her­inn gæti gert árás á svæðið „nokkrum sinnum í við­bót bara til gam­ans“.

„Við höfum gjör­sam­lega lagt hana í rúst,“ sagði hann. „Nema, eins og þú veist, þá gerði ég ekk­ert sem tengd­ist raf­orku­lín­unum, því það tæki mörg ár að end­ur­byggja þær.“

Íran hafnar samningsvilja

Utan­rík­is­ráð­herr­ann Abbas Araghchi sagði Íran ekki hafa áhuga á við­ræðum við Banda­ríkin og hafn­aði þar með afstöðu Donalds Trump um að Íran vildi gera samn­ing til að binda enda á stríðið.

„Við erum stöðug og nógu sterk. Við erum aðeins að verja fólkið okkar,“ sagði Araghchi í við­tali við þátt­inn „Face The Nation“ á CBS sem sýndur var í dag.

„Við sjáum enga ástæðu til að ræða við Banda­ríkja­menn, því við vorum að tala við þá þegar þeir ákváðu að ráð­ast á okkur. Það er engin góð reynsla af því að tala við Banda­ríkja­menn.“

Hann hafn­aði yfir­lýs­ingum Trumps um afstöðu Írana.

„Við báðum aldrei um vopna­hlé og við höfum aldrei einu sinni beðið um samn­inga­við­ræður,“ sagði Araghchi.

Hann bætti við að Íran væri til­búið að ræða við lönd sem vilja semja um að valin olíu­skip fái að fara um hina mik­il­vægu útflutn­ings­leið Hor­mússunds.

„Ég get ekki nefnt neitt sér­stakt land, en nokkur lönd sem vilja tryggja örugga sigl­ingu fyrir skip sín hafa haft sam­band við okkur,“ sagði hann.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    A criminal psychopath!
    0
  • Greg Hill skrifaði
    u.s. er orðin heimsígildi skólaskotamanns (eða að minnsta kosti, það er eins og í stað þess að vera settur í burtu fyrir lífstíð, þá fær þessi tegund í Bandaríkjunum nú rauða dregilinn í ríkisstjórn)
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár