Oddný gefur ekki kost á sér

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrrum ráð­herra, mun ekki sækj­ast eftir því að kom­ast á þing í kosn­ing­unum í nóv­em­ber. Aðrir þing­menn hafa lýst því yfir í dag að þeir muni ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri.

Oddný gefur ekki kost á sér

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér í kom­andi alþing­is­kosn­ingum. Þessu greindi hún frá á Facebook rétt í þessu. 

Oddný hefur setið á þingi fyrir Suð­ur­kjör­dæmi frá árinu 2009. Hún var fjár­mála­ráð­herra árin 2011-2012, þá var hún einnig iðn­að­ar­ráð­herra á tíma­bili árið 2012. „Ég hef verið að melta þessa ákvörðun með mér og fjöl­skyldu minni lengi og þetta er nið­ur­staðan. Þetta verður mitt síð­asta kjör­tíma­bil,“ segir hún.

Oddný er annar tveggja fyrr­ver­andi ráð­herra í þing­liði Sam­fylk­ing­ar­innar, því auk hennar sat Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir sem ráð­herra í hrun­stjórn­inni. Þórunn var odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum og vill vera það aftur nú. Þar hefur Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ingar í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar, hins vegar skorað hana á hólm. Hann hefur líka ráð­herra­reynslu, eftir að hafa setið í eitt ár sem vel­ferð­ar­ráð­herra í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins. 

Steinunn Þóra og Óli Björn tilkynntu fyrr í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár