Tóku völdin en misstu áhrifin

Tíu árum eftir að Bretar kusu að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu greiða Íslend­ingar atkvæði um hvort hefja eigi aðild­ar­við­ræður við sam­bandið að nýju. Hvaða áhrif hafði útgangan á breskt sam­fé­lag og hvaða lexíu geta Íslend­ingar lært af henni?

Tóku völdin en misstu áhrifin

Föstu­dags­morg­un­inn 24. júní árið 2016 vökn­uðu gestir tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Gla­ston­bury í miðju for­ar­svaði. Skipu­leggj­andi hátíð­ar­innar kvaðst aldrei hafa upp­lifað aðra eins rign­ing­ar­tíð.

Ekki leið á löngu uns síma­skjáir tóku að lýs­ast upp í tjöldum með fréttum af því sem margir sáu sem óeig­in­legt þrumu­ský. Nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, sem hafði farið fram dag­inn áður, lá fyrir. Bretar höfðu kosið að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Ekki aðeins himn­arnir grétu á Gla­ston­bury sum­arið 2016 heldur gest­irnir líka; sam­kvæmt könnun The Times höfðu 83% hátíð­ar­gesta kosið gegn útgöng­unni.

Þegar Chris Martin, söngv­ari Coldplay, steig á svið þakk­aði hann gestum fyrir að umbera úrhellið, drull­una og hrun lands­ins.

Fimm hund­ruð kíló­metrum norðar í Sund­er­land kvað við annan tón. Tölur frá hafn­ar­borg­inni voru fyrsta vís­bend­ing um öruggan sigur útgöngu­sinna. „Hlut­irnir verða að fara að breyt­ast,“ sagði Jim Oliver, fyrr­ver­andi mál­ari, við blaða­mann Guardian. Hann kvaðst binda vonir við að fram­tíðin væri björt, en 61% íbúa Sund­er­land kaus …

Kjósa
93
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár