Íbúar Kyrrahafseyja óttast áhrifin af ákvörðun Trumps

Banda­ríkja­for­seti und­ir­búa að bjóða upp rétt­indi til námu­vinnslu á hafs­botni á Kyrra­haf­inu án sam­ráðs við stjórn­völd eða íbúa á eyjum í nágrenn­inu, sem ótt­ast um lífs­við­ur­væri sitt og umhverfi.

Íbúar Kyrrahafseyja óttast áhrifin af ákvörðun Trumps
Banda­rísku Samóa-eyjar Þorpið Vatia á Banda­rísku Samoa-eyjum er umvafið þjóð­garði. Mynd: AFP

Leiðtogi Kyrra­hafs­eyju segir að „ekk­ert sam­ráð“ hafi verið haft áður en Banda­ríkin til­kynntu að hægt væri að bjóða út stór haf­svæði í nágrenn­inu til könn­unar á djúp­sjáv­ar­námu­vinnslu og sagði AFP að iðn­að­ur­inn stæði frammi fyrir sterkri and­stöðu meðal þjóðar sinnar.

David Apatang, rík­is­stjóri Sam­veldis Norður-Mar­í­ana­eyja, sagði að hug­myndin hefði valdið mik­illi ólgu á hita­belt­is­eyj­unum þar sem um 40.000 manns búa.

Banda­ríkin vöktu ugg á hita­belt­is­eyja­svæðum sínum fyrr á þessu ári þegar þau kynntu áætl­anir um að skipta upp hlutum Kyrra­hafs­ins til námu­vinnslukönn­unar.

Námu­fyr­ir­tæki eygja gríð­ar­lega hagn­að­ar­von í stein­efna­út­fell­ingum sem dreifðar eru um hafs­botn­inn, en þessi nýi iðn­aður hefur í mörg ár sætt hömlum vegna áhyggja af áhrifum hans á umhverfið.

Samkvæmt opin­berum skjölum gæti haf­svæði á yfir­ráða­svæði Banda­ríkj­anna nálægt Banda­rísku Samóa í Suður-Kyrra­hafi verið boðið út strax í nóv­em­ber.

Sérstök haf­svæði í kringum Gvam og Norður-Mar­í­ana­eyjar í Vestur-Kyrra­hafi eru einnig til skoð­unar.

„Sumar …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár