Kosningavaka Samfylkingar: „Aldrei vekja mig“

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar gerði sér ferð á kosn­inga­vöku Sam­fylk­ing­ar­innar í Kola­port­inu á kosn­inga­nótt. Þar komust að færri en vildu, bæði fólk sem kaus Sam­fylk­ing­una og aðrir.

Kosningavaka Samfylkingar: „Aldrei vekja mig“
Fylg­is­aukn­ing Fram­bjóð­endur Sam­fylk­ing­ar­innar fögn­uðu ákaft þegar tölur voru kynntar. Mynd: Golli

Klukkan er rétt skriðin yfir mið­nætti á kosn­inga­nótt og ég er á leið­inni úr Vals­heim­il­inu yfir í Kola­portið þar sem Sam­fylk­ingin heldur sína kosn­inga­vöku. Þær tölur sem þegar hafa borist hafa verið flokknum mjög í vil og ég býst við því að fólk fari að flykkj­ast þangað í hrönnum, enda nán­ast nátt­úru­lög­mál að fólk vill helst djamma með þeim sem eru að sigra kosn­ingar.

„Það er röð“

Ég reyn­ist sann­spá. Þegar ég geng fyrir hornið við Bæjarins Beztu blasir við mér margra metra röð fólks sem bíður þess að verða hleypt inn á gleð­skap­inn. Það mætti halda að það væri verið að opna nýjan kleinu­hringja­stað þarna inni. Ég dáist að metn­að­inum í mann­skapnum að standa hérna, enda gríð­ar­lega kalt. Sér­stak­lega hér því það er hvasst svona nálægt sjónum. Fólkið hjúfrar sig upp að hvert öðru. 

Sjálf hef ég ekki tíma til að bíða í röð­inni, það stytt­ist í fyrstu tölur úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum, og auk þess er ég í vinn­unni. Það fer yfir­leitt betur á því að norpa í bið­röðum í sínum eigin frí­tíma. Ég geng að dyr­unum, en þar er þvaga fólks sem ég sé fyrir mér að þurfa að oln­boga mig í gegnum til að kom­ast inn. 

Biðin langaRöðin teygði sig á tíma­bili alla leið að Tryggva­götu.

Kona sem stendur aðeins innar en ég biðst inn­göngu. „Það er röð,“ segir mað­ur­inn í dyr­unum og bendir á mann­mergð­ina sem teygir sig með­fram hús­veggnum. Konan útskýrir að hún sé í kosn­inga­stjórn flokks­ins í Kópavogi og hafi aðeins brugðið sér út til að fá sér að reykja. Maðurinn horfir á hana skept­ískur og hleypir henni hvorki lönd né strönd.

Samkomutakmarkanir tvíeykisins

Þremur lög­reglu­þjónum er hleypt inn um hlið­ar­dyr. Þeir ræða við fólk þar. Það virð­ist vera ein­hvers konar eft­ir­lit með kosn­inga­vök­unni að eiga sér stað. Ungur maður fram­ar­lega í röð­inni grín­ast með það að það sé verið að passa upp á sam­komu­tak­mark­anir þar sem Víðir Reyn­is­son og Alma Möller séu stödd inni, enda nán­ast ótví­ræð and­lit langra sam­komu­tak­mark­ana í far­aldr­inum. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Have you seen the bigger piggies in their starched white shirts?"
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár