Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Katrín niðurstaða flestra í Kosningaprófi Heimildarinnar

Katrín Jak­obs­dótt­ir lenti oft­ast í fyrsta sæti hjá þeim sem þreyttu Kosn­inga­próf Heim­ild­ar­inn­ar fyr­ir for­seta­kosn­ing­arn­ar 2024. Um fjórð­ung­ur þátt­tak­enda var oft­ast sam­mála fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herr­an­um. Yf­ir 8.000 tóku próf­ið en svör bár­ust ekki frá Vikt­ori Trausta­syni eða Ást­þóri Magnús­syni.

Katrín niðurstaða flestra í Kosningaprófi Heimildarinnar
Vinsælust Katrín Jakobsdóttir lenti oftast í fyrsta sæti í Kosningaprófi Heimildarinnar. Jón Gnarr var í öðru sæti en Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, varð í sjötta sæti. Mynd: Golli

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi, lenti oftast í 1. sæti í Kosningaprófi Heimildarinnar fyrir forsetakosningarnar 2024. Katrín lenti í 1. sæti hjá 24,4 prósent þátttakenda, rétt tæpu prósentustigi lægra en hún hlaut í kosningunum sjálfum. Katrín fékk 25,2 prósent greiddra atkvæða í forsetakosningunum og laut í lægra haldi gegn Höllu Tómasdóttur sem fékk 34,1 prósent greiddra atkvæða. 

Gengi Höllu í Kosningaprófi Heimildarinnar var öllu lakara, en hún reyndist sjötti vinsælasti frambjóðandinn þar sem 8,9 prósent þátttakenda var oftast sammála Höllu. 

Jón Gnarr var næst vinsælasti frambjóðandinn á eftir Katrínu. 17,1 prósent þátttakenda voru oftast sammála Jóni. Þar á eftir kom Arnar Þór Jónsson (14,5 prósent), Halla Hrund Logadóttir (13,1 prósent) og Helga Þórisdóttir (9,4 prósent). 

Halla Tómasdóttir var, sem fyrr segir, í sjötta sæti en í því sjöunda var Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sem lenti í fyrsta sæti í 4,8 prósent tilfella. Baldur Þórhallsson kom þar á eftir en lenti í fyrsta sæti hjá 3,8 prósent þátttakenda. Þar á eftir komu Ásdís Rán Gunnarsdóttir (2,6 prósent) og Eiríkur Ingi Jóhannsson (1,5%). 

Svör bárust ekki frá Viktori Traustasyni og Ástþóri Magnússyni.

Niðurstöðurnar byggja á nafnlausum prófniðurstöðum. Athugið að engin takmörk voru á því hversu oft mátti taka prófið.
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Katrín tapaði og vonandi hættum við að heyra endalaust um þessa manneskju. Hún er eins og poppstjarna! Snúið ykkur að vandamálum almennings og spyrjið frekar af hverju er hún svona hötuð? Ellilífeyrisþegar eru öskureiðir yfir skerðingunum og áhugaleysi á málefnum þeirra, öryrkjar voru látnir borga kjarasamninginn. xD mafían ætlar að breyta stjórnarskránni! Það er ekki gróið um heilt í þessu samfélagi vegna þess að heimilin voru rifin af fólki eftir hrun (löngu eftir hrun n.b. það var búið að halda fólki í taumi í mörg ár) þær íbúðir voru nánast gefnar vinum xD og xB mafíanna. Íslendingar búa við hræðilegan húsnæðisskort og leiguokur. Það er ekkert í lagi hérna . HÆTTIÐ AÐ TALA UM KATRÍNU!
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Þriðji dagur verslunarmanna í Keflavík hvað heita labbakútarnir í Hagkaup? Er með nafnið á forstóra krónunnar(Geirfinnur)Banna þessar skoðanakannanir þetta er notað kunnáttusamlega til að hafa áhrif á allar kosningar og ekkert að marka þetta, eins er þetta notað til að ljúga til um traust á opinberum stofnum sem eru í algjörum ruslflokki vegna spillingar eins og yfirstjórn lögreglunnar og stjórnsýslan. Á Íslandi eru ekki allir jafnir fyrir lögum vegna úrkynjaðar spillingar í stjórnmálflokkum og stjórnsýslu og lögreglu það þorir bara engin af þessum aumingum að taka á þessu vandamáli sem er orðið stórkostlegt á Íslandi og spillingin i lögmannastéttinni hún er skrautleg vegna þess að þetta eru opinberir sýslumenn samkvæmt lögum og bera réttindi og skyldur sem slíkir og fjölmiðlarnir þetta ástand myndi ekki líðast nema vegna þess að fjölmiðlarnir eru gjörspilltir líka sérstaklega þeir sem eru komnir á ríkisjötuna
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins
GreiningForsetakosningar 2024

Halla Tóm­as­dótt­ir verð­ur sjö­undi for­seti lýð­veld­is­ins

Kjarna­fylgi tveggja efstu fram­bjóð­enda til for­seta var hníf­jafnt dag­inn fyr­ir kosn­ing­ar. Fjöldi kjós­enda valdi að velja á milli þeirra á kjör­dag og lang­flest­ir þeirra völdu Höllu Tóm­as­dótt­ur, sem vann af­ger­andi sig­ur. Þrjár kon­ur fengu þrjú af hverj­um fjór­um at­kvæð­um, kjós­end­ur Jóns Gn­arr kusu „með hjart­anu“ og fjöldi fram­bjóð­enda fékk mun færri at­kvæði en með­mæli með fram­boði sínu.

Mest lesið

„Eiginmaður minn hefur aldrei átt eignarhlut í Skeljungi“
1
Stjórnmál

„Eig­in­mað­ur minn hef­ur aldrei átt eign­ar­hlut í Skelj­ungi“

Hild­ur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, fjall­aði ít­rek­að um samn­inga sem vörð­uðu lóð­ir bens­ín­stöðva þrátt fyr­ir að eig­in­mað­ur henn­ar stýrði móð­ur­fé­lagi Skelj­ungs. Lóð­ir bens­ín­stöðva Skelj­ungs hafa síð­an ver­ið seld­ar til tengdra fé­laga fyr­ir vel á ann­an millj­arð króna. Hún seg­ir hæfi sitt aldrei hafa kom­ið til álita.
„Ég sprautaði mig í fyrsta skipti í meðferð“
4
ÚttektTýndu strákarnir

„Ég spraut­aði mig í fyrsta skipti í með­ferð“

Gabrí­el Máni Jóns­son upp­lifði sig alla tíð utangarðs. Hann féll ekki inn í hefð­bund­inn ramma skóla­kerf­is­ins og var snemma tek­inn út úr hópn­um. Djúp­stæð van­líð­an braust út í reiði og hann deyfði sára höfn­un með efn­um. Þar til hann fékk nóg og náði bata. „Ég gat ekki sætt mig við að vera gæ­inn sem ég hafði fyr­ir­lit­ið og hat­að frá barnæsku.“
„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“
6
ÚttektTýndu strákarnir

„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“

„Mér voru gef­in erf­ið spil og þeg­ar þú kannt ekki leik­inn er flók­ið að spila vel úr þeim,“ seg­ir Arn­ar Smári Lárus­son, sem glímdi við al­var­leg­ar af­leið­ing­ar áfalla og reyndi all­ar leið­ir til þess að deyfa sárs­auk­ann, þar til það var ekki aft­ur snú­ið. „Ég var veik­ur, brot­inn og fannst ég ekki verð­skulda ást.“ Hann árétt­ar mik­il­vægi þess að gef­ast aldrei upp. „Það er alltaf von.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Týndu strákarnir – sem fundu leiðina heim
2
Úttekt

Týndu strák­arn­ir – sem fundu leið­ina heim

Á átján ára af­mæl­is­dag­inn vakn­aði Fann­ar Freyr Har­alds­son á neyð­ar­vist­un og fékk lang­þráð frelsi eft­ir að hafa þvælst í gegn­um með­ferð­ar­kerfi rík­is­ins. Hann, Gabrí­el Máni Jóns­son og Arn­ar Smári Lárus­son lýsa reynslu sinni af kerf­inu sem átti að grípa þá sem börn og ung­ling­ar. Tveir þeirra byrj­uðu að sprauta sig í með­ferð, samt sam­mæl­ast þeir um að þessi inn­grip séu lík­leg­asta ástæð­an fyr­ir því að þeir lifðu af. Ekk­ert lang­tíma­úr­ræði er fyr­ir stráka sem stend­ur.
„Eiginmaður minn hefur aldrei átt eignarhlut í Skeljungi“
3
Stjórnmál

„Eig­in­mað­ur minn hef­ur aldrei átt eign­ar­hlut í Skelj­ungi“

Hild­ur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, fjall­aði ít­rek­að um samn­inga sem vörð­uðu lóð­ir bens­ín­stöðva þrátt fyr­ir að eig­in­mað­ur henn­ar stýrði móð­ur­fé­lagi Skelj­ungs. Lóð­ir bens­ín­stöðva Skelj­ungs hafa síð­an ver­ið seld­ar til tengdra fé­laga fyr­ir vel á ann­an millj­arð króna. Hún seg­ir hæfi sitt aldrei hafa kom­ið til álita.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár