Halla Hrund fái oddvitasæti Framsóknar í Suðurkjördæmi

Halla Hrund Loga­dóttir, frá­far­andi orku­mála­stjóri og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, er gengin til liðs við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður vill að hún taki sæti sitt sem odd­viti í Suð­ur­kjör­dæmi.

Halla Hrund fái oddvitasæti Framsóknar í Suðurkjördæmi
Framboð Halla Hrund hlaut þriðju bestu kosn­ing­una til for­seta í vor. Mynd: Golli

Halla Hrund Loga­dóttir, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi og frá­far­andi orku­mála­stjóri, hefur gengið til liðs við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Þetta til­kynnir hún í færslu á Facebook.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, býður Höllu Hrund vel­komna í ann­ari færslu á miðl­inum og seg­ist hafa ákveðið að leggja til við kjör­stjórn flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi að hún taki þar við fyrsta sæti á lista í kom­andi kosn­ingum. Sigurður Ingi, sem er núver­andi odd­viti í kjör­dæm­inu muni sjálfur sækj­ast eftir öðru sæt­inu. 

„Með þess­ari til­lögu legg ég sjálfan mig undir. Enda lít ég svo á að sá for­maður sem ekki leggur sjálfan sig að veði fyrir flokk­inn sinn sé ekki sannur leið­togi. Ég býð Höllu Hrund vel­komna í öfl­ugan hóp Fram­sókn­ar­fólks. Ég er full­viss um að þessi nýja rödd Fram­sóknar og sam­vinnu­stefn­unnar muni hljóma sterk fyrir kjör­dæmið og landið allt á Alþingi Íslend­inga,“ skrifar Sigurður Ingi.

Halla Hrund, sem hefur hingað til verið óflokks­bundin, segir að hún vilji vinna með fólki úr öllum áttum með hags­muni lands­ins að leið­ar­ljósi. Hún seg­ist hafa gengið til liðs við Fram­sókn­ar­flokk­inn vegna þess að hann sé hvorki hægri né vinstri flokkur.

„Ég tengi flokk­inn einnig sterkt við að vera ein­fald­lega eins og Íslend­ingur sem vill vinna ötul­lega að fyrir landið sitt enda er Framsókn elsti stjórn­mála­flokkur lands­ins. Hann er flokkur sem leggur áherslu á sam­vinnu og mála­miðl­anir. Það skal vera nýr tónn stjórn­mál­anna og þannig vil ég vinna í Framsókn fyrir Ísland.“

Halla Hrund seg­ist ætla að beita sér fyrir auð­linda­málum, lands­byggð­inni, sam­kennd og hús­næð­is­málum. 

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Þetta sem helst nú varast vann / varð þó að koma yfir hana"
    Virkjana-og vindmylluflokkurinn af öllum öðrum!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár