Nýja stefnan: Evrópskt fyrst í tæknimálum

Macron Frakk­lands­for­seti vill að Evrópa öðlist tækni­legt sjálf­stæði og staf­rænt sjálf­ræði frá Banda­ríkj­unum og Kína. „Við viljum hanna okkar eigin lausnir,“ segir hann.

Nýja stefnan: Evrópskt fyrst í tæknimálum
Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, flytur ræðu á leið­toga­fundi um tækni­legt full­veldi Evrópu í Berlín í dag í aðdrag­anda leið­toga­fundar ESB. Kanslari Þýska­lands og for­seti Frakk­lands munu sam­eina krafta sína til að þrýsta á um aukið staf­rænt „full­veldi“ Evrópu og gera hana minna háð banda­rískum tæknirisum eftir því sem gervi­greind­ar­kapp­hlaupið harðnar. Leið­togar stærstu hag­kerfa Evrópu munu setja þetta fram á leið­toga­fundi í Berlín, þar sem for­stjórar helstu fyr­ir­tækja á svæð­inu verða einnig við­staddir, þar á meðal franska gervi­greind­ar­fyr­ir­tækið Mistral og þýski hug­bún­að­ar­ris­inn SAP. Mynd: AFP

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, sagði í dag að Evrópa vildi ekki vera „lepp­ríki“ sem væri háð banda­rískum og kín­verskum tækni­fyr­ir­tækjum og kall­aði eftir því að „Evrópa yrði í for­gangi“ í geir­anum.

„Evrópa vill ekki vera við­skipta­vinur stóru frum­kvöðl­anna eða stóru lausn­anna sem koma ann­að­hvort frá Banda­ríkj­unum eða Kína, við viljum svo sann­ar­lega hanna okkar eigin lausnir,“ sagði Macron á leið­toga­fundi í Berlín og bætti við að þessi afstaða væri „höfnun á þeirri stöðu að vera lepp­ríki“.

Macron tal­aði á evr­ópska leið­toga­fund­inum um staf­rænt full­veldi þar sem saman voru komnir leið­togar í tækni­geir­anum og ráð­herrar víðs vegar að úr álf­unni, þar á meðal Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands.

„Ég er sann­færður um að það að setja Evrópu í for­gang þurfi að verða okkar leið­ar­ljós, og það þarf að byrja á opin­berum inn­kaupum,“ sagði Macron.

„Því vitið þið hvað? Kín­verjar velja ein­göngu kín­verskt  ... og Banda­ríkja­menn setja Banda­ríkin mjög ein­dregið í for­gang,“ sagði hann.

Hann sagði að breyta þyrfti áherslum í nálgun ESB á lög­gjöf í geir­anum.

„Und­an­farin ár höfum við sett í for­gang að setja reglu­gerðir fyrir inn­lenda aðila,“ sagði Macron. „Við verðum að ná fram nýsköpun áður en við setjum reglur.“

Þetta er í sam­ræmi við nýlegar ákvarð­anir Evr­ópu­þings­ins og ákalli Friedrich Merz Þýska­landskansl­ara um að draga úr skrifræði og reglu­verki til að efla efna­hags­líf Evrópu.

Hann lagði einnig áherslu á hversu mikið væri í húfi fyrir Evrópu þegar kemur að meira sjálf­ræði í tækni­geir­anum.

„Það er ekki hægt að helga styrk efna­hags­lífs­ins „hinum stóru sjö“,“ sagði hann og vís­aði þar til banda­rísku tæknirisanna Alphabet, Amazon, Apple, Meta, Microsoft, Nvidia og Tesla.

„Þar að auki er ekki hægt að eft­ir­láta (hinum stóru sjö) alla virkni lýð­ræð­is­ins ... það er óþol­andi,“ hélt hann áfram við lófa­klapp fund­ar­gesta.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár