Forsetinn varar við ógn við þýskt lýðræði

Fagna falli Berlín­ar­múrs­ins í skugga vax­andi öfga­hyggju. „Getur verið að við höfum ekki lært af sög­unni?“ spyr Stein­meier, for­seti Þýska­lands.

Forsetinn varar við ógn við þýskt lýðræði
Forseti Þýska­lands Frank-Walter Stein­meier, for­seti Þýska­lands, heldur ræðu í til­efni af falli Berlín­ar­múrs­ins 1989. Mynd: AFP

Frank-Walter Stein­meier, for­seti Þýska­lands, var­aði við því í dag að upp­gangur öfga­hægri­manna og vax­andi gyð­inga­hatur væri vax­andi ógn við lýð­ræðið í Þýska­landi.

„Eitt hund­rað og sjö árum eftir 1918, árið sem fyrsta þýska lýð­veldið var stofnað, er frjáls­lynt lýð­ræði okkar undir þrýst­ingi,“ sagði hann í Bellevue-höll, emb­ætt­is­bú­stað sínum í Berlín.

„Popúlistar og öfga­menn hæð­ast að stofn­unum okkar, eitra opin­bera umræðu og not­færa sér ótta,“ bætti hann við.

9. nóv­em­ber er tákn­rænn dagur fyrir Þýska­land – á þessum degi árið 1918 var lýð­veldið stofnað, árið 1938 brut­ust út ofsóknir gegn gyð­ingum og árið 1989 féll Berlín­ar­múr­inn.

Stein­meier vís­aði til nýlegs upp­gangs öfga­hægri­manna í formi flokks­ins Alt­ernative für Deutschland (AfD), sem fékk 20,5 pró­senta fylgi í þing­kosn­ing­unum í febr­úar síð­ast­liðnum og lenti í öðru sæti, sem neyddi Kristi­lega demókrata (CDU), sem voru í fyrsta sæti, til að mynda sam­steypu­stjórn með Jafn­að­ar­mönnum sem höfðu beðið lægri hlut. AfD mælist nú með mest fylgi allra flokka, litlu ofar Kristi­legum demókrötum.

Nýi kansl­ar­inn, Friedrich Merz, hefur hert orð­ræðu sína um inn­flytj­enda­mál frá því hann tók við emb­ætti en núver­andi skoð­ana­kann­anir sýna AfD jafnan flokki hans að fylgi.

Að mati Stein­meiers „má ekk­ert póli­tískt sam­starf eiga sér stað við öfga­menn. Hvorki í rík­is­stjórn né á þingi.“

„Gyð­inga­hatur er ekki komið aftur, því það hefur alltaf verið til staðar,“ sagði hann og vís­aði til þess að met­fjöldi, 6.236 gyð­inga­hat­urs­glæpa, var skráður í Þýska­landi á síð­asta ári.

„Getur verið að við höfum ekki lært af sög­unni?“ sagði hann.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft......

    Sumt fólk hefur það betra en annað fólk. Það fólk vill kannski frekar kaupa sér einhvern óþarfa en hjálpa fólki sem býr á ruslahaugum útí heimi. Ríka fólkið óttast að fátæka fólkið komi og taki auðinn og hagi sér eins og það gerði. Með öðrum orðum það óttast sig sjálft. Í þessu felst ótti um misskiptingu en einnig rasísk hugsun um að aðkomufólk megi ekki efnast í sama mæli og heimamenn eða meira en það sjálft. Svo er þekkt að þeir sem aðhyllast hægri stefnu - sem felur yfirleitt í sér misskiptingu, eru yfirleitt andsnúnari innflytjendum. Kannski er það vegna þess að þeir óttast sjálfir mest að verða undir. Auk þess tel ég þjóðrembu, önnur trúarbrögð og "yfirisma" geta stuðlað að andúð á innflytjendum og skortur á kærleika?
    3
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Tilgáta um brjálsemi þjóðarleiðtoga

    Þjóðarleiðtogar eru oft miklir egóistar og eru í stöðugri keppni um að vera fremstir. það er þessi keppni um að vera fremstir sem veldur brjálsemi þeirra - það kemst ekkert annað að. Sumir þeirra vita ekki afhverju þeir vilja vera þjóðarleiðtogar, þeir vita það eitt að þeir vilja vera fremstir.

    Þjóðarleiðtogar eiga það til að fangelsa eða ryðja úr vegi stjórnarandstæðingum og þeim sem gætu átt til að gagnrýna þá, dómurum og blaðamönnum og stundum fara þeir í stríð. Ástæðan fyrir þessu gæti verið að þeir eru að verja þá hugmynd um sjálfa sig, um að vera fremstir og til að þessi sjálfsmynd bíði ekki hnekki, gera þeir hvað sem er. Þeir eru í raun hræddir menn að verja hugmyndina um sjálfa sig sem mikilmenni og númer eitt og ryðja þeim úr vegi sem gætu raskað þeirri hugmynd.

    Rótin að þessu ástandi gæti verið lífsskoðun eins og sú, að láta engan vaða yfir sig. Í slíku lífsviðhorfi felst átök, jafnvel átakasækni (til að sanna sig) og ákveðin mikilmennskukennd, því ef enginn getur vaðið yfir viðkomandi þá hlýtur hann að vera númer eitt?

    Mótefnið við þessu kann að vera "jafnaðarmennska", tilfinningaleg meðvitund, kærleikur, átakafælni og muna að fæstir eru fullkomnir?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár