Í hjólastól á Lækjartorgi: „Það kemur ekki til greina að halda kjafti“

Þrátt fyrir hávær mót­mæli Íslend­inga, inn­flytj­enda og fjöl­margra rétt­inda­sam­taka er enn á dag­skrá að vísa 11 ára gömlum palest­ínskum dreng með hrörn­un­ar­sjúk­dóm úr landi. Nú reynir stuðn­ings­fólk hans nýja aðferð til þess að ná eyrum stjórn­valda, að setj­ast niður fyrir dreng­inn í stað þess að standa upp fyrir honum.

<span>Í hjólastól á Lækjartorgi:</span> „Það kemur ekki til greina að halda kjafti“
Rót­ar­sætið Julia er á meðal þeirra sem sitja í stólnum í dag. Þar getur stuðn­ings­fólk Yazans tyllt sér næstu daga. Mynd: Golli

Í glamp­andi sól á Lækj­ar­torgi sat kona í hjóla­stól sem situr á rótum trés. Hún sat ekki þar vegna þess að hún gæti ekki gengið heldur sat hún þar fyrir dreng sem missti göngu­getu sína þegar hann var 9 ára gam­all: Yazan Aburajab Tamimi. 

Vísa á Yazan, sem er nú 11 ára gam­all og glímir við vöðva­hrörn­un­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne, úr landi í byrjun júlí ásamt for­eldrum hans Ferial og Mohsen. Þessu hafa Íslend­ingar sem og inn­flytj­endur hér á landi mót­mælt hástöfum vikum saman. Það hafa einnig ótal sam­tök gert, þar á meðal Öryrkja­banda­lagið, Þroska­hjálp og Félags­ráð­gjafa­fé­lag Íslands. 

En mót­mælin, og vott­orð lækna sem segja að heilsu Yazans sé stefnt í hættu ef langt hlé verður á heil­brigð­is­þjón­ustu hans, hafa ekki borið árangur enn. 

Vilja að Yazan skjóti rótum

Konan sem sat í hjóla­stólnum, lista­konan Julia Mai, var þó ekki til­búin í að gef­ast upp. 

„Það kemur ekki til greina að halda kjafti,“ segir Julia. „Það kemur ekki til greina að stoppa, segja: Hér er eng­inn árangur. Maður heldur bara áfram, meira og meira og meira.“

Stóllinn er lista­gjörn­ingur sem spratt upp úr hug­mynd Anahitu Babaei sem hún, Julia og Nadira Kolbrún hrintu í fram­kvæmd. Fólki sem vill sýna sam­stöðu, eða sam­setu, með Yazan gefst kostur á að setj­ast í stól­inn, í korter eða lengur í senn og er ætl­unin að halda gjörn­ingnum áfram næstu daga. Þátt­tak­endur skrá sig á sér­stakt vak­taplan.

„Ræturnar tákna það að við viljum að hann skjóti rótum hér,“ segir Julia. „Við segjum alltaf: Stattu upp fyrir þessu og hinu en nú er það: Sestu niður fyrir Yazan.“

Kærunefndin sá ekki ástæðu til að skoða sérstakar aðstæður vegna heilsufars Yazan

Yazan og for­eldrar hans fengu neitun um hæli hér á landi vegna þess að þau höfðu áður fengið vega­bréfs­á­ritun á Spáni. Ekki var talið efni til að taka til­lit til sér­stakra ástæðna á grund­velli heilsu­fars Yazans. Fjöl­skyldan er ekki með hæli á Spáni og veit ekki hvort Yazan muni hafa aðgang að þeirri heil­brigð­is­þjón­ustu sem hann þarf þar. 

„Kæru­nefnd telur ljóst að gögn máls­ins beri ekki með sér að heilsu­far kærenda og barns þeirra sé með þeim hætti að þau telj­ist glíma við mikil og alvar­leg veik­indi, s.s. skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm og með­ferð við honum sé aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglu­gerð­ar­innar,“ segir í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar. 

Þá mat hún það þannig að fjöl­skyld­unni ætti að standa til boða full­nægj­andi heil­brigð­is­þjón­usta á Spáni, en að þau gætu þurft að greiða fyrir hana sjálf. 

Í við­tali við Heim­ild­ina í maí spurði Albert Björn Lúð­vígs­son, tals­maður fjöl­skyld­unnar, sig hvernig fjöl­skyldan ætti að greiða fyrir þjón­ust­una á Spáni. 

„Er sem sagt í lagi að hann fái ekki lífs­nauð­syn­lega þjón­ustu á Spáni í raun því það sé vissu­lega þjón­usta fáan­leg fyrir útvalda á einka­reknum sjúkra­húsum í land­inu?“ spyr Albert. 

Í lækn­is­vott­orð­unum, sem Albert skil­aði inn fyrir hönd fjöl­skyld­unnar þegar hann lagði fram end­ur­tekna umsókn fyrir hana, segir m.a. að það sé afar mik­il­vægt fyrir Yazan að hafa „hefð­bundið þétt eft­ir­lit sér­fræð­inga í vöðva­rýrn­unum, lungna­læknis, inn­kirtla­lækis og hjarta­læknis.“

Þá kemur þar fram að ef hann fær ekki þjón­ust­una muni það hafa mjög nei­kvæð áhrif á Yazan.

„Ég hef unnið við þetta í næstum 8 ár og aldrei séð svona afger­andi lækn­is­vott­orð,“ sagði Albert. 

Berst fyrir Yazan þó þau hafi aldrei hist

Þrátt fyrir að hafa aldrei hitt Yazan þá skiptir mál­stað­ur­inn Juliu það miklu máli að hún er til­búin í að sitja í stólnum til skiptis við aðra klukku­stundum saman. 

„Ég þarf ekki að hitta hann til þess að vera á móti því að honum verði brott­vísað,“ segir Julia.

„Í heima­landi hans í Palest­ínu er þjóð­ar­morð í gangi akkúrat núna. Ég sé svo [tvö­falt sið­gæði] hjá Útlend­inga­stofnun og okkar rík­is­stjórn sem brott­vísar hægri og vinstri þegar við erum með fólk sem er ekki hvítt.“

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár