Norrænu og baltnesku löndin stóðu með Íslandi

Evr­ópu­sam­bandið skilur Ísland og Noreg eftir utan­garðs í tolla­málum kís­il­málms eftir atkvæða­greiðslu, þar sem nor­rænu og Eystra­salts­ríkin greiddu atkvæði með und­an­þágu fyrir Ísland.

Norrænu og baltnesku löndin stóðu með Íslandi
Kristrún í Brussel Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, tók á móti Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í Brussel 9. apríl síð­ast­lið­inn. Síðar stóð til að und­ir­rita yfir­lýs­ingu um varn­ar­sam­starf. Mynd: Evrópusambandið

Ríki Evr­ópu­sam­bands­ins skiptu sér í tvær fylk­ingar þegar kom að ákvörðun um gefa Íslandi og Noregi ekki und­an­þágu frá vernd­ar­tollum á kís­il­málm, með þeim afleið­ingum að sú stór­iðja á ekki aðgang að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins þrátt fyrir veru Íslands á Evrópska efna­hags­svæð­inu. 

Norska rík­is­út­varpið fjallar um atkvæða­greiðsl­una, sem átti að vera leyni­leg, í ráð­herra­ráði ESB í morgun. 

Ákvörð­un­inni hafði verið frestað tvisvar, fyrst á föstu­dag og síðan á mánu­dag, áður en hún náð­ist í gegn í dag með naumum meiri­hluta.

Norð­ur­löndin og Eystra­salts­löndin sam­ein­uð­ust um að styðja mál­stað Íslands og Noregs. Þannig greiddu Svíþjóð, Finnland, Eistland, Lettland og Litháen, ásamt Ung­verja­landi, atkvæði gegn aðgerð­unum, að sögn norsku frétta­þjón­ust­unnar NTB. Danmörk sat hjá við atkvæða­greiðsl­una þar sem landið gegnir nú for­mennsku í ESB þetta hálfa árið.

Tillagan kom frá Póllandi, Slóvakíu og Frakk­landi, með stuðn­ingi frá Spáni. Til­gang­ur­inn var að styrkja stöðu evr­ópsks iðn­aðar í harðn­andi sam­keppni.

Ákvörð­unin skapar mikla óvissu um stöðu og fram­tíð EES-samn­ings­ins, á sama tíma og íslensk stjórn­völd hafa boðað þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort hefja eigi að nýju aðild­ar­við­ræður Íslands við Evr­ópu­sam­bandið, sem síðar yrði ákvarðað af annarri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Kínverskt eignarhald á Íslandi

Eign­ar­hald á Elkem, járn­blendi­verk­smiðj­unni á Grund­ar­tanga, er að hálfu leyti kín­verskt. Í sam­tali við Rík­is­út­varpið segir for­stjór­inn, Álf­heiður Ágústs­dóttir, að það hafi lík­lega ekki haft áhrif. Af útflutn­ingi Elkem á Íslandi hefur 40% til 70% farið til Evrópu, á þeim for­sendum að um toll­frjáls við­skipti sé að ræða. Samkvæmt ákvörðun ESB verður 75% af magni sem sam­svarar með­al­út­flutn­ingi kís­il­málms til sam­bands­ins á árunum 2022 til 2025 áfram toll­frjálst, en restin toll­lögð til þriggja ára.

Önnur kís­il­málm­verk­smiðja, PCC á Bakka, stöðv­aði nýverið rekstur eftir mikið tap.

Athygli vekur að þrátt fyrir þessa ákvörðun var nýverið ákveðið að vernd­ar­að­gerðir ESB vegna stálfram­leiðslu giltu ekki um Ísland og Noreg.

Fresta undirritun varnarmálasamstarfs

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sam­tali við Vísi í dag að prinsipp EES-samn­ings­ins hefðu verið brotin í mál­inu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir til­kynnti í dag að hún myndi fresta fyr­ir­hug­aðri und­ir­ritun á sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu með Evr­ópu­sam­band­inu um varn­ar­mál, vegna aðgerð­ar­innar.

„Ég hef upp­lýst það að ég mun ekki skrifa undir öryggis- og varn­ar­mála­yf­ir­lýs­ing­una sem stóð yfir að gera á fimmtu­dag­inn. Það eru fyrstu við­brögðin,“ sagði hún í sam­tali við Rík­is­út­varpið.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag sagði Þor­gerður Katrín að Evr­ópu­sam­bandið væri að gera „nákvæm­lega eins og Banda­ríkin“ og Kína, að verja eigin iðnað og atvinnu­líf. Það segir Þor­gerður vekja spurn­ingu um hvernig Íslend­ingar geti varið sína hags­muni og átt aðgang að mörk­uðum.

Evrópa fyrst

Ljóst er að Evr­ópu­sam­bandið ætlar sér í vax­andi mæli að setja Evr­ópu­sam­bands­ríkin í fyrsta sætið og verja evr­ópskan iðnað fyrir utan­að­kom­andi sam­keppni, í and­svari við stefnu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta.

Til þess hafa bæði Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, og Emmanúel Macron, for­seti Frakk­lands, sam­ein­ast um að þrýsta á ein­földun reglu­verks og við­skiptaum­hverfis í sam­band­inu. 

Þannig boð­aði Macron í dag Evr­ópu­sam­bandið myndi ná tækni­legu sjálf­stæði og staf­rænu sjálf­ræði frá Banda­ríkj­unum og Kína. Hann vís­aði sér­stak­lega til tæknirisanna 7, Alphabet, Amazon, Apple, Meta, Microsoft, Nvidia og Tesla.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Ég vil hvorki varnarsamning (við eigum að halda áfram að vera hlutlaus þjóð.) né verksmiðju sem Kínverjar eiga að mestum hluta.. En ég held við eigum að halda áfram að vera í EES.
    2
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Fullkomlega eðlileg ákvörðun af hendi ESB.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár