Útsvarskóngar og tekjukóngar ólíkur hópur

Af þeim sem högn­uð­ust mest á sölu kvóta á síð­asta ári, greiddi trillu­karl á Sel­tjarn­ar­nesi lang­sam­lega mest í útsvar og tekju­skatt. Auð­veld­lega er hægt að spara sér háar fjár­hæðir í skatt eftir því hvernig tekjur eru flokk­aðar. Það kostar ríkið millj­arða og var fyrir fjórum árum sagt for­gangs­mál stjórn­valda að breyta. Það hefur þó enn ekki gerst.

Útsvarskóngar og tekjukóngar ólíkur hópur

Haraldur Ingi Þor­leifs­son var sá ein­stak­lingur sem gaf upp hæstu launa­tekj­urnar á Íslandi í fyrra. Af 1.312 millj­óna króna árs­tekjum voru ein­ungis 6 millj­ónir gefnar upp sem fjár­magnstekjur. 1.306 millj­ónir króna gaf Haraldur upp sem launa­tekjur og greiddi því mun hærri skatt en hann hefði kom­ist upp með.

Raunar er áhuga­vert að bera saman lista yfir tekju­hæstu Íslend­inga síð­asta árs, eins og hún birt­ist í álagn­ing­ar­skrá Skatts­ins, og lista yfir þá sem voru með hæstu launa­tekj­urnar, það er að segja greiddu mest í tekju­skatt og útsvar.

Þar birt­ist allt önnur mynd en sú sem hátekju­list­inn sýnir.

Samkvæmt henni skilar það sveit­ar­fé­lagi tutt­ugu sinnum hærri útsvars­tekjum þegar trillu­kall selur kvóta fyrir nokkur hund­ruð millj­ónir en þegar fjög­urra manna fjöl­skylda selur tog­ara og kvóta fyrir á annan tug millj­arða króna.

Marg­sinnis hefur verið bent á að reglu­verk hér­lendis umbuni þeim sem hvað mest hafa umleikis og geti því „valið“ sér að …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þetta eru auðvitað engin ný tíðindi. Það lak út við samningaborðið 1990 að þegar Sjálfstæðisflokkurinn kæmist á ný að kjötkötlunum án þessa vera háður vinstri flokki myndi flokkurinn beita sér fyrir tilkomu 10% fjármagnstekjuskatts. Það gat flokkurinn strax breytt þessu. Sagt var að það yrði gert samkvæmt tillögum Péturs Blöndal um fjármagnstekjuskatt.

    Hér í þessari grein gleyma skrifendur að minnast á lífeyrissjóðina. Samkvæmt því hvernig þetta var framkvæmt að þá var ekki greitt í lífeyrissjóð af þessum tekjum. Frá og með þessum tíma sem frjármagnstekjur tóku höfðu þær allt aðrar skattalegar reglur.

    Það sem einnig stingur í augu er að þessir aðilar njóta miklu meiri þjónustu frá sveitar-félaganna vegna miklu stærri húseigna sem þeir eru sagðir eigendur að eða fyrirtæki þeirra og miklu meiri bílaeignar.

    Þá hefur sjálftaka þeirra út úr fyrirtækjunum alltaf verið ljós launafólki sem starfar hjá fyrirtækjum sem þetta fólk er sagt eiga.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár