Nei-sinnar auglýsa „raunverulega hættu á“ sæstreng frá ESB

Aug­lýs­ingar á Rás 2 segja „raun­veru­lega hættu“ á að Evr­ópu­sam­bandið leggi sæstreng til Íslands og hækki orku­verð. Álits­gerð laga­pró­fess­ora sagði lagn­ingu sæstrengs á for­ræði rík­is­ins. Malta fagn­aði fjár­mögnun á sæstreng til eyj­ar­innar.

Nei-sinnar auglýsa „raunverulega hættu á“ sæstreng frá ESB
Barist gegn við­ræðum Samtökin Áfram Ísland, sem berj­ast gegn aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið, héldu fjöl­mennan bar­áttufund á Aust­ur­velli í gær. Mynd: Golli

„Þetta er raun­veru­leg hætta,“ segir í aug­lýs­ingu á Rás 2, sem flutt var í dag, þar sem boðað var að Evr­ópu­sam­bandið gæti lagt sæstreng til Íslands, hækkað orku­verð og sett þrýst­ing á að „virkja íslenska íslenska nátt­úru til að mæta orku­þörf Evrópu“.

Aug­lýs­ingin er merkt Þjóð­málum og virð­ist þar vísað til fjöl­mið­ils­ins Þjóðmála, sem heldur úti hlað­varpi.

„Segjum nei við framsali íslenskra orkuauðlinda“

Í aug­lýs­ingu Þjóðmála er hins vegar gefið til kynna að Íslend­ingum stafi hætta af Evr­ópu­sam­band­inu í orku­málum. 

„Verður Íslandi stungið í sam­band?“ sagði í aug­lýs­ing­unni, sem flutt var meðal ann­ars í aug­lýs­inga­hléi Síð­deg­is­út­varps Rásar 2 í dag. Undir lestr­inum hljóm­aði dramat­ísk tón­list.  

„Sæstrengur myndi tengja Ísland við evr­ópska raf­orku­kerfið. Íslensk orka myndi streyma úr landi, raf­orku­verð hækka og þrýst­ingur myndi aukast á að virkja íslenska nátt­úru til að mæta orku­þörf Evrópu. Þetta er raun­veru­leg hætta. Kýpur er síð­asta ESB-ríkið sem er enn ótengt, en ESB vinnur að því að leggja sæstreng til Kýpur. Þannig stefnir sam­bandið á að sam­tengja raf­orku­kerfi allra aðild­ar­ríkj­anna. Segjum nei við hærra orku­verði. Segjum nei við fram­sali íslenskra orku­auð­linda. Segjum nei við ESB. Þjóðmál.“

Aug­lýs­ing ÞjóðmálaÍslend­ingar varaðir við „raun­veru­legri hættu“.RÚV

Malta fékk fjármögnun frá ESB

Lagning sæstrengs til Kýpur snýst um að rjúfa ein­angrun eyj­unnar, en 92% af orku­notkun Kýpverja kemur úr olíu. Fjár­mögn­unin kemur að hluta úr sjóði ESB sem styður efna­hags­lega end­ur­reisn aðild­ar­ríkja.

Evr­ópu­sam­bandið hefur styrkt lagn­ingu orku­inn­viða. Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn, sem er lána­stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins í eigu aðild­ar­ríkj­anna 27, til­kynnti í vor að hann myndi lána til lagn­ingar sæstrengs til Möltu frá Sikiley. Fjár­mála­ráð­herra Möltu, Clyde Caruana, sagði um að ræða „mik­il­væga fjár­fest­ingu fyrir lang­tíma stöð­ug­leika í hag­kerfi Möltu.“

„Með því að styrkja orku­inn­viði okkar verðum við minna ber­skjölduð fyrir ytri áföllum, bætum fram­boðs­ör­yggi og styðjum stöðugt orku­verð fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki,“ sagði hann. Fjár­fest­ingin er hluti af orku­stefnu Möltu, sem studd er af ESB.

Auglýsingin í andstöðu við álitsgerð

Efni aug­lýs­ingar Þjóðmála er í beinni and­stöðu við álits­gerð þriggja laga­pró­fess­ora við Háskól­ann í Reykja­vík, sem fjöll­uðu meðal ann­ars um orku­mál Evr­ópu­sam­bands­ins.

Álits­gerðin var til umræðu eftir að Morg­un­blaðið vitn­aði rang­lega í hana um að ekki væru und­an­þágur í boði við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, sam­kvæmt því sem pró­fess­or­arnir sögðu í yfir­lýs­ingu þar sem þeir sögðu frétt­ina ósanna.

„Innganga Íslands í ESB myndi því hafa óveru­leg áhrif á orku­lög­gjöf­ina hér á landi þar sem Ísland er nú þegar aðili að henni að öllu veru­legu leyti,“ segir í álits­gerð­inni. „Yfirráð yfir auð­lind­inni í hverju aðild­ar­ríki fyrir sig og ávinn­ingur af henni er hins vegar í höndum aðild­ar­ríkj­anna sjálfra.“

Fjallað er sér­stak­lega um sæstreng í álits­gerð­inni, sem unnin var fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið, sem vinnur að aðild­ar­um­sókn­ar­málum. 

„Verður ESB ekki talið vera með vald­heim­ildir til að leggja sam­tengil (t.d. sæstreng) í óþökk aðild­ar­ríkis til ann­arra aðild­ar­ríkja ESB eða skipa aðild­ar­ríki að leggja slíkan sam­tengil til að tengj­ast innri raf­orku­mark­aði ESB. Hefur enda engin afleidd lög­gjöf verið sett sem felur í sér slíka skyldu.“

Þá er vitnað til nýlegs dóms Almenna dóm­stóls ESB sem veiti vís­bend­ingu um að „valdið til að ákveða nýja/aukna teng­ingu milli aðild­ar­ríkja ESB, og því einnig EES/EFTA-ríkj­anna, liggi alfarið hjá aðild­ar­ríkj­unum.“

Pró­fess­or­arnir taka fram að „þrátt fyrir tak­mark­aðar vald­heim­ildir að þessu leyti er alveg ljóst að ESB hefur áhuga á sam­teng­ingu orku­mark­aða með það að mark­miði að tryggja orku­ör­yggi í aðild­ar­ríkjum þess.“

Þessi stefnu­mótun, undir for­merkjum „sam­stöðu í orku­málum“, hafi hlotið meira vægi í kjöl­far inn­rás­ar­stríðs Rúss­lands í Úkraínu með til­heyr­andi orku­kreppu í Evrópu.

Í álits­gerð­inni kemur líka fram að Íslend­ingar hafi „fengið fengið und­an­þágur á grund­velli EES-samn­ings­ins frá ákveðnum gerðum eða hluta þeirra. Þær byggj­ast á ein­stakri stöðu Íslands á sviði orku­mála sem yrði haldið á lofti ef til aðild­ar­við­ræðna kæmi, sam­kvæmt því sem fram kemur í áliti meiri hluta utan­rík­is­mála­nefndar frá árinu 2026.“

Metmálþóf gegn orkupakkanum

Meðlimir Mið­flokks­ins héldu uppi lengsta mál­þóf­inu í sögu Alþingis árið 2019, þegar þeir töl­uðu í 147 klukku­stundir um svo­kall­aðan þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði „raun­veru­legan mögu­leika“ á því að Ísland gæti orðið orku­ver fyrir Evrópu, en að bannað yrði fyrir „okkur Íslend­inga að laða hingað æski­lega fjár­fest­ingu með því sam­keppn­is­for­skoti sem við höfum með ódýrri orku“. 

Meðal þeirra sem and­mæltu túlkun Mið­flokks­ins á Þriðja orku­pakk­anum voru sam­tökin Samorka, sem telja  frá­veitur, hita­veitur, vatns­veitur, raf­orku­fram­leið­endur, raf­orku­salar og flutn­ings- og dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki raf­orku. „Þriðji orku­pakk­inn hefur ekki áhrif á ákvarð­anir stjórn­valda um milli­landa­teng­ingar til ann­arra ESB/EES aðild­ar­ríkja umfram það sem núna er til­tekið í EES-samn­ingnum,“ sagði meðal ann­ars í umfjöllun sam­tak­anna sem gagn­rýndi vill­andi umræðu um orku­málin.

Mál­þófs­metið var síðan slegið af með­limum Mið­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins í umræðu um veiði­gjöld á Alþingi í fyrra­sumar.

Aug­lýs­inga­stjóri Rík­is­út­varps­ins hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar í kvöld um aug­lýs­ing­una og verk­lag varð­andi kosn­inga­aug­lýs­ingar.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár