Kanslarinn segir flóttamönnum að fara heim

Það kveður við annan tón hjá Friedrich Merz en Angelu Merkel.

Kanslarinn segir flóttamönnum að fara heim
Friedrich Merz Kanslari Þýska­lands boðar harð­ari stefnu gegn flótta­mönnum en for­verar hans. Mynd: AFP

Friedrich Merz Þýska­landskansl­ari sagði í dag að sýr­lenskir flótta­menn í Þýska­landi yrðu að snúa heim nú þegar stríð­inu í landi þeirra væri lokið, ella yrði þeim vísað úr landi.

Sagði Merz að það væri „engin ástæða lengur“ fyrir Sýr­lend­inga, sem flúðu hið hrotta­lega 13 ára stríð í heima­landi sínu, að leita hælis í Þýska­landi. Ummæli for­vera hans, Angelu Merkel, voru fræg á sínum tíma, en þegar hún þurfti að taka afstöðu til flótta­manna­straums árið 2015 sagði hún: „Wir schaffen das,“ eða, „við sköffum það“. Nýr kansl­ari, sem kemur þó úr sama flokki, slær annan tón.

„Hvað þau varðar sem neita að snúa aftur til heima­lands síns getum við að sjálf­sögðu vísað þeim úr landi,“ sagði hann í heim­sókn til Husum í norð­ur­hluta Þýska­lands.

Johann Wadephul, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, sagði á fimmtu­dag í ferð til Damaskus að mögu­leikar Sýr­lend­inga á að snúa aftur væru „mjög tak­mark­aðir“ þar sem stríðið hefði eyði­lagt stóran hluta inn­viða lands­ins.

Sú yfir­lýs­ing olli hörðum við­brögðum innan Kristi­lega demókra­ta­flokks­ins, flokks Merz og Wadephul, sem hefur átt í erf­ið­leikum með að koma í veg fyrir að öfga­hægri­flokkar nái yfir­hönd­inni vegna mál­efna inn­flytj­enda og flótta­manna.

Merz sagð­ist hafa boðið nýjum bráða­birgða­for­seta Sýrlands, Ahmed al-Sharaa, en ísla­mista­sveitir hans steyptu ein­ræð­is­herr­anum Bashar al-Assad af stóli á síð­asta ári, í heim­sókn til Þýska­lands til að ræða „hvernig við getum leyst þetta saman“.

Sýrland „þarfn­ast alls síns styrks, og umfram allt Sýr­lend­inga, til að end­ur­byggja landið“, sagði Merz og bætti við að hann væri þess full­viss að margir myndu snúa aftur af fúsum og frjálsum vilja.

Um ein milljón Sýr­lend­inga býr í Þýska­landi, en flestir þeirra flúðu stríðið í fjölda­flótta á árunum 2015 og 2016.

Kristi­legir Demókratar, flokkur Merz, varð sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna 23. febr­úar síð­ast­lið­inn með 29% fylgi. Síðan þá hefur hægri­flokknum Alt­ernativ für Deutschland, Afd, vaxið ásmegin og mælist nú stærri en flokkur Merz, með 26% fylgi gegn 25%.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    Oh, the wind is blowing from the East today... I'd better change my mind again then... These so-called 'leaders' in the EU are not to be trusted with our money.
    0
  • Orri Olafur Magnusson skrifaði
    "Við sköffum það" einkar frumleg þýðing úr þýskunni "Wir schaffen das" :)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár