Trump setur herinn í viðbragðsstöðu vegna mótmæla

Fall­hlíf­ar­her­menn í Alaska settir í við­bragðs­stöðu vegna mögu­leik­ans að virkja „upp­reisn­ar­lögin“ í fyrsta skiptið í 30 ár.

Trump setur herinn í viðbragðsstöðu vegna mótmæla
Donald Trump Á aðsetri sínu í Mar-a-Lago í Flórída. Mynd: AFP

Banda­ríska stríðs­mála­ráðu­neytið hefur skipað 1.500 banda­rískum her­mönnum að búa sig undir mögu­lega stað­setn­ingu í ríki sem er í upp­námi vegna óeirða í tengslum við aðgerðir gegn inn­flytj­endum, að því er banda­rískir fjöl­miðlar greindu frá í dag.

Þetta greist nokkrum dögum eftir að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hót­aði að beita upp­reisn­ara­lög­unum (e. Insurrection Act), sem heim­ila notkun hers­ins til að bæla niður „vopn­aða upp­reisn“ eða „ofbeldi inn­an­lands“ – þótt hann hafi degi síðar sagt að engin brýn þörf væri á því.

ABC frétta­stofan greindi fyrst frá áformum um her­flutn­inga. Frétta­stofan vitn­aði í tvo ónefnda banda­ríska varn­ar­mála­full­trúa sem sögðu að 1.500 fall­hlíf­ar­her­menn í virkri her­þjón­ustu, stað­settir í Alaska, hefðu verið settir í við­bragðs­stöðu, en for­set­inn hefði ekki tekið end­an­lega ákvörðun um stað­setn­ing­una.

Varn­ar­mála­ráðu­neytið og Hvíta húsið svör­uðu ekki strax beiðnum AFP um svör í dag.

Upp­reisn­ara­lög­unum var síð­ast beitt í Banda­ríkj­unum fyrir meira en 30 árum og hvers kyns aðgerðir alrík­is­stjórn­ar­innar til að beita hernum myndu magna upp ágrein­ing­inn milli Hvíta húss­ins og yfir­valda í Minnesota.

Hópar mót­mæl­enda hafa lent í átökum við inn­flytj­enda­yf­ir­völd í Minn­ea­polis, stærstu borg mið­vest­ur­rík­is­ins, sér­stak­lega eftir að full­trúi inn­flytj­enda­lög­regl­unnar ICE skaut banda­ríska konu, Renee Nicole Good, til bana þann 7. jan­úar.

Í gær sagði almanna­varna­deild Minnesota að sam­kvæmt fyr­ir­mælum Tim Walz rík­is­stjóra hefði þjóð­varð­lið rík­is­ins verið kallað út til að styðja við lög­reglu og neyð­ar­stjórn­un­ar­yf­ir­völd á staðnum. Sem rík­is­stjóri hefur Walz vald til að kalla út vara­lið banda­ríska hers­ins í rík­inu í neyð­ar­til­vikum.

Jacob Frey, borg­ar­stjóri Minn­ea­polis, lýsti í dag þeim 3.000 alrík­is­full­trúum frá inn­flytj­enda­lög­regl­unni ICE og landamæra­eft­ir­lit­inu, sem standa fyrir aðgerðum Trumps gegn óskráðum inn­flytj­endum, sem „her­náms­sveit sem hefur bók­staf­lega ráð­ist inn í borg­ina okkar“.

Hann sagði í þætt­inum „Face the Nation“ á CBS að alrík­is­full­trú­arnir væru fimm sinnum fleiri en 600 manna lög­reglu­lið borg­ar­innar. Hann lýsti einnig yfir áhyggjum af fréttum um að 1.500 alrík­is­her­menn væru að búa sig undir að slást í hóp­inn.

„Þetta snýst ekki um öryggi. Þetta snýst um að koma inn í borg­ina okkar í þús­unda­tali og hræða fólk ein­fald­lega vegna þess að það er af rómönskum upp­runa eða sómalskt, og já, fólk í Minn­ea­polis lætur í sér heyra,“ sagði Frey.

Kristi Noem, ráð­herra heima­varna, sagði að aðgerð­irnar myndu halda áfram „þar til við erum viss um að allt hættu­legt fólk hafi verið hand­tekið, dregið fyrir rétt og síðan vísað aftur til heima­lands síns.“

Stríðs­mála­ráðu­neytið sendi um 700 banda­ríska land­göngu­liða til Los Angeles í júní og júlí til að bregð­ast við hörðum mót­mælum vegna ágengra aðgerða inn­flytj­enda­yf­ir­valda sem þar stóðu yfir.

Trump hót­aði einnig á þeim tíma að beita upp­reisn­ara­lög­unum, en gerði það að lokum ekki, og hlut­verk her­mann­anna tak­mark­að­ist við að gæta tveggja alrík­is­eigna á stór­borg­ar­svæði Los Angeles.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár