Tapaði tæpri milljón á dag og fékk nýtt hlutafé frá Lýsi og útgerðinni

Útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins tap­aði 346 millj­ónum í fyrra, líkt og árið áður, en Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, Katrín í Lýsi, Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hafa lagt fram hund­ruð millj­óna í nýtt hlutafé.

Tapaði tæpri milljón á dag og fékk nýtt hlutafé frá Lýsi og útgerðinni
Katrín í Lýsi Seldi Lýsi hf. til útgerð­ar­fé­lags­ins Brims á 20 millj­arða króna og leggur aukið hlutafé í útgáfu Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Eyþór

Móð­ur­fé­lag útgáfu Morg­un­blaðs­ins, Þórsmörk ehf, tap­aði 346 millj­ónum króna árið 2025, sam­kvæmt frétt blaðs­ins. Tapið hefur þegar verið greitt upp með fram­lagi eig­enda sem sam­þykktu í sum­ar­byrjun að auka hlutafé um 600 millj­ónir króna.

Eigendur Lýsis hf, sem seldu félagið til útgerð­ar­fé­lags­ins Brims í sumar, virð­ast hafa lagt fram mest hlutafé.

Tapa enn milljón á dag

Félagið, Þórsmörk ehf, heldur úti Morg­un­blað­inu, mbl.is, útvarps­stöð­inni K100, prent­smiðj­unni Lands­prent og á megnið í dreif­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Póst­dreif­ingu. Morg­un­blað­inu er meðal ann­ars dreift í svo­kall­aðri aldreif­ingu á fimmtu­dögum, en það þýðir að stór hluti heim­ila lands­ins fær blaðið sent án þess að greiða fyrir það.

Ekki kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins hvernig tapið dreif­ist milli félag­anna. Tapið var 348 millj­ónir króna árið áður.

Í frétt­inni kemur fram það sjón­ar­mið Haraldar Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóra Þórs­merkur og rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að minni rík­is­styrkir hafi haft áhrif á afkom­una.

„Fjöl­miðla­mark­að­ur­inn er áfram mjög erf­iður og það spilar inn í þetta að í fyrra var gerð breyt­ing á lögum um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla sem dró úr stuðn­ingi við tvo stærstu einka­reknu miðl­ana, þar með tal­inn Árvakur,“ sagði Haraldur í við­tali við Morg­un­blaðið.

Árvakur fékk 104 millj­ónir króna í rík­is­styrk í fyrra, en 124 millj­ónir króna árið áður. Hefði styrkirnir verið jafn­háir væri tapið árið 2025 því 326 millj­ónir króna.

Rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur hefur hins vegar breytt áherslum í rík­is­styrkjum til fjöl­miðla, með frum­varpi sem sam­þykkt var undir lok síð­asta þings. Með því hafa verið búnir til sér­stakir „við­bót­ar­styrkir“ til stærstu fjömiðla­rit­stjórn­anna, sem renna aðeins til frétta­stofu Sýnar og Morg­un­blaðs­ins.

Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­sonFyrr­ver­andi for­maður útvarps­ráðs er einn þeirra sem leggur til nýtt hlutafé í útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins.
Guðbjörg Matth­í­as­dóttirÚtgerð­ar­konan úr Vest­manna­eyjum á um 40% í útgáfu Morg­un­blaðs­ins ásamt sonum sínum eftir hluta­fjár­fram­lög síð­ustu ára.

Hluta­fjár­aukn­ing greiðir upp tapið

Í vor sam­þykktu stjórnir Árvakurs og Þórs­merkur að auka hlutafé um 600 millj­ónir króna. Árvakur hefur tapað sam­fellt frá efna­hags­hrun­inu 2008, ef frá er talið árið 2013. Árvakur hafði þegar fengið hluta fjár­fram­lag­anna frá eig­endum félags­ins. Í lok síð­asta árs skuld­aði útgáfan eig­endum sínum 384 millj­ónir króna.

Frá því í fyrra hefur hlutur eig­enda Morg­un­blaðs­ins rýrnað um meira en helm­ing við hluta­fjár­aukn­ingu. Þannig átti Eyþór Arnalds, fyrr­ver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, 10,2% hlut í fyrra, sem hann fékk án greiðslu frá eig­endum Samherja, en á nú 4,77%.

Þeir sem styrkja mest stöðu sína í eig­enda­hópnum, sem gera má ráð fyrir að hafi lagt fram aukið hlutafé, eru fyrr­ver­andi eig­endur Lýsis hf, sem sömdu í vor um að selja Lýsi fyrir 20 millj­arða króna til útgerð­ar­fé­lags­ins Brims.

Félag Katrínar Pét­urs­dóttur, dóttur hennar, og Gunn­laugs Sævars Gunn­laugs­sonar, Í fjár­fest­ingar ehf, er nú stærsti ein­staki eig­andi Þórs­merkur með 21,7% hlut, sem var aðeins 12,5% í fyrra. Hlutur þeirra í félag­inu hefur því auk­ist um rúm­lega 9%.

Hins vegar á Guðbjörg Matth­í­as­dóttir og aðilar tengdir henni um það bil 40% hlut í Morg­un­blað­inu og hefur hann auk­ist við hluta­fjár­aukn­ing­una um tæp 5%. Í gegnum félagið Hlyn A ehf. eiga Guðbjörg og synir hennar fjórir 20% hlut og í gegnum annað félag, ÍV fjár­fest­inga­fé­lag ehf, eiga þau önnur 20%. Þá á Kaup­fé­lag Skag­firð­inga áfram tæp­lega 20% hlut og hefur því lagt fram aukið hlutafé til að halda sinni hlut­deild í eign­ar­haldi Morg­un­blaðs­ins.

Þar með má gera ráð fyrir því að megnið af 600 millj­óna króna hluta­fjár­aukn­ingu árs­ins í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins hafi komið frá þremur hópum: Guð­björgu Matth­í­as­dóttur og fjöl­skyldu, Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga og selj­endum Lýsis, Gunn­laugi Sævari Gunn­laugs­syni og Katrínu Pét­urs­dóttur.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    hver sagði nú aftur? mafía er það og mafía skal það heita
    0
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Óskar Magnússon, fv stjórnarformaður útgáfufélags Morgunblaðsins, greindi hreinskilinslega frá því að allur þessi peningaustur væri fyrir tvennt, til að verja kvótann og til að koma í veg fyrir ESB aðild. Það er því fulljóst að útgerðin í heild skyrrist ekki við að verja a.m.k. milljarði króna í áróður gegn ESB aðild.
    2
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Hverskonar ríki mundi gera forsætisráðherra að ritstjóra og lögreglustjóra að útvarpsstjóra?

    Svar: Bananalýðveldi.
    1
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Það er engin ástæða til að velta fyrir sér af hverju fjársterkir hagsmunaaðilar eru tilbúnir að greiða hundruð milljóna með fjölmiðli ár eftir ár þegar við vitum að þetta er bara "óbilandi ást" viðkomandi á þeirri "frjálsu og óháðu blaðamennsku" sem stunduð er á Mogga.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár