Evrópusambandið semur um að styðja eigin vopnaframleiðslu

Kanada og Bretland ganga til liðs við Evr­ópu­sam­bandið í að efla eigin her­gagna­fram­leiðslu og minnka inn­flutn­ing frá Banda­ríkj­unum.

Evrópusambandið semur um að styðja eigin vopnaframleiðslu
Ursula von der Leyen Forseti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins fagn­aði sam­komu­lagi um efl­ingu her­gagna­iðn­aðar, eða varn­ar­iðn­aðar, eins og sam­bandið kallar hann. Mynd: AFP

Evr­ópu­sam­bandið náði í dag sam­komu­lagi um áætlun til að efla her­gagna­iðnað sinn, með upp­haf­legu fjár­magni upp á 1,5 millj­arða evra, eða 210 millj­arða króna, til að auka fram­leiðslu og styrkja birgða­keðjur, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá ráð­herra­ráði Evr­ópu­sam­bands­ins.

Þessi þróun – sem er afrakstur langra samn­inga­við­ræðna – færir sam­bandið í þann far­veg að bæta varn­ar­við­búnað sinn og miðar einnig að því að „styðja við sam­starf í varn­ar­iðn­aði við Úkraínu“, sagði í yfir­lýs­ingu frá ráð­inu, sem er full­trúi aðild­ar­ríkj­anna.

Fjár­veit­ingin er veitt í formi styrkja í gegnum Evrópsku varn­ar­iðn­að­ar­á­ætl­un­ina (EDIP) og nær yfir tíma­bilið 2025–2027, sam­kvæmt sam­komu­lagi sem gert var við Evr­ópu­þingið.

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, fagn­aði frétt­unum og sagði þær mik­il­vægt skref í átt að því að ESB nái „varn­ar­við­bún­aði fyrir árið 2030“.

Samn­inga­við­ræður um EDIP höfðu lengi staðið í stað vegna álita­máls­ins um hvort ætti að veita …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Verður heimurinn betri með því að nota fjármagnið til hergagnaframleiðslu??
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár