Fjarlægðin gerir fjöllin blá

Guðjón Tryggva­son segir það hafa gefið sér nýja sýn á lífið að flytja til útlanda.

Fjarlægðin gerir fjöllin blá
Útlönd kalla Guðjón segir auð­veld­ara að flytja út þegar maður hefur gert það áður. Mynd: Ragnhildur Helgadóttir

„Það gaf mér nýja sýn á lífið þegar ég flutti í fyrsta skiptið erlendis. Það var mjög áhuga­vert að þurfa að standa við öll stóru orðin – sem getur verið svo­lítið erfitt þegar maður er 21 árs.

Manni fannst maður vera stór fiskur í lít­illi tjörn og svo gerir maður sér grein fyrir því að það var kannski ekki alveg þannig. Það er svo hollt að þurfa að éta ofan í sig eitt og annað sem maður hefur haldið fram. 

Ég hef flutt nokkrum sinnum út – það er bara eitt­hvað sem kallar. Því þegar maður hefur gert það einu sinni þá getur maður gert það aftur. Eins og með eig­in­lega allt. Ef maður prófar það einu sinni þá veit maður í hvað maður er að fara. 

Af hverju kem ég til baka? Þá er maður kannski búinn með eitt­hvað ákveðið og þá er svona, jæja, ókei, nú er ég búinn með þetta. Það er gott að koma til baka líka.

Þegar maður fer í burtu þá fær maður kannski það sem maður hélt að mann vant­aði. Maður lærir alltaf að sjá hlut­ina í öðru ljósi, skilja hvað það er margt frá­bært á Íslandi, sem kannski fór í taug­arnar á manni þegar maður bjó hérna. Þetta er svona fjar­lægðin gerir fjöllin blá og menn­ina mikla. Það er alltaf auð­velt í bak­sýn­is­spegl­inum að meta hlut­ina öðru­vísi.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár