Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns

Kröfur upp á 981 milljón eru undir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóðum félags­ins Render Centium ehf. í Mos­fellsbæ. Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, og faðir hans eiga félagið sem átti að byggja þjón­ustu­í­búðir fyrir aldr­aða á lóð­inni en hefur rift samn­ingnum. Málið varpar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína aðkomu ekki tíma­freka.

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
Bergþór Ólason Mynd: Miðflokkurinn

Kröfu­hafar hafa farið fram á nauð­ung­ar­sölu á þremur lóðum í Mos­fellsbæ í eigu félag­ins Render Centium. Kröf­urnar hljóða upp á 981.467.761 krónur.

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, er annar eig­enda félag­ins ásamt föður sínum og kom sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar að kaup­unum á lóð­unum. Hann hefur ekki skráð þær í hags­muna­skrá Alþingis eins og kveðið er á um í reglum. Málið varpar einnig ljósi á ýmis bygg­inga­verk­efni sem fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið hefur komið að sam­hliða þing­setu, í Mos­fellsbæ, á Selfossi og víðar.

Lóðirnar umræddu eru við Bjark­ar­holt 32 og 34 í Mos­fellsbæ, beint á móti Fram­halds­skól­anum í Mos­fellsbæ. Bergþór og faðir hans keyptu félagið Render Centium með til­heyr­andi lóðum árið 2023 í gegnum félag sitt Bygg­inga­lausnir ehf. Á lóð­unum stóðu áður hús sem hafa verið rifin.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar tóku þeir yfir lán frá Arion banka og fengu selj­anda­lán frá fyrri eig­anda lóð­ar­innar. Hljóðuðu skuld­irnar upp á hund­ruð millj­óna króna.

…
Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Miðflokkurinn er stofnaður til að styrkja enn frekar stoðir hagsmunabaráttu auðmanna. Klausturdónarnir hafa ekki þurran siðvitsþráð í sínum fórum.
    2
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Þetta er náttúrulega svo flókið að átta sig á því hvað maður á þegar maður á hlut í fyrirtæki sem á hlut í fyrirtæki sem á hlut í fyrirtæki o.s.fr.
    Bergþór ætti náttúrulega að gera eitthvað í þessu sem alþingismaður (löggjafi). Hann gæti til dæmis talað fyrir því á Alþingi að fyrirtæki mættu einungis eiga fyrirtæki sem ekki ættu fyrirtæki. Það myndi einfalda yfirsýnina yfir það hvað hann á og auðvelda honum hagsmunaskráninguna.
    1
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessr lóðir rétt innan við Olís í Mosfellsbæ eru til alvarlegrar áminningar um hve græðgin nær föstum tökum á sumum einstaklingum. Þarna voru tvö vel byggð einbýlishús með fallegum trjágróðri en lóðirnar hafa staðið auðar í allmörg ár og hafa verið eigendum til mikils vansa.
    3
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Er þetta ekki það sem heitir Framsókn, með eða án lyktar, 95% óþefur. Það er ekki lyktarlaust að hafa ríkisrekna eginhagsmunagæslustofnun við Austurvöll fulla af blýantsnögurum sem kalla sig stjórnmálamenn.
    3
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    "Viðbjóðskerti"
    "Viðbjóðskerti" - kerti sem senda frá sér viðbjóð - getur t.d. verið einhver sem reynir að taka getuna frá einhverjum öðrum til að verja sig með að skjóta í hann efnum sem hafa slíka virkni að einhverju leyti, t.d. úr farsímum (eða með einhverjum öðrum hætti).

    "Disgust candle" - a candle that emits disgust - can, for example, be someone who tries to take away the ability of someone else to defend himself by shooting in him substances that have such an effect to some extent, e.g. from mobile phones (or in some other way).
    3
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Hvernig er hægt að búa til heilan miljarð króna í skuldir á auða lóð?
    6
    • Kristín Guðnadóttir skrifaði
      100% siðblinda aftur í ættir gerir það kleift.
      2
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    þeir eru víða skúrkarnir . hver er vara þingmaður hans þegar hann segir af sér sem hann hlítur að gera miðað við hans niðurrifs málflutning í flest öllum málum
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár