Reiði á Keflavíkurflugvelli vegna lögregluaðgerða gegn Yazan

Ellefu ára palest­ínskur lang­veikur drengur var vak­inn þar sem hann lá á sjúkra­beði í nótt. Vísa átti honum og for­eldrum hans úr landi. Þessi drengur heitir Yazan Tamimi og hefur brott­vísun hans verið mót­mælt harð­lega. Brott­vísun hans var frestað á níunda tím­anum í morgun.

Mótmælt Frá mótmælum gegn brottvísun Yazans í morgun.

Fjöldi fólks mót­mælti brott­flutn­ingi Yazans Tamimi á Kefla­vík­ur­flug­velli í nótt. Rétt fyrir mið­nætti var Yazan nefni­lega vak­inn þar sem hann lá í Rjóðrinu, hjúkr­unar- og end­ur­hæf­ing­ar­deild Land­spít­al­ans fyrir lang­veik og fötluð börn sem þarfn­ast mik­illar hjúkr­unar og umönn­unar. 

Lög­reglan var mætt til þess að flytja hann út á Kefla­vík­ur­flug­völl þar sem honum var haldið síma­lausum og ein­angr­uðum þar til flytja átti hann til Spánar í morgun. 

Sem fyrr segir mætti fjöldi fólks á flug­stöð­ina til að mót­mæla aðgerðum lög­reglu og trommu­sláttur barst um flug­stöð­ina. Með­fylgj­andi mynd­bönd eru tekin á vett­vangi. 

Yazan var síðan fluttur aftur á Land­spít­ala í morgun. Vísir greindi frá því að dóms­mála­ráð­herra hefði stöðvað brott­flutn­ing­inn.

Hver er þessi Yazan? 

Heim­ildin birti ítar­legt við­tal við Yazan og for­eldra hans, Ferial og Mohsen, um miðjan maí­mánuð. Þar sögðu þau sögu hans. Yazan þjá­ist af vöðva­hrörn­un­ar­sjúk­dómnum Duchenne sem styttir lífslíkur fólks veru­lega og skerðir ýmsa hreyfi­getu. Yazan missti göngu­get­una níu ára gam­all og lýstu for­eldrar hans því þannig. 

„Ég finn ekki fyrir fót­leggj­unum mínum,“ hafði hann æpti Yazan upp fyrir sig nokkrum dögum eftir níu ára afmælið sitt.

Þau reyndu að róa dreng­inn sinn niður en hann grét: „Þið verðið að fara með mig á spít­ala.“

Í Palest­ínu gat hann ekki fengið við­eig­andi heil­brigð­is­að­stoð svo for­eldr­arnir þurftu að sækja hana til Ísrael og greiða fyrir hana sjálf. Til þess þurfti þau að taka að sér alla þá vinnu sem þeim bauðst og jafn­vel þegar þau gátu greitt fyrir þjón­ust­una var þeim oft ómögu­legt að útvega Yazan hana því þau fengu ekki alltaf leyfi til þess að fara með hann yfir til Ísraels. 

Yazan hrak­aði með ári hverju en þarna þar sem hann lá níu ára gam­all á gólf­inu á heim­ili sínu og æmti af sárs­auka höfðu orðið kafla­skil. Fæturnir höfðu gefið sig.

„Ég er fót­leggir þínir, ég mun hjálpa þér,“ sagði faðir Yazans, Mohsen, síðar við hann. Mohsen fór að bera son sinn til og frá skól­anum og þau Ferial, móðir Yazans, þurftu að minnka við sig vinnu til þess að geta aðstoðað dreng­inn sinn. Þannig urðu tekj­urnar enn minni og leið­irnar til þess að koma Yazan undir lækn­is­hendur því af enn skorn­ari skammti.

Svo fóru tæki­færin fyrir Yazan líka að verða að nán­ast engu. 

„Kenn­ur­unum fannst erfitt að taka ábyrgð á því sem gæti gerst í skól­anum. Þeir sögðu mér að það væri betra fyrir Yazan að vera bara heima því skól­inn væri ekki vel búinn. Þeir komu þeim skila­boðum til okkar að hann ætti að vera heima, við ættum ekki að koma aftur með hann í skól­ann,“ segir Mohsen. 

Í heila viku fór Ferial aftur og aftur með Yazan í skól­ann en hann fékk ekki að koma inn í tíma. Krakk­arnir stríddu honum. „Einn benti á mig og sagð: Sjáið hann, hann getur ekki gengið,“ segir Yazan frá daufur í dálk­inn. 

Mohsen segir að sonur hans hafi farið að breyt­ast í kjöl­farið. 

„Hann var með mjög sterkan per­sónu­leika en hann fór að verða nið­ur­lútur, bera sig öðru­vísi. Hann vildi ekki að vinir hans eða frænd­fólk sæi hann. Við fórum að velta því fyrir okkur hvort við gætum flutt í annað land,“ segir Mohsen.

Hann hafði heyrt af því að ef fjöl­skyldan gæti kom­ist til Evrópu þá væri þar betri heil­brigð­is­þjón­ustu að fá. Þegar hann skoð­aði bestu löndin í því skyni, örugg­ustu löndin og löndin sem væru best fyrir börn kom eitt land aftur og aftur og aftur upp í leit­inni: Ísland. 

„Það var mín skylda að finna það besta fyrir barnið okkar. Svo ég hugs­aði með mér að við þyrftum að fara,“ segir Mohsen.

Hann heyrði af því að það væri auð­velt fyrir palest­ínska rík­is­borg­ara að fá vega­bréfs­á­ritun á Spáni svo fjöl­skyldan sótti um og fékk jákvætt svar vorið 2023. Þau seldu hús­gögnin sín og önnur verð­mæti og slógu lán hjá vinum sínum. Svo voru þau allt í einu komin til Spánar og tveimur dögum síðar til Íslands. Þar tóku við þeim týpískar íslenskar aðstæður: Kuldi og rign­ing. Suddi. Fjöl­skyldan var létt­klædd.

„Bíðið aðeins hér, ég ætla að fara út og sjá hvernig veðrið er,“ sagði Mohsen við Ferial og Yazan. Þegar hann kom inn bætti hann við: „Veðrið er mjög slæmt, ekki það sem ég var að búast við. Ef ykkur líkar ekki við þetta skulum við frekar fara eitt­hvað annað.“

„Pabbi, ég vil vera hér,“ sagði Yazan að bragði. Ekkert óhress með sudd­ann. 

Stuttu eftir að fjöl­skyldan kom til lands­ins og sótti um hæli fengu þau hér heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir Yazan: Sjúkra­þjálfun, sál­fræði­að­stoð, eft­ir­lit hjá lungna­lækni, hjarta­lækni, bækl­un­ar­lækni og tauga­lækni. Því sjúk­dóm­ur­inn er flók­inn, eins og Guðjón Reykdal Ósk­ars­son, doktor í líf- og lækna­vís­indum, útskýrir. Guðjón er sjálfur með duchenne og þekkir því veru­leika Yazans betur en margir aðrir. Hann segir að hvert ein­asta áfall geri sjúk­dóm­inn verri og slíkur skaði er kom­inn til að vera. 

„Þessi sjúk­dómur gengur ekki til baka,“ segir Guðjón og um aðstæður Yazans, að þurfa ofan á erf­ið­leik­ana sem sjúk­dóm­ur­inn hefur í för með sér að vera vísað úr landi þar sem hann hefur fengið almenni­lega þjón­ustu: „Hræðsla mín ef ég þyrfti að lenda í þessu væri alveg svaka­leg.“ 

Kærunefndin sagði Yazan ekki vera í eftirliti

Í vor varð Yazan fyrir nýju áfalli. Fjöl­skyldan fékk end­an­lega neitun um hæli hér á landi vegna þess að þau höfðu fengið vega­bréfs­á­ritun á Spáni. Ekki var talið efni til að taka til­lit til sér­stakra ástæðna á grund­velli heilsu­fars Yazans, en kæru­nefnd­inni er heim­ilt að taka mál til efn­is­með­ferðar á þeim grund­velli þó að þau falli undir dyfl­in­ar­reglu­gerð­ina.

Fjöl­skyldan skyldi fara aftur til Spánar á grund­velli dyfl­in­ar­reglu­gerð­ar­innar, jafn­vel þó að þar séu þau ekki með stöðu flótta­manns eða hæl­is­leit­enda og eigi því sem stendur ekki rétt á að fá þar við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir Yazan. Kæru­nefndin sagði, rang­lega miðað við nokkur lækn­is­vott­orð sem Heim­ildin hefur fengið að sjá, að Yazan hefði „ekki verið undir neinu sér­stöku eft­ir­liti eða í með­ferð vegna [sjúk­dóms­ins] hér á landi.“

„Kæru­nefnd telur ljóst að gögn máls­ins beri ekki með sér að heilsu­far kærenda og barns þeirra sé með þeim hætti að þau telj­ist glíma við mikil og alvar­leg veik­indi, s.s. skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm og með­ferð við honum sé aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglu­gerð­ar­innar,“ segir í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar. 

Þá mat hún það þannig að fjöl­skyld­unni ætti að standa til boða full­nægj­andi heil­brigð­is­þjón­usta á Spáni, en að þau gætu þurft að greiða fyrir hana sjálf. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar hefur sagt það hvorki tryggt að Yazan fái aðgang að hæl­is­kerf­inu né heil­brigð­is­þjón­ustu. 

Fyr­ir­hug­aðri brott­vísun Yazans hefur verið mót­mælt harð­lega af ýmsum sam­tökum fatl­aðs fólks og barna. Þá hafa ítrekað farið fram mót­mæli á Aust­ur­velli. Á Kefla­vík­ur­flug­velli í morgun lét fólk í sér heyra. Það virð­ist hafa virkað, miðað við það að Yazan á að hafa verið færður aftur af vell­inum og í Rjóðrið. 

Fréttin hefur verið upp­færð

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Hvað er að hjá okkar stjórnvöldum? Notar einhver þessa blessuðu Dyflinarreglugerð lengur? Drengurinn á að fá landvistarleyfi ásamt foreldrum sínum, basta
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár