Ísland og Þýskaland undirrita yfirlýsingu um varnarsamstarf

Vara við því að þróun heims­mála muni „ógna öryggi okkar.“

Ísland og Þýskaland undirrita yfirlýsingu um varnarsamstarf

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Boris Pistor­ius, varn­ar­mála­ráð­herra Þýska­lands, und­ir­rit­uðu í dag tví­hliða vilja­yf­ir­lýs­ingu um varn­ar­mál í tengslum við heim­sókn Pistor­i­usar til Íslands.

Með yfir­lýs­ing­unni er lagður grunnur að auknu sam­starfi Íslands og Þýska­lands sem eflir eft­ir­lit og öryggi á Norður-Atl­ants­hafi og sam­eig­in­legar varnir Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Í yfir­lýs­ing­unni ákveða löndin tvö að „lýsa yfir ásetn­ingi sínum um að dýpka og auka hag­nýtt sam­starf sín á milli með því að byggja á núver­andi starf­semi og hrinda í fram­kvæmd nýjum verk­efnum“ til að „takast betur á við sam­eig­in­legar áskor­anir 21. ald­ar­innar.“ 

Um er að ræða eitt af fleiri dæmum þess að Ísland eigi bein, tví­hliða sam­skipti og yfir­lýs­ingar um varn­ar­mál án aðkomu Banda­ríkj­anna.

„Þýska­land og Ísland eiga sér langa sögu um sam­eig­in­lega skuld­bind­ingu gagn­vart öryggi á evró-atl­ants­hafs­svæð­inu og hafa verið banda­lags­þjóðir innan NATO í yfir 70 ár. Und­ir­rituð eru sann­færð um að banda­lagið yfir Atl­ants­hafið sé og verði horn­steinn öryggis í Evrópu,“ segir í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni. 

Þar er varað við ógnum vegna þró­unar heims­mála. 

„Sam­eig­in­legum hags­munum okkar, gildum og meg­in­reglum er nú ögrað með marg­vís­legum hætti – póli­tískum, efna­hags­legum, tækni­legum, hern­að­ar­legum og með blend­ings­að­gerðum. Und­ir­rituð eru sann­færð um að veik­leiki og óstöð­ug­leiki í nágrenni Evrópu grafi undan öryggi okkar og skapi frjóan jarð­veg fyrir hern­að­ar­lega keppi­nauta, sem og hryðju­verka­hópa, til að ná áhrifum, koma á óstöð­ug­leika í sam­fé­lögum og ógna öryggi okkar.“

Þýski varn­ar­mála­ráð­herr­ann kom til Íslands síð­degis í dag og átti fund með utan­rík­is­ráð­herra sem lauk með und­ir­ritun yfir­lýs­ing­ar­innar. Á morgun mun Pistor­ius funda með Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og heim­sækja örygg­is­svæðið á Kefla­vík­ur­flug­velli áður en hann heldur af landi brott. Í fylgd­ar­liði varn­ar­mála­ráð­herr­ans er hópur þing­manna úr þýska Sam­bands­þing­inu og munu þing­menn­irnir funda með utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis á morgun.

Í frá­sögn Stjórn­ar­ráðs­ins er haft eftir Þorgerði Katrínu að Ísland hafi und­an­farið unnið mark­visst að tví­hliða samn­ingum og yfir­lýs­ingum.

„Ísland hefur að und­an­förnu mark­visst aukið tví­hliða og svæð­is­bundið varn­ar­sam­starf við grann­ríki og lyk­il­banda­menn innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Slíkt sam­starf gegnir mik­il­vægu hlut­verki til að treysta gagn­kvæman skiln­ing og þekk­ingu sem eflir sam­eig­in­lega varn­ar­getu Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.  Ísland og Þýska­land hafa átt náið og far­sælt sam­starf innan banda­lags­ins í sjö ára­tugi og með þess­ari yfir­lýs­ingu er tekið mik­il­vægt skref til að efla okkar tví­hliða varn­ar­sam­vinnu sem styrkir meg­in­stoðir Íslands í varnar- og örygg­is­sam­starfi, aðild­ina að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­sam­starfið við Banda­ríkin. Þjóð­verjar hafa verið að auka varn­ar­getu sína umtals­vert og horfa til að þess að styrkja getu til eft­ir­lits og aðgerða á Norður-Atl­ants­hafi ásamt öðrum banda­lags­ríkjum. Það mun auka öryggi svæð­is­ins og efla sam­eig­in­legar varnir,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra í yfir­lýs­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins.

Í júlí síð­ast­liðnum var ákveðið á fundi Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, að hefja við­ræður um gerð sam­starfs­yf­ir­lýs­ingar milli Íslands og ESB um öryggis- og varn­ar­mál með það að mark­miði að ljúka þeim á þessu ári. 

Samn­ing­arnir virð­ast vera við­leitni til þess að tryggja að lög og réttur ríki í alþjóða­sam­skiptum, á sama tíma og grafið er undan þeim með þróun stjórn­mála í Banda­ríkj­unum.

„Saman skuld­binda und­ir­rit­aðir aðilar sig til að við­halda alþjóð­legri skipan sem bygg­ist á reglum, í sam­ræmi við sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ segir í vilja­yf­ir­lýs­ingu Íslands og Þýska­lands um varn­ar­mál.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár