Þrengra um leigjendur en húseigendur

Í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar kemur fram að hátt hlut­fall leigj­enda telji hús­næði sitt vera of lítið. Algeng­ara er að leigj­endur búi ekki á þeim stað sem þeir myndu helst kjósa en meðal þeirra sem búa í eigin hús­næði.

Þrengra um leigjendur en húseigendur

Tæplega helm­ingur leigj­enda, eða 46 pró­sent, telur hús­næðið sitt vera of lítið. Hlut­fallið er 19 pró­sent meðal þeirra sem búa í eigin hús­næði. Núver­andi hús­næði leigj­enda er að með­al­tali 76 fer­metrar, en 135 fer­metrar hjá hús­næð­is­eig­endum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS).  

Í skýrsl­unni segir að tak­mark­aðra fram­boð virð­ist vera á leigu­hús­næði en á hús­næði til eignar. Þetta megi sjá á því að algeng­ara er að leigj­endur búi ekki á þeim stað sem þeir myndu helst kjósa, en fimmti hver leigj­andi myndi helst ekki kjósa að búa þar sem hann býr nú. Hlut­fallið er tals­vert lægra meðal hús­eig­enda, eða sjö pró­sent.

Meðalleiga 244 þúsund krónur á höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt skýrsl­unni lækk­aði vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 0,9 pró­sent í des­em­ber. Með­alleiga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í des­em­ber var 244 þús­und krónur, sem er um þremur pró­sentum meira en á sama tíma árið áður. 

Á síð­ast­liðnu ári hefur vísi­tala leigu­verðs hækkað um 12,6 pró­sent en vísi­tala neyslu­verðs um 4,8 pró­sent.

Þá hefur mun­ur­inn á mark­aðs- og með­alleigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu auk­ist úr 24 þús­und krónum á mán­uði upp í 30 þús­und krónur á síð­ustu 12 mán­uðum.

Með­alleigu­verð nýrra samn­inga á leigu­í­búðum í eigu ein­stak­linga eða hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga var 275 þús­und krónur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í des­em­ber. „Til sam­an­burðar nam með­alleigu­verð nýrra samn­inga á slíkum íbúðum um 225 þús­und krónum í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins,“ segir í skýrsl­unni.

Aukið framboð á höfuðborgarsvæðinu

Í upp­hafi nýs árs voru 3.890 íbúðir til sölu og fækk­aði um rúm­lega 200 frá því í des­em­ber. Í sam­an­burði við árs­byrjun 2024 eru nú um 500 fleiri íbúðir til sölu á land­inu öllu.

Meira fram­boð er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í sam­an­burði við upp­haf síð­asta árs, en þar hefur íbúðum til sölu fjölgað um 300. Fjölg­unin skýrist að mestu af því að óseldum nýjum íbúðum hefur fjölgað en hlut­deild nýrra íbúða í fram­boði heldur áfram að hækka.

„Hlut­deild nýrra íbúða í fram­boði hefur ekki verið hærri frá því að gagna­söfnun hófst síðla árs 2017. Ein skýr­ing á háu hlut­falli nú er að nýbygg­ingar koma í meira mæli fyrr á sölu en áður. Af um það bil 1.450 nýjum íbúðum til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í des­em­ber 2024 voru um 750 á mats­stigi 1-5, sem þýðir að rúm­lega helm­ingur aug­lýstra íbúða í nýbygg­ingum voru ekki full­búnar,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár