Óvæntur fornleifafundur á hafsbotni: Fyrsta úthafsskipið fundið?

Óvæntur fornleifafundur á hafsbotni: Fyrsta úthafsskipið fundið?
Voru Kana­ans­menn þvert oní það sem við höfm talið miklir sigl­inga­kappar? Og kunnu þeir að sigla yfir hafið, en ekki ein­ungis með­fram ströndum? Myndin sýnir end­ur­gerð skips af því tagi sem sökk fyrir 3.400 árum.

Fyrir ári síðan var rann­sókn­ar­skip á ferð­inni all­langt úti í haf­inu vestur af ströndum Ísraels. Það var að leita að ummerkjum um gaslindir á hafs­botni. Ekki fer sögum af því hvort þær fund­ust en hins vegar sáu vís­inda­menn í tækjum sínum und­ar­lega þúst á botn­inum á meira en tveggja kíló­metra dýpi.

Fjar­stýrðar mynda­vélar voru sendar niður í djúpið og já, þarna reynd­ist vera flak, og ber­sýni­lega af frakt­skipi aftan úr fornöld.

Nú fyrir fáeinum dögum kynntu vís­inda­menn ísra­elsku forn­leifa­stofn­un­ar­innar nið­ur­stöður bráða­birgða­rann­sókna á flak­inu, en þeir höfðu verið fengnir til aðstoðar af orku­fyr­ir­tæk­inu sem sent hafði rann­sókn­ar­skipið á vett­vang.

Fjar­stýrður kaf­bátur hafði verið sendur niður að flak­inu og hann náði upp tveim leir­kerjum sem í flak­inu höfðu verið.

Því miður höfðu lokin á kerj­unum ekki þolað svo langa vist svo djúpt á sjáv­ar­botni og allt sem í kerj­unum var virt­ist horfið og í stað­inn voru þau fullt af sandi. Ann­að­hvort hafði það sem í kerj­unum var leyst upp í sjónum eða það hafði hrein­lega verið étið af sjáv­ar­dýrum.

Nú stendur til að sækja fleiri ker og gera nákvæmar rann­sóknir á sand­inum í þeim. Vonir standa til að ein­hverjar örlitlar leifar af inni­hald­inu séu eftir, von­andi nógu mikið til að hægt verði að efna­greina þær.

Mynda­vélar sýndu að flakið á hafs­botni virt­ist afar heil­legt.Myndin er fengin að láni frá ísra­elska blað­inu Haaretz.

Hitt sáu vís­inda­menn­irnir fljótt hverjir höfðu búið til þessi leir­ker og gengið frá þeim um borð í skip­inu og hvenær. Skips­flakið reynd­ist vera 3.400 ára gam­alt sem þýðir að skipið var á ferð­inni um árið 1375 FT — fyrir upp­haf tíma­tals okkar, eða fyrir Krist.

Og kerin voru af gerð sem vís­inda­menn­irnir þekktu. Þau voru ber­sýni­lega búin til af Kana­ans­mönnum, íbúum á því svæði sem síðar kall­að­ist Palest­ína, Ísrael, Júdea ...

Gyð­inga­þjóðin, sem varð til sem sér­stök þjóð um þetta leyti og þó lík­lega frekar nokkru seinna, hún var hluti Kana­ans­manna.

Ísra­elsku vís­inda­menn­irnir vekja athygli á því að hingað til hafi Kana­ans­menn ekki verið þekktir sigl­inga­kappar. Ef frakt­skipið sem fórst þarna úti í haf­inu reyn­ist hafa verið gert út og mannað af Kana­ans­mönnum getur það breytt veru­lega mynd okkar af þeim.

En að sjálf­sögðu gæti skipið hafa verið til dæmis fönikískt, þótt farm­ur­inn hafi verið útbú­inn af Kana­ans­mönnum. Vonast er til að frek­ari rann­sóknir á næst­unni geti upp­lýst það.

En allra merki­leg­ast er samt hve langt frá ströndu flakið fannst. Í þá daga voru ýmsar þjóðir við Mið­jarð­ar­hafi byrj­aðar að smíða skip og sigla um hafið en eftir því sem best var vitað höfðu þær allar enn þann hátt­inn á að sigla með­fram ströndum og hætta sér aldrei úr land­sýn.

Hvort tveggja var að skipin voru yfir­leitt smá og veik­burða og þoldu illa óveður sem geisuðu á opnu hafi og svo höfðu menn engin sigl­inga­tæki sem tryggðu öruggar sigl­ingar um úthöfin. Vissu­lega voru sigl­inga­menn byrj­aðir að stýra eftir sól, tungli og stjörnum en kunnu þó ekki að sigla langar leiðir úr land­sýn.

Að því er menn héldu.

Getur verið að sjó­menn­irnir hafi fyrir 3.400 árum haft yfir að ráða ein­hverjum full­komn­ari sigl­inga­tækjum en þeim sem við höfum hingað til vitað um? Það er ekki óhug­andi. Við vitum satt að segja furðu lítið um hinar fyrstu sigl­inga­þjóðir og sigl­inga­þekk­ingu þeirra.

Þótt Mið­jarð­ar­hafið sé vissu­lega ekki úthaf, þá má þó kalla þau úthafs­skip, þau skip sem eru fær um að sigla langar leiðir yfir sjó langt úr land­sýn.

Svo var þarna komið eitt fyrsta úthafs­skipið?

Nokkurn veg­inn þar sem línan endar fannst flakið á hafs­botni.

Hvað sem því líður, ef skipið hefur verið á ferð á þeim slóðum þar sem flakið fannst af fúsum og frjálsum vilja skip­stjórn­ar­mann­anna, þá þarf að end­ur­skoða ýmis­legt því flakið fannst hvort meira en minna en 90 kíló­metra frá strönd Ísraels.

Miklu lengra úti í haf­inu en vitað var til að nokkur kaup­skip hættu sér fyrir 3.400 árum.

Að sjálf­sögðu getur verið að skipið hafi hrak­ist burt frá strönd­inni í ill­viðri og síðan sokkið.

Ýmislegt bendir þó til þess að svo hafi ekki verið og sjó­menn­irnir hafi verið á ferð­inni svo langt frá landi af því þeir hafi ein­fald­lega kunnað að sigla yfir hafið — verið til dæmis á leið­inni til Kýpur eða jafn­vel Grikk­lands, nú eða Egifta­lands — fremur en þræða strand­lengj­una.

Jacob Sharvit og dr. Karnit Bahartan skoða leir­kerin af hafs­botni.Myndin er frá ísra­elsku forn­leifa­stofn­un­inni en birt­ist í blað­inu Haaretz.

Hið helsta sem þykir benda til þess er að farmur skips­ins — allur fjöld­inn af leir­kerjum — var ósnertur um borð. Ef sjó­menn­irnir hefðu hrak­ist burt frá ströndum og borist langar leiðir út á hafið, þá er ekki ólík­legt að þeir hefðu reynt að létta á skipi sínu með því að varpa farm­inum eða hluta hans útbyrðis.

Eða þá, ef skipið hefur hrak­ist undan ill­veðrum langt út á haf, þá er líka alls ekki ósenni­legt að farm­ur­inn hefði eitt­hvað gengið til og því dreifst víða um hafs­botnin þegar skipið sökk loks.

En svo fór ekki, allur farm­ur­inn var á sínum stað í flak­inu. Skipið virð­ist hafa sokkið mjög í heilu lagi og á skömmum tíma.

Hvers vegna er ekki vitað. Kannski verða menn nær um það eftir að fjar­stýrði kaf­bát­ur­inn sem þarna er nú að störfum hefur grafið upp allt flakið.

Hér er alt­ént að ýmsu að hyggja.

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár