Bandaríkjaforseti krefst þess að óvinir hans verði ákærðir

Donald Trump vill nota dóms­mála­ráðu­neytið til að refsa þeim sem komið hafa að mál­sóknum gegn honum.

Bandaríkjaforseti krefst þess að óvinir hans verði ákærðir
Bondi og Trump Forseti Banda­ríkj­anna hefur ritað opið bréf til dóms­mála­ráð­herr­ans Pam Bondi, um nauð­syn þess að ákæra póli­tíska and­stæð­inga hans í hegn­ing­ar­skyni fyrir mál­sóknir gegn honum. Á sama tíma lokar ráðu­neytið rann­sókn á full­trúa Trumps sem tók við millj­ónum í reiðufé. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hvetur dóms­mála­ráðu­neyti sitt opin­ber­lega til að grípa til aðgerða gegn óvinum hans.

Gagn­rýnendur segja þetta enn eitt dæmið um að hafi brotið sé í bága við hefð­bundið sjálf­stæði ráðu­neyt­is­ins og það mis­notað í póli­tískum til­gangi.

Í færslu á sam­fé­lags­miðli sem beint var að „Pam“ – að því er virð­ist Pam Bondi dóms­mála­ráð­herra – lét Trump í ljós gremju sína yfir skorti á laga­legum aðgerðum gegn Adam Schiff, öld­unga­deild­ar­þing­manni frá Kali­forníu, og Letitiu James, dóms­mála­ráð­herra New York, sem bæði eru demókratar.

Schiff og James eru meðal nokk­urra sem Bill Pulte, for­stjóri alrík­is­stofn­unar um hús­næð­is­mál og náinn banda­maður Trumps, hefur sakað um að falsa skjöl í tengslum við hús­næð­is­láns­um­sóknir. Þar á meðal var stjórn­ar­maður í Seðla­banka Banda­ríkj­anna, sem Trump reynir nú að reka. En einnig hefur verið bent á stjórn­mála­menn úr röðum Repúblik­ana sem við­haft hafa sama hátt við skrán­ingu hús­næð­is­lána, sem varðar að skrá annað heim­ili ekki sér­stak­lega sem slíkt og njóta þar með hugs­an­lega betri vaxta­kjara.

„Við getum ekki beðið lengur, þetta er að eyði­leggja orð­spor okkar og trú­verð­ug­leika,“ sagði Trump.

Á föstu­dag rak Trump alrík­is­sak­sóknar­ann sem hafði yfir­um­sjón með rann­sókn­inni á James, eftir að sak­sókn­ar­inn full­yrti að ekki væru nægj­an­leg sönn­un­ar­gögn til að ákæra hana fyrir hús­næð­is­lána­svik.

Erik Siebert, alrík­is­sak­sókn­ari í aust­ur­hluta Virginíu, til­kynnti starfs­fólki um afsögn sína í tölvu­pósti á föstu­dag, að því er New York Times og aðrir banda­rískir fjöl­miðlar greindu frá.

„Ég rak hann, og það er um FRÁBÆRT MÁL að ræða, og margir lög­fræð­ingar og álits­gjafar í lög­fræði segja það,“ sagði Trump á laug­ar­dag og vís­aði þar að því er virð­ist til rann­sókn­ar­innar á James.

Schiff og James hafa áður átt í deilum við Trump og stýrt rann­sóknum sem for­set­inn, sem er repúblikani, heldur fram að hafi verið póli­tískar norna­veiðar.

Seint á laug­ar­dag sagði Trump að hann hefði skipað Lindsey Halligan, aðstoð­ar­mann í Hvíta hús­inu, í stöðu Sieberts. Halligan hefur stýrt end­ur­skoðun á efni Smith­son­ian-stofn­un­ar­innar með til­liti til „sundr­andi eða flokkspóli­tískra frá­sagna“.

Forseti Banda­ríkj­anna lýsti Halligan sem „hörðum, klárum og tryggum lög­fræð­ingi.“

Lagaleg barátta

Á fyrsta kjör­tíma­bili Trumps í Hvíta hús­inu stýrði Schiff, sem þá var full­trúa­deild­ar­þing­maður, sak­sókn­inni í fyrstu ákæru í þing­inu á hendur for­set­anum fyrir emb­ætt­is­brot. Ákæran byggð­ist á ásök­unum um að hann hefði þrýst á Úkraínu að hafa áhrif á kosn­ing­arnar árið 2020, með því að tengja hern­að­ar­stuðn­ing við aðgerðir gegn syni Joes Biden, þá fyrr­ver­andi vara­for­seta.

Trump var að lokum sýkn­aður af öld­unga­deild­inni þá, og aftur árið 2021 þegar hann var ákærður í annað sinn, þá fyrir „hvatn­ingu til upp­reisnar“ í tengslum við árás stuðn­ings­manna hans á þing­húsið 6. jan­úar 2021.

Eftir að Trump yfir­gaf Hvíta húsið höfð­aði James umfangs­mikið mál gegn honum vegna fjársvika. Hún hélt því fram að hann og fyr­ir­tæki hans hefðu ólög­lega blásið upp eignir sínar og hag­rætt verð­mæti fast­eigna til að fá hag­stæð banka­lán eða trygg­inga­skil­mála.

Dómari í rík­inu dæmdi Trump til að greiða 464 millj­ónir dala í því máli, en æðri dóm­stóll felldi síðar niður fjár­sekt­ina, þrátt fyrir að stað­festa und­ir­liggj­andi dóm.

„Þau ákærðu mig tvisvar fyrir emb­ætt­is­brot og kærðu mig (5 sinnum!), FYRIR EKKERT. RÉTTLÆTINU VERÐUR AÐ VERÐA FULLNÆGT, NÚNA!!!“ skrif­aði Trump í gær.

Trump hefur einnig verið sak­felldur fyrir 34 gróf brot í tengslum við þögg­un­ar­greiðslur til klám­stjörnu.

Fyrr í þessum mán­uði stað­festi áfrýj­un­ar­dóm­stóll í Banda­ríkj­unum 83,3 millj­óna dala sekt sem kvið­dómur lagði á Trump fyrir að rægja rit­höf­und­inn E. Jean Carroll, en hann var fund­inn sekur um að hafa beitt hana kyn­ferð­is­of­beldi.

Rann­sóknir á Trump vegna meintrar rangrar með­ferðar á leyniskjölum og til­rauna til að hnekkja úrslitum for­seta­kosn­ing­anna 2020 voru látnar niður falla þegar hann var end­ur­kjör­inn á síð­asta ári.

Á sama tíma og Trump for­seti hvetur til ákæra á þeim sem hafa tekið þátt í ákærum og rann­sóknum á honum, kemur fram hjá New York Times að Tom Honan, sem Trump skip­aði sem landamæra­stjóra, verður ekki rann­sak­aður frekar fyrir að hafa tekið við 50 þús­und Banda­ríkja­dölum í reiðufé frá alrík­is­lög­reglu­mönnum sem þótt­ust vera athafna­menn og fóru fram á að við­skipta­samn­ingum vegna landmæra­eft­ir­lits yrði beint til þeirra. Dóms­mála­ráðu­neytið hefur fellt niður rann­sókn í mútu­máli gegn honum.

Þá full­yrti Trump í vik­unni að banda­rískum þátt­ar­stjórn­endum væri óheim­ilt að beina háði sínu að for­set­anum í sífellu, eftir að for­stjóri banda­rísku fjar­skipta­stofn­un­ar­innar, sem Trump skip­aði, hót­aði að svipta ABC sjón­varps­stöð­ina útsend­inga­leyfi vegna ádeilupistils grínist­ans Jimmys Kimmel um við­brögð Repúblik­ana við morði á áhrifa­vald­inum Charlie Kirk, sem leiddi til þess að þætti Kimmels var aflýst um óákveð­inn tíma.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár