Íslenska ríkið semur aftur við Rapyd

Fjár­sýsla rík­is­ins hefur gert samn­ing um færslu­hirð­ingu við ísra­elska fjár­tækni­fyr­ir­tækið Rapyd. Samn­ing­ur­inn gildir í tvö ár og nær meðal ann­ars til fram­halds­skóla, rík­is­rek­inna safna, sjúkra­húsa, sýslu­manns­emb­ætta og dóm­stóla.

Íslenska ríkið semur aftur við Rapyd

Fjár­sýsla rík­is­ins gerði í apríl ramma­samn­ing við Rapyd um færslu­hirð­ingu fyrir A-hluta stofn­anir rík­is­ins. Hann gildir í tvö ár, eða þangað til í apríl 2027. 

„Samn­ing­ur­inn nær til allra A-hluta stofn­anna sem taka á móti korta­greiðslum og gildir um korta­færslur og posa. A-hluta­stofnun sem tekur á móti korta­greiðslum er þó skylt að ganga inn í þennan samn­ing,“ segir um samn­ing­inn á vef­síðu þar sem nálg­ast má mið­læga samn­inga rík­is­ins.

Voru áður með samning við Rapyd

Til A-hluta stofn­ana telj­ast á annað hund­rað stofn­ana sem sinna kjarna­verk­efnum rík­is­ins. Þeirra á meðal eru háskólar, fram­halds­skólar, rík­is­rekin söfn, sjúkra­hús, heilsu­gæslur, sýslu­manns­emb­ætti og dóm­stólar, auk fjöl­margra ann­arra.

Hér má sjá lista yfir svo­kall­aðar A-hluta stofn­anir.

Rík­is­kaup sáu um að gera þjón­ustu­samn­ing um færslu­hirð­ingu fyrir A-hluta stofn­anir þangað til þau voru lögð niður síð­asta vor og verk­efni þeirra færð yfir til Fjár­sýsl­unnar. Fyrri samn­ingur var gerður við Valitor í febr­úar árið 2021 og rann út í fyrra. Rapyd keypti Valitor í júlí 2021.

Hávær sniðgöngukrafa

Vegna átak­anna fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og skæðra árása á Gaza-svæð­inu hafa margir Íslend­ingar valið að snið­ganga vörur og fyr­ir­tæki sem tengj­ast Ísrael. Hug­myndin að baki snið­göng­unni er sú að með henni megi setja þrýst­ing á ísra­elsk stjórn­völd að láta af stríð­rekstri sínum í Palest­ínu.

Ísra­elska greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Rapyd hefur gjarnan verið nefnt í tengslum við snið­göngu, en það er eitt af þeim fyr­ir­tækjum sem íslenska snið­göngu­hreyf­ingin leggur hvað mesta áherslu á. 

„Rapyd rekur starf­semi í land­ráns­byggðum Ísraela á Vest­ur­bakk­anum sem eru ský­laust brot á alþjóða­lögum og sam­þykktum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Stuðn­ingur Rapyd við hernað Ísraels er líka aug­ljós á Instagram reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins þar sem eru myndir af ísra­elskum her­mönnum sem Rapyd bauð í grill­veislu. Þar segir að Rapyd sé stolt af stuðn­ingi sínum við hina hug­rökku her­menn ísra­elska hers­ins og ánægt með að geta gefið þeim eitt­hvað til baka,“ stendur á vef­síð­unni snið­ganga.is. 

Fjallað hefur verið um það í fjöl­miðlum að fleiri hund­ruð íslensk fyr­ir­tæki sem áður not­uðu greiðslu­miðlun Rapyd hafi látið undan þrýst­ingi snið­göngu­hreyf­ing­ar­innar og skipt um greiðslu­miðlun. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Og tryggingar fyrir að upplýsingum sé ekki safnað.... eru auðvitað öngvar. En á hinn bóginn eru ísraelar í fremsta flokki í tölvunjósnum og öngvar varnir hérlendis. Ef menn muna þá komu fréttir um að ísraelskt fyrirtæki hefði útbúið app sem gat hijackað og lesið nálæga síma... eða á sama neti... en það sem þið vitið ekki er að appið er meira en áratugar gamalt og byggt á eldri öppum. Og ólíkt ICIJ og íslenskum snillingum þá kunna þeir að vinna úr upplýsingum,
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár