Alvarlegt feilspor í ballettinum

Ný úttekt á kennslu­háttum og fram­koma kenn­ara við Ball­ett­skóla kon­ung­lega leik­húss­ins í Kaup­manna­höfn gagn­vart nem­endum er áfell­is­dómur yfir stjórn­endum skól­ans og leik­húss­ins. Úttektin var gerð í kjöl­far umfjöll­unar eins af dönsku dag­blöð­unum og vakti mikla athygli.

Ball­ett­skóli kon­ung­lega leik­húss­ins í Kaup­manna­höfn var stofn­aður árið 1771, sama ár og Kon­ung­legi ball­ett­inn var form­lega stofn­aður. Ball­ett­flokk­ur­inn hafði þó starfað frá árinu 1748 en það ár hófst starf­semi Kon­ung­lega leik­húss­ins við Kóngsins Nýjatorg. Ball­ett­inn er hátt skrif­aður í ball­ett­heim­inum og nýtur þar bæði virð­ingar og álits. Margir þekktir dans­arar hafa gegnum árin stigið sín fyrstu spor í Ball­ett­skól­anum og síðan fengið fast starf við Kon­ung­lega ball­ett­inn, þekkt­astur í þeim hópi er vafa­lítið August Born­on­ville (1805 – 1879).

Skólinn og leik­húsið hafa alla tíð verið nátengd og skól­inn hefur alla tíð haft aðsetur í húsa­kynnum leik­húss­ins við Kóngsins Nýjatorg. Nemendur eru teknir inn í Ball­ett­skól­ann að und­an­gengnum umfangs­miklum inn­töku­prófum. Skólinn er með bekkja­kerfi, frá 0. – 9. bekkjar ásamt þriggja ára reynslu­tíma­bili. Frá og með öðru ári getur nem­endum verið vísað úr skól­anum stand­ist þeir ekki þær kröfur sem gerðar eru til þeirra.

Ball­ett­skól­inn er jafn­framt grunn­skóli, sá hluti er kall­aður Læseskolen, um langt ára­bil hefur N. Zahles skól­inn í Kaup­manna­höfn ann­ast hina hefð­bundnu grunn­skóla­kennslu.  Skólinn er rek­inn með fjár­styrk frá rík­inu auk skóla­gjalda nem­enda. Danska náms­eft­ir­lits­stofn­unin (Styrel­sen for Und­ervisn­ing og Kvalitet) hefur eft­ir­lit með bók­nám­inu sem fram fer í skól­anum, en ekk­ert eft­ir­lit er með ball­ett­kennsl­unni. 

BallettBall­ett­skóli kon­ung­lega leik­húss­ins í Kaup­manna­höfn og leik­húsið hafa alla tíð verið nátengd og skól­inn hefur alla tíð haft aðsetur í húsa­kynnum leik­húss­ins við Kóngsins Nýjatorg.

Kusk á glansmyndina

Haustið 2023 birti dag­blaðið Politi­ken langan greina­flokk um Ball­ett­skóla Kon­ung­lega leik­húss­ins, sem blaða­menn höfðu unnið að um langt skeið. Í greina­flokknum birt­ust við­töl við 30 fyrr­ver­andi nem­endur ball­ett­skól­ans en sam­tals ræddu blaða­menn­irnir við 48 ein­stak­linga, nem­endur og for­eldra. Rétt er að geta þess að umfjöll­unin sneri ein­göngu að ball­ett­skól­anum en ekki hinu hefð­bundna grunn­skóla­námi í Læseskolen. Greina­flokkur Politi­ken vakti mikla athygli og um hana var fjallað í nær öllum dönskum fjöl­miðlum. Ball­ett­skól­inn hefur iðu­lega verið sveip­aður eins­konar dýrð­ar­ljóma en yfir þess­ari umfjöllun var eng­inn dýð­ar­ljómi, heldur dökkt ský.

Líkamleg og andleg vanlíðan

Eins og áður sagði byggði umfjöllun Politken á við­tölum við fjöl­marga fyrr­ver­andi nem­endur sem voru í skól­anum á árunum 2010 – 2020 og einnig for­eldra og aðstand­endur nem­enda.

Meðal þeirra sem rætt var við er Klara Maj Stockmarr, hún var í skól­anum frá 11 til 14 ára ald­urs, hún er 24 ára í dag. Hún lýsti því í við­tal­inu að sér og öðrum, nem­endum allt niður í 9 ára aldur hefði sífellt verið skipað að létt­ast, þótt allir í hópnum hafi verið grannir, sumir allt of grannir. „Ég fór að æfa sífellt meira, hljóp, hjólaði og synti, allt til að geta upp­fyllt kröfur kennar­anna og skóla­stjór­ans,“ sagði Klara Maj Stockmarr. 17 þeirra fyrr­ver­andi nem­enda, meir­hlut­inn stúlkur, sem Politi­ken ræddi við greindu frá því að þeir hefðu, meðan á nám­inu stóð og allar götur síðan glímt við átröskun, þar á meðal áður­nefnd Klara Maj Stockmarr. Veran í skól­anum hefur einnig leitt til þess að margir úr hópnum hafa þurft að leita til geð­lækna til að ná tökum á lífi sínu, eins og Klara Maj Stockmarr komst að orði.

Drottn­ing fylgist með ball­ett­dönsurumMargir þekktir dans­arar hafa gegnum árin stigið sín fyrstu spor í Ball­ett­skól­anum og síðan fengið fast starf við Kon­ung­lega ball­ett­inn.

Margar stúlkn­anna og sumir drengj­anna (þeir er ætíð miklu færri í skól­anum) lýstu því hvernig þau hefðu nán­ast svelt sig heilu og hálfu dag­ana til að upp­fylla kröfur kennar­anna. Og í mörgum til­vikum dugði það ekki til og þeim neitað um að halda áfram nám­inu. Ball­ett­meist­ar­inn, yfir­maður Ball­ett­skóla Kon­ung­lega leik­húss­ins fylgist grannt með nem­endum á efri stigum skól­ans og þeim sem skara fram úr er gjarna boðin staða í ball­ett­flokknum að námi loknu.

Kvartanir og ábendingar báru engan árangur

Mörgum for­eldrum blöskr­aði sú breyt­ing sem orðið hafði á börn­unum þegar þau komu heim í leyfi. Og sömu­leiðis lýs­ingum þeirra á fram­komu kennar­anna og stjórn­enda skól­ans. Margir for­eldrar höfðu sam­band, ýmist sím­leiðis eða með bréfa­skrifum, við skól­ann en fengu ætíð lítil eða engin svör. Margir for­eldrar hik­uðu einnig við að kvarta. „Ég var viss um að ef ég kvart­aði myndi það bitna á dóttur minni,“ sagði móðir sem Politi­ken ræddi við.

Stjórn Konunglega leikhússins fyrirskipaði rannsókn

Í kjöl­far umfjöll­unnar Politi­ken síð­ast­liðið haust, og í kjöl­farið fleiri fjöl­miðla, beindi Kasper Holten leik­hús­stjóri Kon­ung­lega leik­húss­ins, og æðsti yfir­maður ball­ett­skól­ans, því til stjórnar leik­húss­ins, að fram færi rann­sókn á kennslu­háttum ball­ett­skól­ans og starf­semi hans. Stjórnin fól í fram­hald­inu lög­fræði­stof­unni Horten að ann­ast rann­sókn­ina og skila skýrslu að rann­sókn lok­inni. Lög­fræði­stofan fékk skipun um að vinna hratt og skýrslan barst stjórn leik­húss­ins fyrir skömmu.

Kolsvört skýrsla

Í stuttu máli stað­festir rann­sókn lög­fræði­stof­unnar Horten allt sem fram kom í umfjöllun Politi­ken og er áfell­is­dómur yfir skól­anum og stjórn­endum hans. Í skýrsl­unni eru jafn­framt settar fram 40 ábend­ingar um úrbætur, 8 þeirra eru frá lög­fræði­stof­unni sjálfri en hinar 32 eru frá sál­fræð­ingum og öðrum sér­fræð­ingum. Lagðar eru til gagn­gerar breyt­ingar á starf­semi skól­ans. Lars Barfoed stjórn­ar­for­maður Kon­ung­lega leik­húss­ins (fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra) sagði í við­tali að þess­ari skýrslu yrði ekki stungið undir stól og nú þegar yrði haf­ist handa um úrbætur sam­kvæmt þeim ábend­ingum sem fram koma í skýrsl­unni. Lars Barfoed, sem tók við stjórn­ar­for­mennsk­unni haustið 2023, sagði jafn­framt að leitað yrði aðstoðar fær­ustu sér­fræð­inga, eins og hann komst að orði.

Kasper Holten leik­hús­stjóri Kon­ung­lega leik­húss­ins  (síðan 2018) og Nikolaj Hübbe stjórn­andi ball­etts­ins (frá árinu 2008) hafa báðir beðið fyrr­ver­andi og núver­andi nem­endur ball­ett­skól­ans afsök­unar á öllu því sem miður hefur farið. Núver­andi ráðn­ing­ar­tíma­bil Nikolaj Hübbe rennur út árið 2026 og fyrir nokkrum mán­uðum síðan til­kynnti hann að hann myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­ráðn­ingu.

Þeir Kasper Holten og Nikolaj Hübbe hafa báðir fengið áminn­ingu frá stjórn leik­húss­ins.

ÁminningKasper Holten leik­hús­stjóri Kon­ung­lega leik­húss­ins ásamt Morten Kirkskov leik­hús­stjóra, Nikolaj Hübbe stjórn­anda ball­etts­ins og John Fulljames óperu­stjóra. Kasper og Nikolaj hafa báðir fengið áminn­ingu frá stjórn leik­húss­ins vegna nýrrar úttektar á kennslu­háttum og fram­komu kenn­ara við Ball­ett­skóla kon­ung­lega leik­húss­ins í Kaup­manna­höfn gagn­vart nem­endum.
Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Í myndatexta er ágæt regla að greina frá nöfnum einstaklinga á myndinni í sömu röð og þeir birtast þar.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár