Stórsókn Ísraels í Gazaborg og skýrsla SÞ segir þjóðarmorð í gangi

Ísrael hefur hert aðgerðir sínar í Gazaborg og Palest­ínu­menn flýja nú borg­ina. Samkvæmt nýrri skýrslu óháðrar alþjóð­legrar rann­sókn­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna er verið að fremja þjóð­ar­morð á Palest­ínu­mönnum á Gaza.

Stórsókn Ísraels í Gazaborg og skýrsla SÞ segir þjóðarmorð í gangi
Á flótta Palest­ínu­menn flýja unn­vörpum frá Gazaborg Mynd: AFP/Eyad Baba

Ísra­elski her­inn hóf í gær­kvöld stór­sókn inn í Gazaborg og hafa sprengju­árásir staðið yfir í alla nótt. Mark­miðið er að her­nema borg­ina. Yfirvöld í Ísrael hafa haldið því fram að á þriðja tug Ham­asliða haldi til í borg­inni.

Aðgerðir hers­ins, sem hafa herst gríð­ar­lega, hafa valdið miklum flótta almennra borg­ara út úr borg­inni.

Utan­rík­is­ráð­herrar Þýska­lands og Bret­lands hafa báðir for­dæmt árás­ina á Gazaborg. 

SÞ segja þjóðarmorð í gangi 

Að mati óháðrar alþjóð­legar rann­sókn­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna er Ísrael að fremja þjóð­ar­morð á Gaza. Er þetta í fyrsta sinn sem SÞ nota hug­takið um aðgerðir Ísraels gegn Palest­ínu­mönnum. 

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að draga megi þá nið­ur­stöðu að fjórar af fimm aðgerðum þjóð­ar­morða, sam­kvæmt alþjóð­legri skil­grein­ingu þeirra, hafi átt sér stað síðan átökin milli Ísraels og Hamas hófust 2023. 

Þær eru:

  • Að drepa ein­stak­linga úr við­kom­andi hópi
  • Að valda alvar­legum lík­am­legum eða and­legum skaða
  • Að koma í kring skil­yrðum sem séu …
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár