Vildu senda unga menn með leikfangabyssur úr landi

Stjórn­mála­menn og áhrifa­valdar brugð­ust hart við frétt af mönnum sem lög­reglan á Akureyri hand­tók fyrir vopna­laga­brot. „Allir þeir sem voru hand­teknir voru frá Mið-Aust­ur­löndum,“ skrif­aði nefnd­ar­maður í Sjálf­stæði­flokknum á sam­fé­lags­miðli. Vopnin reynd­ust vera leik­fanga­byssur en færsl­urnar standa óleið­réttar.

Vildu senda unga menn með leikfangabyssur úr landi

Formaður Mið­flokks­ins sagði að bregð­ast þyrfti við atburðum eins og ætl­uðu vopna­laga­broti fimm ungra manna á Akureyri um helg­ina „ann­ars missum við Ísland“. Stjórn­andi hlað­varps­ins Ein pæl­ing vildi láta henda þeim úr landi, ann­ars mundi Ísland þró­ast í slæma átt.

Skömmu síðar kom í ljós að byss­urnar voru leik­föng.

Fimm menn í kringum tví­tugt, sá yngsti 17 ára og sá elsti 22 ára sam­kvæmt frétt Vísis, voru hand­teknir af lög­regl­unni á Akureyri á sunnu­dag grun­aðir um vopna­laga­brot. Samkvæmt frétt RÚV barst lög­regl­unni til­kynn­ing um menn með skot­vopn í fórum sínum á tveimur bílum. Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra var kölluð til og fann bíl­ana mann­lausa í miðbæ Akur­eyrar, nálægt svæð­inu þar sem úti­há­tíðin Ein með öllu fór fram.

Þegar menn­irnir snéru aftur í bíl­ana veitti lög­reglan þeim eft­ir­för. „Svo kemur í ljós, þegar verið er að fara á eftir þeim, að þeir eru að veifa ein­hvers konar vopni út …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Ef ég sæi leikfangabyssuna eins og hún er sýnd myndi ég ekki greina á milli hennar og alvöru vopns. Ég bý í Bandaríkjunum þar sem byssuofbeldi er allt of raunverulegt og oft eru það börn sem skjóta börn eins og á Columbine, Sandy Hook og mörg önnur atvik hér. Ég held líka að fyrir börn sem gera slíkt hafi munurinn á leikfangabyssu og alvöru byssu glatast. Ég held ekki að slík leikföng ættu að vera framleidd á þessum tímapunkti. Það er betra að elta fyrirtækin sem framleiða þau heldur en börnin - þar liggur sökin.
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Á ekkert að tékka á dótabúðinni,,Í frétt Vísis kom fram að leikföngin hafi verið keypt í Kids Coolshop á Glerártorgi fyrr um daginn.🙃
    0
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Hvar er Dr. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson með Wintris skráð? Í Evrum í ESB?
    3
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Best væri að Dr. Sigmundur Davíð færi úr landi og kæmi aldrei aftur
    5
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Er leyfilegt að selja svona hluti í verslunum?
    1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Engu að síður getur það verið lögbrot að valda uppnámi og skelfingu á almannafæri, hvort sem notuð eru raunveruleg áhöld eða leikföng. Eftir atvikum getur slíkt verið sjálfstæð ástæða til að íhuga brottvísun ef brotið telst nægilega alvarlegt og viðkomandi er ekki íslenskur ríkisborgari. Hvort það á við í þessu tilfelli er ekki okkar að dæma sem stöndum fyrir utan málið.
    -1
  • bjørg valgeirsdottir skrifaði
    Ef að á að henda fólki úr landi sem hendleikur leikfangabissur þá þarf víst að henda hverju einasta íslensk mannsbarni sem komið er yfir 45 ára aldurinn því við lékum okkur öll í bissu og bófa leik, en að sjálfsögðu þá vorum við víst flest í "réttum lit" þannig að glæpurinn er kanski soldið minni fyrir vikið
    11
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Eins og ástandið er í heiminum er ekkert grín að vera að veifa "leikfangabyssum" á almannahátíðum og kosta útkall sérsveitar. Það þarf að taka hart á því.
    0
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Einn á Selfossi gerði þetta 2002 og hann var ekki sendur úr landi!
      Tveir í Reykjavík gerðu þetta 2019 og þeir voru ekki sendir úr landi!
      Einn á Þorlákshafnarvegi gerði þetta 2007 og hann var ekki sendur úr landi!
      Fimm í Reykjavík gerðu þetta 2022 og þeir voru ekki sendir úr landi!
      En allar byssurnar voru gerðar upptækar! :)
      En eins og "ástandið er í heiminum er" þá eru menn einstaklega taugaveiklaðir.
      10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár